föstudagur, febrúar 25, 2005

Snýkjudýrið drepið!

Jæja þá eru allir búnir að fá njálgalyf og útrýmingar aðgerðum lokið á heimilinu. En ítrasta hreinlætis verður þó gætt næstu daga og lyfjameðferð endurtekin að 2-3 vikum liðnum til að tryggja að unninn sé sigur á ófögnuðinum! Ég hef nú enn ekki frétt af fleiri tilfellum af njálg í kringum okkur, en það er ómögulegt að segja hvar barnið hefur náð sér í þetta.

Annars er allt ágætt að frétta, er í skólanum núna, en við Fríða hittum kennarann í morgun og allt gengur þokkalega... og vonandi tekst kennaranum að finna lausn á gátunni sem við lögðum fyrir hann ;) en bein lausn stærðfræðilega módelsins okkar er ekki alveg að gera sig... En ætli það sé ekki best að ég fari að halda áfram að skrifa eitthvað í skýrsluna núna!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Eru verðlaun fyrir að vera númer 400? Ég tók reyndar ekki screen shot en ég hef vitni hehe...