föstudagur, september 29, 2006

Hálfsmánaðarlegt blogg eða svo... þetta er að koma...

Jæja, rólegur dagur í vinnunni í augnablikinu, spurning hvað það endist lengi. Er enn ekki farin að updeita myndasíðuna, skil ekkert í þessu... gæti gert það núna, nema hvað myndirnar eru auðvitað á prívat tölvunni en ekki vinnu tölvunni :Þ

Við erum búin að vera að gera smá breytingar heima upp á síðkastið, búin að setja sófasettið þar sem borðstofuborðið var og öfugt og erum eiginlega bara mjög sátt við það. Svo erum við, ja eða Hörður að minni ósk, búinn að mála hálfan vegg svartan! Er rosa ánægð með þennan svarta lit og vildi eiginlega helst hafa allan vegginn svartan... á bara eftir að sannfæra málaran um listræna fegurð þess ;)

Nú styttist í að við fáum ömmurnar í heimsókn, já bæði eintökinn í einu, og þær koma í haustfríinu sem er í viku 42! Hehe mikið er ég að verða dönsk ;) En fyrir þá sem ekki vita eru viku númer mikið notuð hér. En já, við þurfum víst að fara að skipuleggja einhverja dagskrá fyrir þær... er reyndar búin að skipuleggja að láta þær passa laugardaginn 21. okt, en þá er Kagsaafestin árlega og kemur sér því mjög vel að hafa tvær ömmur við hendina :)

Engin ummæli: