þriðjudagur, apríl 18, 2006

Jæja kanski kominn tími á smá blogg?!?

Ég er nú bara búin að vera í hálfgerðu tölvu-bindindi undanfarið, veit ekki hvað veldur, en hef greinilega haft nóg annað að gera en að vera í tölvunni... hvernig sem það getur nú passað... en mér finnst ekki ótrúlegt að það fari að breytast aftur.

En já það er sum sé margt og mikið að frétta síðan síðast var bloggað, ekki það að ég er nú en þá wonder woman sko 'beautiful princess' og allt það :þ En við fórum sem sagt til Íslands, eins og flestir vita, þarna í mars... og komum heim í síðustu viku... eða já það er víst tæpur mánuður síðan við komum heim aftur, en svo sem ekkert gerst á þeim tíma sem er í frásögu færandi held ég... en jú það eru jú nýbúnir að vera páskar og var Hekla í tilefni þess í fríi alla síðustu viku, Mía var nú bara á vöggustofunni á mánudeginum og þriðjudeginum (enda búin að vera lasin heima mestan part vikunnar á undan og enginn greiði gerður með að hafa hana í fríi) og við Hekla notuðum tækifærið og fórum á flakk á meðan, skoðuðum Danmarks Akvarium á mánudeginum og fórum svo í bíó á Ice Age 2 á þriðudeginum og skemmtum okkur ágætlega :)

Jæja nenni bara ekki aå skrifa meira núna, en lofa að fara að bæta mig!