sunnudagur, október 17, 2004

Jæja, hmm... langt síðan hér hefur verið skrifað nokkuð....



En já Mía vex og dafnar mjög vel og heldur betur búin að stækka og þroskast. Hekla er líka alltaf að sækka og henni gengur bara ljómandi vel í leikskólanum sínum og er mjög ánægt þar.



Hekla fór í Koloni með leikskólanum um miðjan september, en það eru svona nokkurskonar sumarbúðir í kofa út í skógi, og gistu þau þar í heilar 2 nætur! Ekki leist móður hennar nú meira en svo á þetta ferðalagt til að byrja með en ákvað þó að leifa dótturinni að fara þar sem hún var mjög spennt fyrir þessu og lagði hún því af stað á miðvikudegi með fullar töskur af fötum og fleiru, svefnpoka og allar græur. Svo kom hún ekki heim fyrr en á föstudegi aftur og gekk víst bara rosalega vel. Þau fengu nammi og fór í skógarferðir, allir bjuggu sér til indjánabúning sem þau svo dönsuðu í í kringum varðeld. Auk þess fóru þau í ratleik (skattejagt) og héldu náttfatapartý síðasta kvöldið og þetta var bara því líkt fjör og engin heimþrá nema bara smá daginn sem þau komu heim þegar hún fékk afhent póstkort sem við höfðum skrifað til hennar (allir fengu svoleiðis), en þá hefur henni sjálfsagt fyrst verið hugsað til okkar eitthvað að ráði, annað en við sem hugsuðum ekki um annað á meðan en hvernig gengi nú hjá henni ;)



Já í lok ágúst komu svo amma Steina og afi Pétur í heimsókn til okkar og voru í viku. Þau fengu leigða íbúð hérna á kollegíinu svo þau þurftu ekki að hírast hér í litlu íbúðinni okkar allan tíman. Þá fékk Hekla nú að gista hjá þeim nokkrar nætu og fannst það nú heldur betur gaman. Við fórum með þeim í Bakken og Hekla fékk að fara í hin ýmsu tæki sem hún óskaði sér, en það voru helst þau svakalegustu... ég lét hana plata mig með sér í drekann ógurlega og jéminn... það geri ég ekki aftur á næstunni :þ En hún var svo heppinn að geta platað pabba sinn með sér í fjöldan allan af tækjum og skemmti sér mjög vel!



Svo komu þau aftur núna síðustu helgi og voru á hóteli níðri í bæ með vinnufélögum afans og þá hittum við þau að sjálfsögðu líka, fórum með þeim á Strikið á menningarnótt, Hekla fór með þeim á H.C Andersen safnið og svo fórum við líka með þeim á kaffihús og út að borða síðasta kvöldið.



Já hún Mía er öll að braggast, var nú samt aldrei mjög lítil eins og kunnugt er og var farin að lifta hausnum liggjandi á maganum strax á öðrum degi þannig að hún er sko ekki í vandræðum með það í dag. Um þriggja vikna velti hún sér svo í fyrsta skipti af maganum á bakið og hefur marg oft gert það síðan. Við erum nú samt ekki alveg viss um hvenær hún fór að gera það af ásettu ráði, en til að byrja gerðist það nú held ég bara af því hún rétti hausinn svo hátt upp í loftið að hún valt ;)



Mía er líka farin að brosa og hlægja og gerir það nú orðið nánast eftir pöntunum ef þokkalega liggur á henni. Hún er líka orðin mjög ræðin og spjallar heilmikið á sínu einstaka tungu máli :) Hún er annars mjög dugleg að sofa litla krílið og sefur alla nóttina auk þess sem hún tekur minnst tvo góða lúra á daginn, þar með 4 tíma lúr eftir hádegið sem hún er einmitt upptekin við að taka ákurat núna.



Mía hefur nú samt ekki verið að þyngjast mjög mikið síðan hún fæddist, en hún svona rétt sleppur... hún er nú samt alls ekkert horuð, en hún var náttulega svo stór fædd að það er svo sem ekkert að því þó hún stækki ekkert brjálæðislega. Fyrir viku síðan var hún vigtuð og mæld og reyndist þá vera 6.400 gr og 64 cm, hafði þá þyngst um 1,6 kg frá fæðingu og lengst um 11 cm.



Já svo er ég byrjuð að vinna í mastersverkefninu mínu með henni Fríðu, við erum búnar að fá okkar eigin skrifstofu svo ég er ekki í neinum vandræðum með að taka Míu með mér þangað. Hún er svo þæg og góð og sefur svo mikið að ég held að hún verði nú ekki til mikilla vandræða ;)



En já hér er komið haust, það kom eiginlega ekki af fullri alvöru fyrr en síðustu helgi, en það hefur verið þokkalega kalt síðan.



Jæja, best að ég fari að hætta í bili og reyni að muna að vera nú dugleg að skrifa og segja frá hvað á daga okkar drífur.

Engin ummæli: