laugardagur, mars 26, 2005

Á batavegi :)

Jæja þá er dúllunni nú farið að batna, er ný sofnuð og andar núna ekki nema 43 á mínútu, miðað við 50 til 60 sinnum á mínútu í gær. Hún er líka bara öll önnur, hressari og sprækari og hitalaus í dag. Okkur fannst nú reyndar áhyggjuefni hversu illa gengur að koma meðalinu ofan í hana, en þetta er pensílínduft sem maður svona leysir upp í vanti og gefur henni með skeið eða sprautar því upp í hana og hún er sko alls ekki hrifin af þessum viðbjóði og reynir af fremsta megni að frussa þessu út aftur... tókst reyndar aðeins betur í kvöld þegar ég setti þetta út í A38 mjólk (sem er svona nokkurskonar AB mjólk ef ég skil þetta rétt), en hún ætti líka að bæta meltinguna því pensilín fer jú ekki vel í maga... Mía gubbaði einmitt nokkru eftir að hafa fengið meðalið í morgun og var komin með niðurgang i kvöld... en eitthvað af meðalinu er greinilega að skila sér og vonandi nóg, en ég tók eftir því þegar ég las leiðbeiningarnar að hún er að fá skammt sem ætti að duga 15 kg barni en hún er ekki nema í mestalagi 9 kg held ég... svo það ætti að sleppa þó þriðjungur fari fyrir ofan garð og neðan...

En já við erum sum sé bara búin að vera heima í dag og Hekla fór ekki einu sinni úr náttfötunum í dag, hún er sko heldur betur að njóta þess í páskafríinu að slappa af heima hjá sér ;) ef hægt er að tala um að hún slappi nokkru sinni af...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jæja, þá er að prófa ósköpin(tæknina). Vonandi fer Míu að batna fljótlega. Við erum komin heim semsagt og ferðin gekk vel en hægt (Keflavíkurvöllur virðist vera orðin 3 nr. of lítill-hélt ég myndi kafna í fólksfjöldanum þarna í dag). Skilaðu bestu kveðju til allra og takk fyrir frábæra stund á fimmtudag.