laugardagur, júlí 24, 2004

Mía fædd!

Það fór nú ekki svo að sú stutta léti bíða lengi eftir sér ;)



Í stuttu máli þá fór ég að fá smá hríðarverki um miðnætti, um klukkan 1:30 voru verkirnir ekkert sérstaklega reglulegir, en ég fór að fá rembingsþörf og það kom smá blóð svo ég ákvað að best væri að skella sér upp á fæðingardeild og athuga málið... verkirnir fóru versnandi og kl. 2:10 vorum við komin inn á fæðingarstofuna, kl. 2:20 þann 22. júlí 2004 var stúlkan svo fædd!!! Hún var alveg eldhress og grét strax af miklum krafti og var heil 4.800 gr eða rúmlega 19 merkur og 53 cm með 38 cm höfuðmál. Því líkt og annað eins kraftaverk :)



Henni var strax við fæðingu gefið nafnið Mía Malín Harðardóttir.



Mía var fljót að finna brjóstið og var alveg ótrúlega spræk, reyndar soldið blá í framan en það er víst mjög eðlilegt þegar börn fæðast svona hratt. Ég missti hins vegar einhverja 2,5 lítra af blóði í heildina og var rúllað inn á skurðstofu og svæfð c.a. klukkustund eftir fæðinguna þar sem fæðingalæknirinn hélt að leghálsinn gæti hafa rifnað eitthvað eða einhver óeðlileg blæðing væri frá leginu og þurfti að svæfa mig til að geta skoðað það og lagað ef eitthvað væri. Svo reyndist samt ekki vera og enginn saumaskapur reyndist nauðsynlegur þó ótrúlegt megi virðast miðað við hraða fæðingarinnar! En mikill blóðmissir fylgir víst oft bæði fæðingu stórra barna þar sem fylgjan er þá stærri og eins mjög hröðum (og líka mjög langdregnum) fæðingum því þá nær legið ekki að dragast eins vel saman strax eftir fæðinguna svo það er ástæðan fyrir þessu mikla blóðtapi.



En já, ég var sem sagt heldur blóðlaus og er reyndar enn... komumst samt heim í gær þar sem ég er engu að síður mjög hress þó ég eigi reyndar frekar erfitt með að standa upprétt enn þá... en fyrir utan það heilsast okkur mæðgum bara mjög vel.



Brjóstagjöfin er komin í góðan gang og Mía mjög dugleg að drekka og er líka bara algert fyrirmyndar barn fram til þessa. Svaf mjög vel í nótt og er bísna róleg og góð :)



Hekla stóra systir er sko mjög ánægð með litlu systur og finnst hún alveg dásamleg. Hún nennir nú samt ekki að hanga mikið yfir henni þar sem hún er nú ekkert sérstaklega skemmtilegur félagsskapur svona til lengdar, alltaf bara sofandi og drekkandi ;) Svo hún er bara búin að vera úti að leika sér með vinkonunum eins og hún er vön.



Búin að setja inn myndir sem teknar á spítalanum, kemur örugglega meira bráðum ;)