föstudagur, maí 30, 2008

Verkfall

Þá er vika nr. 2 í verkfalli leikskólakennara á enda... úff... og sér ekki fyrir endan á því. Það má nú segja að við séum nú bara mjög heppin að ég er í fæðingarorlofi, en samt sem áður verð ég að játa að það er sko ekkert grín að þurfa að passa börnin sín sjálfur ;) SFOið hjá Heklu er í verkfalli, svo hún kemur bara með skólabílnum beint heim eftir skólan sem er búin kl. 13:15. Á leikskólanum hennar Míu er takmörkuð starfsemi í gangi, en það eru bara leikskóla kennarar sem eru í stéttafélaginu Bupl sem eru í verkfalli svo þar er slatti af starfsfólki sem ekki er í verkfalli. Því má hafa opið með takmarkaðan fjölda barna á mismunandi tímum, eða þegar nógu margir eru að vinna með nógu mikla reynslu til að megi hafa opið. Það virkar þannig að einungis hluti barnanna má mæta í hverri viku fyrir sig og svo er opnunnar tíminn misjafn frá degi til dags. Það var gefið út 4 vikna plan í upphafi verkfalls og samkvæmt því má Mía mæta í 3ju vikunni og er það næsta vika :) Þannig að þá mun ég svo sannarlega nota hverja mínútu af leikskólatíma til að slappa af og ná andlegujafnvægi ;) Held reyndar að Mía verði jafnvel enn fegnari að komast loks á leikskólann sinn "min elskede børnehave" eins og hún segir þegar hún faðmar að sér hópmyndina af krökkunum á leikskólanum sem við vorum að fá um daginn.

Hún er annars enn sem fyrr mjög "strok-gjörn" og sérstaklega í sumarblíðunni er hún ekki lengi að skjóta sér út þegar litið er af henni, en það getur verið MJÖG erfitt þar sem Úlfhildur þarf nú líka sína athygli.

En já, það verðu kanski tími á annað blogg á mánudaginn ;) En nú er Úlfan vöknuð og Mía á leiðinni berrössuð út...

þriðjudagur, maí 13, 2008

1/2 árs í dag :o)

Þá er hvítasunnuhelgin liðin hjá, með sól og 25 stiga hita, alveg geggjað veður búið að vera, en heldur kaldara í dag, bara svona 15 gráður enn sem komið er.

Úlfhildur Ellen á hálfsárs afmæli í dag :o) ótrúlegt alveg, hún sem er bara nýfædd!! Hún er ekki lengur það ósjálfbjarga ungabarn sem hún var fyrir svo stuttu síðan, hún er bara nánast farin að skríða og fiktar og tætir í öllu sem hún nær í og segir mama og baba og böhh. Hún byrjaði daginn í dag á að kveikja sjálf á spiladósinni á rúminu sínu, en það hefur hún nú ekki gert áður, en hún vissi greinilega alveg hvaða takka ætti að ýta á, snillingurinn sem hún er :o)

Síðustu daganna hefur hún sífellt verið að sækja í sig veðrið, farin að toga sig áfram á maganum á gólfinu og er farin að fara upp á fjóra fætur, svo það er sjálfsagt ekki langt í að hún verið komin á fullt skrið að rífa og tæta í öllu :-/ Hún fær nú reglulega að tala við ömmurnar og afan á skæpinu og hefur sko ekkert lítinn áhuga á tölvunni og öllum snúrunum í henni, um helgina gerðist hún líka svo kræf að hún plokkaði stafinn "s" af lyklaborðinu og er ég núna ný búin að afreka að koma honum á aftur eftir mikið bras...

Í augnablikinu sefur hún nú samt sætt og rótt úti í vagninum sýnum svo ætli það sé ekki best að nota tækifærið og reyna að taka aðeins til hérna á heimilinu á meðan ;)

fimmtudagur, maí 01, 2008

Þá breyttist sumarblíðan í sumar-rigningu...

Hér er hafin löööng helgi, dagurinn milli himmelfarts og helgar er nefnilega frídagur í skólum og leikskólum, en reyndar ekki hjá vinnandi fólki almennt sem er soldið glatað, en mjög margir taka sér þó frí. Hörður ætlar reyndar ekki að vera í fríi, svo við stúlkurnar verðum einar í kotinu, föstudagar eru nú samt stuttir dagar hjá honum svo við ættum ekki að vera einmanna mjög lengi ;)

Núna er verkefni í gangi á kollegíinu og allir sem vetlingi geta valdið farnir út í rigninguna að setja upp nýja róluvelli. Á þessu heimili var Hörður var boðinn fram í það verkefni svo ég sit hér núna með fullt hús af stelpum :) Úlfhildur sefur reyndar úti í rigningunni í augnablikinu og Mía er að glápa á Timmy á Disney Channel og Hekla og vinkonur eru inni í herbergi svo þetta er nú bara frekar rólegt (allavega þessa stundina ;)

Ætli það sé ekki best að nota tækifærið og fara að reyna að komast til botns í klístruðu eldhús óreiðunni :þ