fimmtudagur, ágúst 21, 2008

Jæja, kominn tími á smá skýrslu ;)

Hér eru allir bara nokkuð hressir núna, erum að vinna í að kaupa okkur bíl, svo bráðum verðum við ekki skrítna bíllausa fólkið lengur :þ Nánar um það síðar.

Úlfhildur fékk einhverja pest um helgina síðustu og var með brjálæðislegan hor-straum úr nebbanum á sunnudeginum og vaknaði svo um nóttina með 39,5 stiga hita. Foreldrarnir fengu vægt móðursýkiskast, en voru fljótir að jafna sig þegar í ljós kom að barnið var í hinu besta skapi, bara pínu sloj svona eins og óhjákvæmilegt er með svona hita... en hún var orðin hitalaus að morgni og fékk svo nokkrar kommur en aftur hitalaus um kvöldið og hefur verið síðan :) Bara smá hor í nebba núna. Þriðja tönnin kom í ljós síðasta laugardag, svo nú er komin ein í efri góm og dúllan auðvitað strax búin að fatta að gnísta.... Hún er annars að verða tilbúin í að fara að labba sýnist mér, nokkrum sinnum búin að taka skrefið út á gólf og sleppa s.s. höndum!!! En um leið og hún fattar það verður hún voða hissa og sest beint á rassinn ;)

Stubbarnir eru núna vinsælustu sjónvarpsstjörnur heimilisins, Úlfhildur fæst nefnilega alveg til að vera í leikgrindinni ef ég set þá í tækið og færi grindina svo hún sjái ;) En við erum með stubbana á íslensku, þökk sé mömmu ;) svo þetta eru náttulega bara hin besta íslensku kennsla (ekki bara leið til að fá frið til að gera eitthvað annað en að elta krúttið um íbúðina).

Lestur góðra bóka er reyndar líka komin ofarlega á blað, en Úlfhildur er orðin alveg merkilega áhugasöm um að láta lesa fyrir sig og situr oftast kyrr og stilt og hlustar (ef ekki er óhóflega mikill texti á blaðsíunum).

Hekla er annars söm við sig í lestrinum og er núna búin með allar sjö Harry Potter bækurnar og byrjuð aftur á þeirri fyrstu því hana langar ekki að lesa neitt annað en Harry Potter :) Ég sem ætlaði að reyna að láta hana lesa eitthvað á íslensku næst... ætli ég verði ekki bara að redda mér Harry Potter á íslensku...

Já og svo ég gleymi nú ekki hörpuleiknum! Hekla er sum sé byrjuð í tónlistarskólanum og búin að fara í tvo tíma að læra á hörpu, litli engillinn minn stendur sig auðvitað rosa vel í því (enn sem komið er). Við fengum sem sagt leigða hörpu í tónlistarskólanum til að hafa heima til að æfa sig... hún kom í hús á föstudaginn með aðstoð Lisbeth úr dönsku mömmugrúbbunni minni sem var svo góð að skutla mér að sækja hana á steisjónbílnum sínum. Hún komst heil harpan og helgin var tekin í að rýma pláss fyrir hana... mér finnst ég nú nokkuð góð í að skapa pláss hérna á 60 fermetrunum verð ég að segja (sjálf ;) Verð endilega að setja inn mynd af hörpuleikaranum við fyrsta tækifæri!

Er annars í gangi með að setja inn nýjar myndir, enda tími til kominn! Endilega kíkið :)

Ps. Mía hefur það líka voða fínt alltaf jafn sæt og góð, svo ég gleymi nú ekki miðju-barninu ;)

1 ummæli:

margrét sagði...

Hæ hæ
Gott að Míu er bötnuð pestin. Já og til hamingju með labbið:)
Kalla þig góða að koma fyrir hörpunni góðu. Og svo hefjast æfingar.... ;)