miðvikudagur, janúar 04, 2006

Lestur góðra bóka

Jæja þá er ég búin að vera að lesa um jólin, ég les nú ekki sérlega hratt og fæ nú ekki sérlega mikið næði til þess en er þó búin að lesa heila bók síðan rétt fyrir jól, og til að kóróna afrekið var bókin á dönsku! En ég fór að lesa Harry Potter og verð nú bara að segja að ég kann vel að meta hann og er að auki mjög ánægð með hversu vel mér gekk að lesa hann á dönsku, held ég hafi í allt flett upp einhverjum fimm orðum í orðabókinni, en var það nú meira bara svona til gamans ;) Svo nú er ég sko bara spennt að lesa bók númmer tvö :)

Ekki samt jafn spennt og að lesa bókina sem ég fékk í jólagjöf frá tengdaforeldrum mínum, en það er nýja bókin hans Arnaldar Indriðasonar, Vetrarborgina, sem kom út núna fyrir jólin. Ég hef lesið allar hans bækur fram að þessu og verð að segja að þær hafa allar verið algjör snilld bara. Þessi er því búin að vera að bíða eftir mér eins og einskonar sparí konfekt kassi, enn í plastinu, því ég ákvað að ég yrði nú að klára Harry fyrst fyrst ég var byrjuð á honum og hann var jú ágætlega spennandi. En jæja þá er ég farin upp í rúm að lesa :)

Engin ummæli: