Jæja, þá er ég að jafna mig á pestinni, búin að vera með hita og tilheyrandi verki síðan á mánudaginn. Úlfhildur fékk pestina á miðvikudaginn í síðustu viku og var með 39-40 stiga hita og á föstudeginum alveg upp í 40,9 °C sem mér fannst nú heldur mikið... fór með hana á læknavaktina, eftir nákvæma skoðun þar fannst ekkert annað athugavert svo þetta var skilgreint sem vírus/influensa. Um helgina var hún svo slöpp en ekki með neinn hita að ráði, en fékk svo rauð útbrot á búkinn á sunnudeginu sem voru svo komin um allan kroppinn á mánudeginum svo ég lét lækninn okkar kíkja á hana. Hann sagði að þetta væru alveg týpísk vírus útbrot og hún yrði góð á morgun eða hinn. Nei, nei, þá fékk hún aftur hita daginn eftir og var líka með hita í gær... en samt mikið hressari. Er ekki búin að mæla hana í dag en hún var hress í morgun, fyrir utan að vera kvefuð náttulega, og er bráðum búin að sofa í 2 tíma úti í vagni núna. Já, við voru sem sagt svo latar í morgun að ég rétt náði að vakna til að koma Heklu í skóla en litlu krúttin sváfu bara og sváfu svo ég lagði mig bara aftur og fór ekki fram úr fyrr en hálf tíu! Þannig að Mía var ekki komin í leikskólan fyrr en klukkan 10 og Úlfan ekki út að sofa fyrr en 12 (venjulega sefur hún ca. 10-12).
Ég er bara búin að vera að dunda mér við að horfa á House, alveg snilldar þættir, fékk lánaðar fyrstu 3 seríurnar hjá einni hérna á kollegíinu, þá fyrstu í ágúst mynnir mig... Horfði á þriðju seríuna á einni viku og kláraði síðasta fimmtudag. Ætlaði þá nú aðeins að kvíla mig á þessu glápi, en veikinda stússið gerði það að verkum að ég neiddist til að næla mér í fjórðu seríuna á netinu og káraði hana í gær. Á núna bara eftir hálfan þriðja þáttinn í fimmtu seríunni... en fleiri þættir eru ekki komnir út eftir því sem ég kemst næst, svo nú ætti þessu House æði að fara að ljúka í bili.
Ástæðan fyrir að ég horfði bara á hálfan þáttinn var annars sú að það kom ókunnugur maður og hringdi dyrabjöllunni hjá okkur. Þetta reyndist vera fjölmiðlamaður og vildi endilega vita hvort ég væri ekki íslenskur námsmaður, því hann væri nefnilega að reyna að ná tali af einum slíkum. Þegar ég sá samstarfsmann hans koma röltandi með myndavélatöskuna var ég ákaflega fegin að geta með góðri samvisku sagt honum að ég væri sannarlega íslendingur, en bara því miður ekki námsmaður ;) (hef nefnilega verið lasin í nokkra daga núna og hvorki búin að þvo mér um hárið né mála mig, fyrir nú utan það að vera í náttfötunum ;)).
En já, mikið er nú gott að vera ekki á námslánum frá Íslandi í dag!!!
þriðjudagur, september 30, 2008
Smá af ungunum
Jæja jæja, mikið gerst síðan síðast... og þó... Úlfhildur er allavega ekkert að hafa fyrir að halda sér í lengur þegar hún gengur og hleypur hér um allt, meira að segja farn að fá að fara út að labba. Hún labbar reyndar best undan vindi ;) en það er voða fyndið að sjá þetta litla kríli þegar hún er í sínum rannsóknar leiðöngrum utandyra, en eins gott að vera fljótur að stoppa hana þegar hún fer að smakka grjót og rusl :þ Hún er annars líka að verða voða dugleg að borða venjulegan mat, en hún er nýlega orðin mun öflugri í að "tyggja" brauð og grænmet og ávexti í bitum (án þess að það taki allan daginn), þó tennurnar séu nú enn þá bara fjórar.
Mía er líka voða spræk, um helgina náði hún þeim merka áfanga að hjóla óstudd án hjálpardekkja :) Sú var heldur betur ánægð með sig!

