sunnudagur, júní 10, 2007

Jæja, hér er sumarið aldeilis komið! Svoleiðis steikjandi hiti og sól hér þessa daganna, úff... eiginlega aðeins of mikið af því góða!

Erum annars bara þokkalega hress. Systurnar bara kátar og gengur vel í skóla og vöggustofu. Mía er reyndar um næstu mánaðarmót að far a að byrja á leikskóla, hún er jú nefnilega að verða 3 ára í júlí svo það er víst alveg kominn tími á það. Hún er annars söm við sig og uppátækjasemin óbreytt. Eitt mesta sportið hjá henni þessa daganna er að klifra upp í efrikojuna hennar Heklu, það er reyndar engin stígi þangað upp og á sú stóra stundum hálf erfitt með að komast þetta, en Mía er sko orðið ekki í minnstu vandræðum með að vinda sér þarna upp... á samt enn þá í smá basli með að komast niður ;) Í morgun þegar lötu foreldrarnir veltu sér fram úr rúminu var sú stutta svo komin ekki bara upp í koju heldur upp á hillu sem er upp við loft þarna við hliðina á kojuni, búin að losa einhvernvegin niður ljósið í loftinu og guð má vita hvað... eins gott bara að hillan hélt! er ekki viss um að svona IKEA vegghillur eigi að þola svona mörg kíló... En Mía var bara hin ánægðasta og brosti sínu sára saklausa brosi eins og venjulega með einhvern bláan lit sem hún hafði náð í á bæði andliti og höndum :S

Engin ummæli: