fimmtudagur, nóvember 08, 2007

Bara 3 dagar í settan dag!

Jæja jæja, barnið er enn í fullum vexti og virðist ekkert vera að hugsa um að láta sjá sig á næstunni... virðist bara hafa það nokkuð huggulegt þarna inni með fæturnar í rifbeinunum á mér!

Á mánudaginn í síðustu viku fór ég til fæðingarlæknisins og eftir að hafa skoðað krílið fram og til baka í sónar komst hann að þeirri niðurstöðu, ja eða sónartækið, að hún væri um 3.850 gr, sjálfur sagði hann svona tæp 4.000 gr eftir að hafa potað soldið í bumbuna. Fór svo til ljósmóðurinnar á fimmtudeginum og hún sagði 4.000 gr... þessi sama ljósmóðir sagði Míu vera 4.600-4.800gr rúmum sólarhring áður en hún fæddist (4.800 gr), svo þetta er vonandi nálægt lagi hjá henni núna líka.... Í dag fékk ég svo að vita að ef ekkert hefur gerst næsta þriðjudag verð ég sett af stað, var reyndar búið að ræða að það yrði um helgina en það er víst voða mikið að gera hjá þeim þarna á spítalanum skilst mér... En ég hef þá smá meiri séns á að hún komi sjálfviljug áður, sem væri jú allra best :)

Þriðjudagurinn er nú annars heldur ekki sem verstur þar sem það er 13. nóvember, sem er jú bæði afmælisdagur móður minnar og brúðkaupsdagur tengdó :)

Engin ummæli: