laugardagur, mars 05, 2005

Gamlakonan fór á kattasýningu

Jæja, ég rauk á fætur kl. 6:35 í morgun þar sem Sólina hafði verið að dreyma eitthvað skelfilegt og fór svo að klára þvottastússið þegar þvottahúsið opnaði kl. 8. Svo ákváðum við að skella okkur út í sólina (og ísa kuldan) og fórum á kattasýningu í Herlev Hallen, þar voru til sýnis fjöldinn allur af köttum og margir rosa flottir, ef ekki bara allir. Sá sem mér fannst nú sérstakastur var Sphinx köttur, en hann var gersamlega hárlaus og allur í línum og hrukkum, merkilegt kvikindi. Abyssiníu kettirnir voru líka rosa flottir, kanski fáum við okkur einn þannig... einhvertíman í ellinni ;)

Yfir kvöldmatnum kom svo aldur okkar foreldranna til umræðu. Hekla var að leika mömmu okkar og skrældi fyrir okkur kartöflur og svona ;) og sagði að við værum 4 og 5 ára börnin hennar, þá datt mér í hug að spurja hvað hún væri þá gömul og hún varð hálf ráðvilt á svip svo ég spurði hvort hún mundi nokkuð hvað ég væri gömul? Hún hugsaði mikið og sagði svo "Ja svona 167 ára!" þá vildi ég náttulega vita hvað pabbi hennar væri gamall, en hún hélt að hann væri bara svona um 69 ára ;) Hmmm svo hann væri nú þá bara svona 100 árum yngri en ég... er núna búin að segja henni að ég sé 26 ára... bara svona til að fyrirbyggja allan misskilning ;)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

og hvernig var?

AP sagði...

ohh bloggið mitt hvarf!
... er búin að skrifa nýtt núna og já það var bara fínnt. Gleymdi nú samt að taka það fram að lyktin var vond og mynnti mig sko á afhverju við eigum ekki kött núna ;)