Jæja hérna er allt aldeilis ísað, ekkert flogið á Kastrup og brúin lokuð allt út af þessum ísslag :þ Hekla hélt að þeir væru að tala um ÍsLAND í fréttunum, en svo var ekki. Fyrir þá sem vilja vita munin á dönsku orðunum "islag" og "isslag" er hægt að lesa allt um það hér!
Hér eru annars allir hressir, höldum okkur sem mest innandyra í þessum ísakulda, ekkert sérlega aðlaðandi að hjóla, vindurinn ansi kaldur og svo er líka þokklega hált. Ég fór með Míu í bólusetningu á miðvikudaginn, hefur staðið lengi til en þetta var sum sé 15 mánaða bólusettning gegn rauðum hundum og myslingum og hettusótt, en það gekk vonum framar, hún horfði bara dáleidd á lækninn stinga sig í lærið, en setti svo upp skeifu þegar hann sprautaði þessu í hana en það svíður víst, en hún var hörð af sér og skældi næstum ekkert heldur var bara með þessa rosa skeifu í smá tíma. Hún kann sko að haga sér þegar hún er ekki heima hjá sér og er ekkert að skæla yfir smámunum ;) En svo fékk hún smáköku í verðlaun hjá lækninum og þá var auðvitað allt í góðu aftur :) Já, hann er alveg einstaklega vingjarnlegur og barngóður læknirinn okkar og sem betur fer því hér fer maður alltaf til síns fasta heimilislæknis. En já, þá er Mía laus við frekari bólusetningar þangað til hún verður 5 ára, en hún fer næst í skoðun 2 ára og svo árlega fram að skóla aldri. Hún var nú hvorki vigtuð né mæld, enda ekki gert ráð fyrir því, en hún er allavega orðin 12 kg samkvæmt okkar vigt og ég þarf endilega að reyna að mæla hvað hún er orðin löng... finnst hún frekar stutt litla krúttið, en það er nú kanski líka bara samanburðurinn við stóru systurina sem er og hefur alltaf verið mjög löng!
En já fyrst ég er farin að tala um Míu verð ég nú að segja aðeins frá því að hún er nú alltaf að segja meira og meira... aðallega "meira" reyndar og þá við matarborðið :) en hún segir reyndar "míía" þegar hún vill meira, en það er náttulega bara danska. Þegar hún segir Mía (eins og í hún sjálf) þá segir hún samt oftast "Ía" :) Svo segir hún eitthvað sem líkist "ólk" = mjólk, frekar óskýrt, en skilst þó og svo segir hún "bau" eins og í brauð og "boðða" = borða og "at" = mat og nýjasta og krúttlegasta orðið hennar er "búba" = súpa = drekka :) Já svo segir hún líka "nei" og "ní", en það eru eiginlega uppáhalds orðin þessa daganna og koma oftast mörg saman "nei nei nei" og "níííí" mjög ákveðið :)
Svo er hún er núna aðeins að byrja að setja saman tvö og tvö orð, sagði fyrir nokkrum dögum síðan "míía bau", en já hún talar nú samt ekki um margt annað en mat enda mjög mikið fyrir mat :)
föstudagur, janúar 20, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
vá, ég er mikið fróðari um ís-lögin.
Skrifa ummæli