fimmtudagur, desember 29, 2005

Ég á afmæli í dag!!!

Góð ástæða til að blogga, ikk? :)

En jæja, löngu kominn tími á jólabloggið og einhver fleiri blogg... En við erum búin að hafa það alveg sérdeilis huggulegt hérna um jólin. Þetta byrjaði allt með því að jólatréð var sett upp á aðfangadagsmorgun og með því kom þessi gríðarlegi jóla-andi inn í húsið, enda ekki hjá því komist þar sem þetta er alveg gríðar, risa, kæmpe STÓRT tré, fyrsta skipti lengi sem jólatré heimilisins er stærra en ég, en það er hátt í 2 metrar og var Hörður lengi að jafna sig á að hafa hjólað með það heim...

En aðfangadagur jóla var að venju ekki mjög stuttur, bætti að vísu úr skák að jólasveinarnir Stekkjastaur og Kertasnýkir lögðu leið sína til okkar um morguninn með pakka alla leiðina frá Íslandi :) Systurnar voru nú heldur feimnar við þá bræður, en ákaflega glaðar að sjá þá engu að síður. En já, þegar klukkan loksins varð 6 var hamborgarahryggur etinn með bestu lyst, Heklu fannst við hin þó vera heldur lengi að slafra þessu í okkur, en það tókst að lokum og eftir minni háttar frágang var hægt að fara að sinna PÖKKUNUM! Heklu lá mikið á að afgreiða það verk og var varla búin að opna einn pakka þegar hún var tilbúin að afhjúpa næsta ;) Okkur tókst nú samt að vera einhverja 2 tíma að þessu og voru allir glaðir og sælir að lokum, ...en þá hófst hausverkurinn við að ná leikföngunum úr umbúðunum og skrúfa þau saman og allt það, en þetta tókst blessunarlega vel á endanum.

Systurnar höfðu báðar verið ægilega duglegar að búa til jólagjafir handa okkur í skólanum/vöggustofunni, Hekla gerði jólaskraut og svo þessa líka glæsilegu hálsfesti handa mér (sem ég hef borði síðan) og Mía málaði myndir á dagatal. Á því voru líka myndir sem teknar höfðu verið af henni sjálfri við að mála myndirnar, algjör snilld :) En þegar við vorum að skoða dagatalið saman gerðist sá merkilegi viðburður að dúllan benti á myndina af sér og sagði hreykin "ÍA" :) En er þetta í fyrsta skipti sem hún segir nafnið sitt, ja eða allavega svo við heyrum og skiljum ;)

Jóladagur var tekinn rólega og gjafirnar skoðaðar, nammi borðað og horft á sjónvarp. Um kvöldið var Hekla reyndar orðin lasin, með hita og hausverk og vaknaði svo um nóttina og gubbaði. Morguninn eftir var hún öllu hressari og bara alveg stálslegin þegar komið var hádegi, svo við ákváðum að skella okkur á jólaball kagsaa búa. Þar var dansað í kringum jólatréð og Kertasnýkir og Stekkjastaur litu við með nammipoka handa börnunum. Allir komu svo með veitingar með sér svo þegar saman safnaðist var þarna hið þokkalegasta veisluborð.

Á annan í jólum var líka farið að snjóa, ekki skemmdi það jólastemminguna, og síðan hefur bara snjóað meira og meira, svo það er barasta kominn slatti af snjó, ekki kanski á Íslenskan mælikvarða samt, en snjór samt. En já, nú er ég að spegúlera í að fara að reyna að koma einhverjum myndum inn á smugmugið, nánar um það síðar.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

tilraun 2 :) Til hamingju með daginn

Pálmi,Erla og börn