mánudagur, desember 05, 2005

Tölvunördatröll

Jæja, var að gera enn eina könnunina á netinu og það komst aldeilis upp um mig...



Tölvunördatröll


Þú ert nýjungagjarn, yfirvegaður innipúki.

Tölvunördatröllið hefur rosalega gaman af svona könnunum. Eitt slíkt bjó þessa könnun meira að segja til! Fyrir tölvunördatröllinu er bjarmi tölvuskjásins sem huggulegur arineldur á vetrarkvöldi. Tölvunördatröllið sendir frekar tölvupóst en að tala við fólk í persónu og á fleiri vini í netheimum en raunheimum (eða kjötheimum eins og tölvunördatröllið myndi orða það). Tölvunördatröllið er náskylt vampírunni, en það vakir á nóttunni og þolir illa sólarljós (og hvítlauk).



"Live long and prosper"


Hvaða tröll ert þú?

4 ummæli:

margrét sagði...

ég var auðvitað partýtröllið. Maður hefur engu gleymt....
Vil benda þér á nýju blogsíðuna mína sem einkennist þó af bágri tölvukunnáttu minni.
margret75@blogspot.com

margrét sagði...

Meinti sko margret75.blogspot.com
þarna sérðu hvað ég er góð í tölvum- en mér tókst samt að koma þessari síðu upp alveg alein:)
og kommentaðu nú

Nafnlaus sagði...

já, ég giskaði nú á það ;) átti bara eftir að commenta sko... er svo rosalega bissý þessa daganna...

margrét sagði...

jæja, jæja:)