Jæja, þetta gengur ekki, bara ekkert búið að blogga í háa herrans tíð! En það er auðvitað svo brjálað að gera hérna hjá okkur síðan 3ja dúllan fæddist ;) Ég er reyndar mikið í tölvunni, en mjög oft með Úlfhildi í fanginu og því aðeins með aðra hendina lausa sem gerir það að verkum að það er frekar mikið basl að ætla að fara að skrifa einhvern texta að ráði. Núna er hún reyndar farin að vera nokkuð dugleg að dunda sér á gólfinu stundum svo ég ætti nú að fara að reyna að koma smá bloggi inn svona endrum og eins.
Hér er búin að vera mikið veðurblíða síðustu daga, sól og bara hlýtt, alveg upp í 20 stig á daginn skv. veður stofunni og upp í 26 stig í vagninum hjá Úllunni, svo vetrarfötin eru komin upp í skáp og sólkremið hefur verið tekið út úr skápnum. Fórum í fyrstu skógarferð vetrarins á sunnudaginn með fjölskyldum krakkanna í bekknum hennar Heklu og fengum fínasta veður, ekki slæmt að geta setið úti á túni á teppi og borðað köku í apríl ;) En þetta var alveg ljómandi fínnt og Hekla naut þess alveg í botn að sýna vinkonunum Úlfhilldi, og Mía var alveg í essinu sínu þegar hún sá fínu RISA stóru trén þarna sem hægt var að klifra í... hún var að sjálfsögðu strax komin nokkra metra upp... móður sinni til mikillar hrellingar. Hún datt nú reyndar ekki nema einu sinni og hrapaði eitthvað aðeins niður, en hún var ekki lengi að jafna sig á því og hlaupa aftur að trénu og upp... Svo voru þarna froskar sem krakkarnir voru að leika sér að ná, fyndin kvikindi, Míu fannst þeir voða sniðugir og hoppaði eins og froskur á eftir þeim :)
Jæja best að fara að taka sig til og koma sér af stað í mömmugrúbbuna, er í tveimur núna, íslenskri hérna á kollegíinu og svo danskri með 4 sem eiga börn sem eru fædd í sama mánuði. Frábær félagsskapur alveg, svo skemmir ekki að í íslensku grúbbunni er alltaf gómsætur matur og kökur í eftirréttt, ekki slæmt ;)
miðvikudagur, apríl 30, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli