þriðjudagur, apríl 26, 2005

Jæja jæja og gnístran tanna!!!

Jæja, í gær losnaði eitthvað um málbeinið í henni Míu og hún bara byrjaði að tala :) Hún hefur nú ekki sagt mikið fram að þessu, hélt hún væri farin að segja "mamma" um daginn en svo bara var það ekki... En í gær byrjaði hún að segja "jæja" og segir það víst í tíma og ótíma síðan og sagði meira að segja "HÆ" við mig þegar ég kom heim úr skólanum. Er annars alltaf í skólanum þessa daganna, allt á fullu í að klára verkefnið og við Fríða sitjum sveittar við, en þetta fer nú að klárast hvað úr hverju...

Já svo held ég bara að Mía sé komin með báðar framtennurnar í efrigóm, þe. ég held þær hafi bara báðar komið upp í nótt, því í morgun var litla dúllan byrjuð að gnísta tönnum upp í eyrað á mér... ughh... en þær eru báðar búnar að vera við það að koma upp í nokkra daga. Mía er annars búin að vera hálf kvefuð og Hörður fór með hana tíl læknisins í dag því hún hóstaði svo mikið í nótt og er líka búin að vera með nefrennsli meira og minna síðan hún fékk lungnabólguna. En hún reyndist stálhraust og bara soldið kvefuð :)

Jæja best ég haldi árfam að vinna...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Úff, allt of langt síðan ég skoðaði fréttirnar af Kagsa búum. Vonandi gengur allt vel með verkefnið og ég veit að það væsir ekki um mannskapinn í vorinu.