mánudagur, september 08, 2008

Alltaf á rúntinum ;)

Jæja, þá erum við komin á bíl!!! Þennan líka yndislega Citroen Berlingo sem rúmar alla fjölskylduna MEÐ fylgihlutum :) Mjög praktískur og þægilegur bíll. Hálf geggjað eitthvað að geta bara allt í einu skellt sér upp í bíl og keyrt hvert á land sem er, ekkert puð og púl ;)

En jæja, hér eru annars allir þokkalega hressir. Hekla er í "lejrskole" með bekknum, s.s. einskonar sumarbúðum. Fór af stað í morgun og verður í tvær nætur og kemur svo aftur á miðvikudaginn. Hún var gríðar spennt að komast af stað náttulega og þetta verður sjálfsagt mikið fjör.

Sá harmleikur átti sér reyndar stað um helgina að Trína gamla varð eitthvað slöpp og lést svo aðfaranótt sunnudagsins. Hún var jörðuð með formlegum hætti í garðinum seinnipart sunnudagsins að viðstöddum vinum og fjölskyldu. Hún náði sem sagt ekki 2 ára aldrinum, en hún hefði orðið 2 ára í byrjun nóvember. En nú er heimilið sum sagt rottulaust og engin plön um ný gæludýr í bráð...

Mía var nú soldið leið yfir fráfalli Trínu og sagði í sífellu "Jeg kommer til at savne hende" :( En hún tók þetta nú samt ekkert sérstaklega nærri sér held ég, hún var allavega ekki lengi að velta sér upp úr þessu.

Úlfhildur gat nú lítið tjáð sig um málið, en puttarnir á henni eru allavega ekki lengur í bráðri hættu... Hún er annars voða spræk, sem alltaf. Hún heldur sér nú enn þá í þegar hún labbar, sé þess kostur, en er alltaf að verða stöðugri og taka fleiri "handfrjáls" skref. Hún er líka ákaflega ræðin, en það sem hún segir er nú ekki alveg til að skilja.

Jæja, thats all for now :)

2 ummæli:

margrét sagði...

Ég votta ykkur samúð mína vegna fráfalls kvikindisins;)

En til hamingju með bílinn. Nú komist þið ekki einungis hvert á land sem er, heldur í hvaða land sem er... svona nánast. Þið gætuð keyrt alla leið niður til Spánar... að hugsa sér.

Það er aldeilis að skólaferðalögin byrja snemma hjá Heklu. Lúxus á þessu dönsku börnum.

Nafnlaus sagði...

Gaman að geta fylgst með ykkur, fyndið þetta með rottulaust heimili, við erum nú með kött hérna, en Anna mig rámar í að þið hafið átt kött, er það rangt mjá mér? En já það er naumast hvað stelpurnar þínar eru duglegar, gaman að sjá það.. Jæja ég bið vel að heilsa.. Hildur