Jæja þá eru stúlkurnar sofnaðar og allt fallið í ljúfa löð... Við Hekla horfðum saman á þáttinn
"Bedre Bolig" sem er að hennar sögn uppáhalds þátturinn hennar! En þetta er svona þáttur á borð við Innlit-útlit með Völu Matt. En hún horfir alveg dolfallin á þetta, sérstaklega þegar það koma svona atriði þar sem er sýnt hvernig megi gera eitt og annað á sniðugan hátt... festa upp myndir og búa til skápa og núna var til dæmis verið að sýna hvernig hægt væri að setja svona "ryksugukerfi" í hús... ein ryksuga einhversstaðar í húsinu og svo bara innstungur fyrir ryksugubarka á nokkrum stöðum í húsinu. Þetta fannst Heklu sko alger snilld (ekki það að mér fannst það nú líka), "þá þarf maður bara ekkert að vera að burðast með ryksugu um allt lengur" endurtók hún hrifin (á dönsku reyndar ;)
En áhugi barnsins liggur oft á öðrum sviðum en maður gæti haldið... hún hefur til dæmis rosalega gaman af að þurrka af þessa daganna og horfir líka alveg dolfallin á auglýsingar á blettaefnum í sjónvarpinu og reynir svo að hvetja mig til að kaupa svoleiðis í búðinni og er með slagorðin á hreinu "bla bla bla(eitthvað sem ég man ekki)... fjerner pletter!" ;)
En hún verður víst ábyggilega fyrirmyndar húsmóðir ef hún heldur svona áfram!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli