laugardagur, júní 07, 2008

Lestrarhesturinn mikli

Já og svo gleymdi ég alveg að monta mig af litla lestrarhestinum mínum ;) Sólin er núna komin með Harry Potter æði, já ekki svo langt síðan ég gekk í gengum það svo ég skil hana svo sem vel ;) En þann 13. Maí fórum við mæðgur saman í bókasafnið, þar fengum við þá snilldar hugmynd að kanski gæti Hekla bara farið að lesa Harry Potter, en ég hugsaði nú að það gæti kanski verið soldið erfitt... hún var nýbúin að vera að horfa á myndirnar nr. 1 og 2 með Birtu vinkonu sinni og hafði mikinn áhuga á að reyna að lesa bækurnar, svo við tókum þá fyrstu. Hún byrjaði að lesa og lesa og viti menn, hún var bara búin með bókina á einni viku! Næstu bók tók hún á 2 vikum og í gær byrjaði hún svo á bók nr. 3 og er komin á bls. 120 takk fyrir og það er ekki einu sinni eins og hún hafi bara setið og lesið, heldur er hún búin að vera úti að leika sér meira og minna allan daginn og bara lesið smá stund í gærkvöldi, í morgun og núna í kvöld! Ég verð nú að játa að ég komst hvergi nálægt því að geta lesið svona vel þegar ég var 8 ára... held meira að segja svei mér þá að hún sé bara að ná mér í lestrarhraða á núverandi tímapunkti... :)

3 ummæli:

margrét sagði...

Til hamingju með lestrarhestinn:) Ansi dugleg stelpan. Ertu ekki líka að láta hana lesa íslenskar bækur:) passa upp á orðaforðann.
Gjafahugmynd f. ömmurnar *blink*

En já, það styttist í mig. Má einmitt ekki seinni vera, er farin að finna f. kúlunni. Kem til ykkar næsta fös.kvöld:) Vona svo sannarlega að veðrið verði eins gott næstu helgi eins og það hefur verið hjá ykkur.

Nafnlaus sagði...

Vá frábært hvað hún er dugleg að lesa skvísan, ég hef verið að reyna að reka á eftir strákunum að lesa en áhuginn liggur ennþá bara hjá Andrésblöðunum sem komið er.
Hahaha Annars hefur Ágúst verið að lesa auðvitað bók og bók inn á milli en ekkert svona eins og Hekla heila seríu:D
Jæja frábærar fréttir
knús á ykkur Danina

Kv Hildur og familía

margrét sagði...

Hæ hæ
Ekkert að frétta af ykkur? Til hamingju með afmælisbörn mánaðarins (Míu og pabbann)
Lítið að frétta af mér -alltaf að vinna og finnst ég hafa misst af sumrinu..:(
Farin að hlakka til barneignarfrisins -sem verður líklega ekki svo mikið frí, en engu að síður...