Er búin að vera að drepast í munninum síðan á fimmtudagsmorgun, svo ég dreyf í af panta mér tíma hjá tannlækni áðan. Hörður vissi um íslenska konu sem er með tannlæknastofu í Lyngby og mér tókst að finna símanúmmerið á netinu og hringja og fá tíma í dag :)
En já þvílíkur lúxus að geta farið til íslensks tannlæknis, þegar maður er ekki betri í dönsku en ég allavega... já og þá er ég líka að tala um "tannlæknislegadönsku"... vissi ekki einu sinni hvað jaxl er á dönsku fyrr en í dag, þó ég hefði nú pottþétt skilið það ef einhver hefði sagt það... en fyrir þá sem ekki vita kalla danir jaxla "bak-tennur", frekar lógískt ;)
En já fyrst ég er að blogga um tennur, sem er sívinsælt efni hér í blogginu hjá mér ;) þá er hún Mía komin með fyrsta jaxlinn sinn og nú alls 9 tennur!
mánudagur, október 24, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli