sunnudagur, október 28, 2007


Þá græddum við klukkutíma í nótt :) og erum þar með komin yfir á vetrartíma, klukkan bara að verða hálf sex núna barasta komið myrkur! En það ætti þá að verða bjart og fínnt í fyrramálið. Erum búin að nota þennan langa dag í ýmiskonar undirbúning heimilisins, búin að þrífa vagninn og þvo stóran hluta af handþvottinum ásamt því að vinna í almennri tiltekt...

Annars lítið að frétta, fórum í bæinn í gær að máta kuldagalla á leikskólabarnið, sem ég endaði svo með að panta á netinu þar sem rétti gallinn fannst ekki í réttum lit og stærð í búðinni. Ótrúlega gott að versla barnaföt á netinu hérna, er farin að gera þó nokkuð af því, enda ekkert grín að fara með þessa grísi í búðir ;) Já, á föstudaginn fór ég í klippingu, gott að vera búin að því áður en krílið kemur. Fimmtudaginn var svo mömmugrúbba og foreldrafundur um kvöldið á leikskólanum, svo já, það er svo sem alltaf eitthvað að gera.

Á morgun förum við svo að hitta fæðingarlækni á spítalanum og fáum þá að vita hvað bumbudúllan er orðin stór, eða svona c.a. Spennandi!!! Finnst hún geti nú varla verið sérlega smávaxin, en hún virðist samt ekki vera komin með hausinn almennilega ofan í grindina... en hún er sæmilega spræk og sparkar miskunarlaust í allar áttir þegar þannig liggur á henni ;) Já og bumban heldur áfram að stækka, hér er mynd tekin í síðustu viku (á 38. viku):




og svona til gamans ein tekin 17. september (komin 32 vikur):



sunnudagur, október 21, 2007

Jæja jæja, best að halda áfram blogginu. Þá erum við komin með nýja tölvu, sú gamla fór í steik greyið :( og hellingur af myndum með henni :( en sem betur fer ekkert svona extra spes, nema kanski nokkrar bumbumyndir sem ég hefði gjarnan viljað eiga... en bumban er hér enn, stærri og sprækari en nokkru sinni, en í dag eru aðeins 3 vikur til stefnu!!!

Ótrúlegt hvað þetta líður hratt, fékk panikkast fyrir helgi og keypti allt sem vantaði fyrir krílið og ætla svo eftir helgi að hella mér í að þvo fötin og þrífa vagninn o.s.frv. Pískaði Hörð til að mála vögguna í gær, keyptum nefnilega gamla notaða vöggu á www.dba.dk um daginn, en nú þarf ég sjálf að drífa í að klára að sauma utan um hana, en ég er næstum búin að því.

En já, dúllan telst nefnilega fullburða barn hvenær sem hún nú fæðist úr þessu, svo það er eins gott að vera undirbúin. Er nú svona á síðustu vikunni farin að finna aðeins fyrir að þetta er að styttast, kúlan orðin frekar umfangs mikil, orðið ansi erfitt að beygja sig og svo rekst hún í allt sem fyrir verðu :S Er heldur ekki alveg að meika það að gera allt sem mér dettur í hug og nánast ómögulegt að finna góða stellingu að sofa í, þó ég sofi bara vel þessa c.a. 7 tíma sem ég sef að öllu jöfnu, en þá er ég líka orðin ansi þreytt á að liggja! Frekar einkennilegt.

En þetta er samt alltaf jafn æðislega gaman :)

laugardagur, október 06, 2007

Innrás köngulónna

Ég er búin að komast að því að heimili okkar er allt vaðandi í köngulóm, vissi nú alveg að þær væru nokkrar hérna á ferðinni, en eftir tiltektar æði vikunnar er ég búin að rekast á heilu fjölskyldurnar og að sjálfsögðu búin að drepa þær í tugatali, jafn vel hundraða... En köngulærnar sem um er að ræða eru svona hálfgærar með langar lappir og lítinn búk og leynast hér í öllum mögulegum skúmaskotum, ekki er annað að sjá en þær hafi það helvíti gott hérna og eru greinilega að fjölga sér í stórum stíl því það er slatti af pínu litlum köngulóa börnum líka á ferðinni :S

þriðjudagur, október 02, 2007

Skúra skrúbba og bóna...

