sunnudagur, júlí 29, 2007

Ferðasaga

Jæja þá erum við komin aftur heim eftir 2 vikna Íslandsreisu, alltaf gaman að heimsækja landið kalda og alla famelíuna og vinina, náðist reyndar ekki að hitta alla að þessu sinni þrátt fyrir stíft prógram en svona er þetta nú bara.

Ýmislegt náðist nú samt. Þetta byrjaði brösuglega, en ætlunin var að fljúga með icelandexpress að kvöldi miðvikudags kl. 21:30 en það var seinkun... fórum ekki í loftið fyrr en um 5 leitið um nóttina/morguninn... Fengum 100 dkr í sárabætur á mann í formi ávísunnar á mat á flugvellinum, æðislegt!! Þetta var nú samt ekki eins slæmt og það hefðfi getað verið því við fundum ágætis stað í fjölskylduhorni flugvallarins þar sem var sjónvarp og allskonar dót og grjónapúðar/dínur á gólfinu svo við gátum hvílt okkur meðan við biðum. Reikna nú samt með að við reynum að fljúga með iclendair næst...

En jæja, við byrjuðum ferðalagið svo á að keyra alla leið til Reyðarfjarðar á föstudeginum, því lík harka, og var helginni eitt í að skoða austfirðina og heimsækja austfirðinga. Keyrðum svo aftur í bæinn á mánudeginum og kláruðum hringinn.

Svo var ráðist í að hreinsa út slatta af gamla draslinu okkar sem verið hefur heima hjá foreldrum mínum síðan við fluttum út (og jafnvel lengur), held bara að ég hafi varla hent nokkrum hlut frá 10 ára aldri þar til við fluttum hingað til dk fyrir 4 árum síðan... en sú afstaða hefur heldur betur breyst og fékk góði hirðirinn að njóta góðs af því :)

Miðvikudaginn 18. júlí átti Hörður svo stórafmæli þar sem hann varð hvorki meira né minna en 40 ára gamall! Ótrúlegt alveg, held hann hafi fengið 3 grá hár í tilefni dagsins. En við héldum að sjálfsögðu í Hveragerði þann daginn þar sem móðir afmælisbarnsins var búin að töfra fram glæsilegar jafnt sem gómsætar veitingar! Smjatt! :)

Vorum svo í Hveró fram að helgi, Hörður tók til hendinni og málaði soldið hjá mömmu sinni og við mæðgur heimsóktum að sjálfsögðu Margréti vinkonu mína. En skruppum svo í sumarbústaðaferð með gömlu góðu vinkonum mínum og fjölskyldum á föstudeginum og gistum svo í sumarbústaðnum hjá mömmu og pabba nóttina eftir það. Á sunnudeginum var svo haldin fínasta afmælisveisla fyrir Míu krúttið hjá Ömmu í Hveragerði, þar sem hún varð 3 ára þann daginn. Amman bakaði hina glæsilegustu afmælisköku sem ég hef séð held ég bara (verð að muna að setja inn myndir!) og fékk ég uppskriftina til að reyna að leika þetta eftir á næsta afmæli Heklu... hehe, gæti þurft að senda eftir Ömmunni til að það náist ;) Mía var þvílíkt sæl og glöð með þetta allt saman, og þá sérstaklega kökuna! og fékk auðvitað margar góðar gjafir líka.

Á mánudeginum var svo haldið upp í Borgarnes að heimsækja Langömmu Grétu og því næst var förinni heitið aftur í Harfnarfjörðinn. Á þriðjudeginum heimsóktum við svo Steinunni og Evu Lín og litla sæta gaurinn þeirra hann Benjamín Ágúst og auðvitað alla hina ættingjana í Garðinum og um kvöldið komu svo pálmi brósi og famelía í mat í Kvistabergið svo við náðum aðeins að hitta þau. Gunna frænka kom svo í heimsókn á miðvikudagsmorgninum og var svo lagt af stað á völlinn um hádegið. Flugið heim var sem betur fer á tíma, nokkuð nákvæmlega bara.

En já, við eru búin að vera í afslöppun hérna síðustu daga og á morgun hefst svo prógrammið á ný, Hörður að vinna, Mía í leikskólann og Hekla á sundnámskeið og ég bara að aðlaga Míu og sendast með Heklu :) og aldrei að vita nema ég bloggi meira eða jafnvel setji inn myndirnar úr ferðalaginu ef mér tekst einhverntíman að koma þeim inn í tölvuna... er búin að vera að bíða eftir þeim síðan ég byrjaði að skirfa...

1 ummæli:

margrét sagði...

Hæ, ég var núna fyrst að ramba hérna inn og lesa ferðasöguna. Þú hlýtur að hafa verið glöð að komast heima;)
Heyrumst.