Heilsan er í augnablikinu nokkuð góð hjá öllum fjölskyldumeðlimum. Úlfa litla reyndar soldið pirruð á köflum, en mig grunar að það sé kanski vegna nýrra tanna sem eru eitthvað að fara að láta kræla á sér. En hún er komin með 5 stykki eins og staðan er í dag.
Haustið er nú annars að byrja að bresta á fyrir alvöru, síðustu daga er slatti af trjám farinn að skipta litum og sólblómin í garðinum eru byrjuð að fölna. Hekla tók restina af gulróta uppskerunni upp úr blómabeðinu í gær og plokkaði síðustu tómatanna af tómataplöntunni. Skemmtilegar gulrætur :) Hún sáði næstum fullu bréfi af gulrótarfræum í einn blómapott til að byrja með... og jú jú, það komu upp fullt af grösum... þannig að ég tók mig til einn daginn og tók eina og eina og potaði ofan í blómabeðið... veit ekki hvort það er algengt að gulrótum sé umpottað á þennan hátt, en þær lifðu þetta allavega af og uxu áfram í beðinu. Urðu nú reyndar ekkert voða stórar, en það er nú vegna þess að það er ekki sérstaklega djúpt niður á stein í blómabeðinu... ;)

2 ummæli:
Hæ hæ gott að heyra að það séu allir komnir í góða heilsu á heimilinu.. Það er svo gaman að skoða myndirnar ykkar, þær eru svo fallegar stelpurnar ykkar:) Er alltaf að kíkja við og á bloggið líka:) Knús og kossar Hildur
Alltaf gaman að fá svolitla uppskeru. En já, sniðugt þetta með stærðina á gulrótunum. Mér sýnist þær einmitt allar vera í svipaðri stærð. Ætli hún sé sú sama og dýptin á vaxtarrýminu:)
Skrifa ummæli