Þá er ég búin að skila verkefninu :D
Vonandi bara að ég fáið það ekki í hausinn aftur :þ En prófessorinn ætlar að lesa þetta á næstu dögum og vonandi bara að hann verði sáttur, ekki það að ég á svo sem ekkert von á öðru :)
En já, það er samt ekki svo að það taki ekki alltaf ný verkefni við, en nú er Fastelavn á næsta leiti og var ég víst búin að lofa að sauma búning, svo ég þarf víst að fara að vinda mér í að klára hann! Komst líka að því í dag að það er fastelavnsfest á vöggustofunni á föstudaginn og ekki var ég nú búin að finna búning fyrir Míu... svo ætli ég verði ekki bara að nota efnið sem til er og sauma búining á hana líka...
Svo er ég líka að fara að drífa mig í að fara að taka myndir aftur, sko fyrir dpchallenge :) Setti inn eina í keppni sem byrjaði í nótt, byrjaði vel en einkunin er aðeins að dala núna byrjaði í 5.75 eftir 21 atkvæði en er komin niður í 5.21 :S ekki alveg nógu gott mál... en þetta er nú bara fyrsti dagurinn og aðeins 61 atkvæði enn sem komið er.
Já og svo er náttulega bara að fara að fínpússa CVið og fara að stúdera atvinnuauglýsingarnar!
miðvikudagur, febrúar 22, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Innilega til hamingju og megir þú ekki fá þetta í hausinn aftur.
Skrifa ummæli