Þá er ég búin að skúra og bóna hálfa íbúðina síðan í gær ;) rosalega dugleg! En það munar greinilega mjög miklu að bóna þennan leiðinlega gráa gólfdúk og verður kanski ekki jafn hrikalega leiðinlegt að skúra næst. Ohh hvað ég er orðin húsmóðurleg :þ

Hér eru annars allir hressir, Mía var reyndar eitthvað óhress í gær, án þess þó að nokkuð væri sjáanlega að henni, en í dag var hún bara eldhress á leikskólanum svo þetta hefur bara verið eitthvað tilfallandi.

Hekla keppist við að lesa þessa daganna og er bara orðin algjör lestrarhestur, farin að lesa langar myndalausar bækur alveg vandræða laust, snillingurinn sem hún er :) Á morgun er svo Mini-sport hjá henni, en því verður hún í í allan vetur, en Mini-sport er svona íþróttanámskeið sem er i boði fyrir krakka í 7 og 8 ára bekk hérna þar sem þau fá tækifæri til að prófa mismunandi íþróttagreinar. Hún byrjaði t.d. í fótbolta og var í því síðustu 6 vikurnar og svo á morgun byrjar hún í handbolta sem verður næstu 6 vikurnar, þegar því er lokið er það badminton og svo sund (sem hún er reyndar í líka einu sinni í viku þess utan) og svo loks judo. En mér finnst þetta algjör snilld, þá fá krakkarnir tækifæri á að prufa svona sitt af hverju án þess að maður þurfi að skrá þau í það fyrir allan veturinn og kaupa allt mögulegt dótarí sem þessu fylgir, þarna fá þau bara það sem til þarf lánað, þurfa bara strigaskó og stuttbuxur með sér. En mér skilst að Hekla hafi allavega ekki hugsað sér að fara að æfa fótbolta... var víst voða gaman samt en ekki alveg fyrir hana segir hún. Nú er spennandi að vita hvernig handboltinn gengur, hún er reyndar lítið spennt fyrir honum svona fyrir fram, en maður veit aldrei.

mánudagur, október 01, 2007

Hversdagurinn

Brr... ég held bara að veturinn sé að nálgast... mér er allavega hálf kalt eitthvað, sem er nú ekki venjan þessa daganna, en hér er rigningarsuddi og ekki nema 10 gráður segja þeir, en það á nú aðeins að volgna með deginum og jafn vel koma smá sól.

Börnin eru komin á sinn stað í skóla og leikskóla og dúllan í bumbunni er bara spræk í dag, lætin í henni magnast sífellt eftir því sem vikurnar líða, enda er hún nú orðin þokkalega stór, metin á 2300gr fyrir 10 dögum síðan, sem eru rúmar 9 merkur svo ætli hú sé ekki að nálgast 11 merkurnar núna. En nú eru 6 vikur eftir í áætlaðan fæðingardag, þetta styttist ótrúlelga hratt! Heilsufarið er annars bara gott ef frá eru taldir smá bakverkir, en það er nú þannig að ég get ekki lengur með nokkru móti sofið á maganum (skrítið) og því síður á bakinu, þar sem litla hlassið teppir þá allt blóðflæði í líkamanum... þess vegna verð ég að liggja á hliðinni, en það á eitthvað ekki sérlega vel við axlirnar á mér, ætli ég verði ekki bara að fara að reyna að sofa sitjandi :þ

Ég er annars bara á fullu í hreiðurgerðinni, að endurskipuleggja, breyta og bæta hérna á heimilinu og reyna að henda reiður á áralöngu óskipulagi... þetta er allt að koma... það sem gengur verst er að fá aðra heimilismeðlimi til að viðhalda skipulaginu, en uppeldið hefur greinilega ekki verið nógu strangt hjá okkur hingað til, systurnar bara vaða inn á skónum og henda af sér fötunum þar sem þær standa og eru sko ekkert að hafa áhyggjur af því þó herbergið þeirra fljóti í drasli og ekki sé nokkur leið að stíga niður fæti þar inni án þess að einhverskonar leikfang stingist upp í fæturnar á manni... en ég er ekki búin að gefast upp enn þá ;)

En jæja, best að hella sér í smá tiltekt og athuga svo hvort ég get ekki fengið útlitið á þessari síðu til að vera eins og ég vil hafa það.