sunnudagur, júlí 23, 2006

Sumar og sól!!!

Jæja þá erum við stúlkurnar komnar í sumarfrí og búnar að vera í fríi í heila viku. Hér er ekkert lát á góðviðrinu og er það búið að vera eiginlega aðeins meira en góðu hófi gegnir undanfarið...

Mía varð 2 ára í gær og er að sjálfsögðu búin að stækka heilan helling við það :) Hún fékk kanínuna Fífí í afmælisgjöf frá Heklu, það er svona "Build a bear" bangsi, en þess háttar félagar eru í gríðar miklu uppáhaldi hjá Heklu um þessar mundir. Svo fékk hún heilt hús frá okkur foreldrunum til að leika sér í úti í garði (ásamt stóru systur sem var ekki síður ánægð með nýja húsið ;)

Nú styttist í íslandsför okkar, en ferðinni er heitið á klakann næsta föstudag. Ég er að hamast við að reyna að klára að prjóna lopapeysur á okkur til að við verðum ekki úti í íslenska kuldanum, en eftir hitan hér undanfarið finnst manni nú bara allt undir 20 gráðunum vera kalt (og það er eiginlega bara á nóttunni) En það verður nú bara frískandi að kvíla sig aðeins á þessum hita.

Ég er búin að taka nokkrar myndir í sumarfríinu og stefni núna á að fara að setja einhverjar myndir inn á síðuna, en það tekst vonandi áður en sumri líkur, en við erum auðvitað alltaf jafn sæt og fín eins og þið vitið!

Jæja þá er þessari blogg stund lokið í bili, hæ hæ!!