Hekla er líka rosa hress, lejrskolen var þvílíkt skemmtilegur og hún saknaði okkar auðvitað ekki vitund. Henni gengur vonum framar að spila á hörpuna, þó mamma hennar þurfi nú að passa upp á að hún æfi sig reglulega! En nú kemur sér sannarlega vel að hafa verið í tónlstarskólanum hérna í denn, annars get ég ímyndað mér að ég væri í talsverðum vandræðum með að hjálpa henni með æfingarnar...
mánudagur, september 08, 2008
Alltaf á rúntinum ;)
Jæja, þá erum við komin á bíl!!! Þennan líka yndislega Citroen Berlingo sem rúmar alla fjölskylduna MEÐ fylgihlutum :) Mjög praktískur og þægilegur bíll. Hálf geggjað eitthvað að geta bara allt í einu skellt sér upp í bíl og keyrt hvert á land sem er, ekkert puð og púl ;)
En jæja, hér eru annars allir þokkalega hressir. Hekla er í "lejrskole" með bekknum, s.s. einskonar sumarbúðum. Fór af stað í morgun og verður í tvær nætur og kemur svo aftur á miðvikudaginn. Hún var gríðar spennt að komast af stað náttulega og þetta verður sjálfsagt mikið fjör.
Sá harmleikur átti sér reyndar stað um helgina að Trína gamla varð eitthvað slöpp og lést svo aðfaranótt sunnudagsins. Hún var jörðuð með formlegum hætti í garðinum seinnipart sunnudagsins að viðstöddum vinum og fjölskyldu. Hún náði sem sagt ekki 2 ára aldrinum, en hún hefði orðið 2 ára í byrjun nóvember. En nú er heimilið sum sagt rottulaust og engin plön um ný gæludýr í bráð...
Mía var nú soldið leið yfir fráfalli Trínu og sagði í sífellu "Jeg kommer til at savne hende" :( En hún tók þetta nú samt ekkert sérstaklega nærri sér held ég, hún var allavega ekki lengi að velta sér upp úr þessu.
Úlfhildur gat nú lítið tjáð sig um málið, en puttarnir á henni eru allavega ekki lengur í bráðri hættu... Hún er annars voða spræk, sem alltaf. Hún heldur sér nú enn þá í þegar hún labbar, sé þess kostur, en er alltaf að verða stöðugri og taka fleiri "handfrjáls" skref. Hún er líka ákaflega ræðin, en það sem hún segir er nú ekki alveg til að skilja.
Jæja, thats all for now :)

fimmtudagur, ágúst 28, 2008
Skýrlsa um Úlfhildi Undrabarn
Hér eru allir í fullum vexti og stækka frá degi til dags (tja nema vonandi ég ;)
Úlfhildur Ellen Undrabarn tók fyrstu skrefin ein og óstudd síðasta sunnudag, það var svo sem enginn að hvetja hana til þess, hún bara ákvað upp á sitt eins dæmi að ganga uppreist milli húsgagnanna án þess að halda sér í... hún var ekki einu sinni farin að standa neitt að ráði áður (án þess að styðja sig allavega aðeins við eitthvað), en það getur hún sem sagt núna líka og stendur bara ansi hreint stöðug. Hún er nú samt heldur völt á fótunum enn þá og gengur misjafnlega að labba af stað, allt eftir dagsformi og fótabúnaði, en hún er hvergi bangin og æðir bara af stað þegar þannig liggur á henni. Eiginlega merkilegt hvað hún er samt ekki að slasa sig á þessu enn sem komið er (7, 9, 13).
En henni er margt til lista lagt og í morgun var hún allt í einu farin að geta sett "peningana" í sparígrísinn sinn alveg sjálf hvern eftir annan... En fyrir þá sem ekki vita er grísinn svona Fisher Price leikfang sem syngur og talar og lítur út eins og sparíbaukur og "peningarnir" eru stórar plast krónur sem hægt er að stinga í gatið ofan á sparígrísnum. Það kemur kanski mynd við tækifæri ;)
Annars er líka í miklu upp á haldi að rétta dót og hluti fram og til baka "takk" og "gjörðusvovel", hún segir nú reyndar ekki "gjörðu svo vel" en er byrjuð að segja eitthvað í áttina að "takk"... meira svona "Tahhh" með mjög kraft miklu téi en mjög litlu ai og engu kái ;) Annars segir hún ekki mikið, bara mamma og babba og namnam og eitthvað sem líkist "jæja". En hún klappar og veifar og bendir jafnvel líka og hefur sko ýmsar leiðir til að koma vilja sínum á fram færi :)
Hún er annars frekar kvefuð enn þá dúllan og ég er ekki frá því að hún sé að fara að fá fjórðu tönnina, s.s. efri framtönn til vinstri. En jæja þetta dugir í bili, held ég sé að setja nýtt met síðari tíma í tíðni bloggs :þ

fimmtudagur, ágúst 21, 2008
Jæja, kominn tími á smá skýrslu ;)
Hér eru allir bara nokkuð hressir núna, erum að vinna í að kaupa okkur bíl, svo bráðum verðum við ekki skrítna bíllausa fólkið lengur :þ Nánar um það síðar.
Úlfhildur fékk einhverja pest um helgina síðustu og var með brjálæðislegan hor-straum úr nebbanum á sunnudeginum og vaknaði svo um nóttina með 39,5 stiga hita. Foreldrarnir fengu vægt móðursýkiskast, en voru fljótir að jafna sig þegar í ljós kom að barnið var í hinu besta skapi, bara pínu sloj svona eins og óhjákvæmilegt er með svona hita... en hún var orðin hitalaus að morgni og fékk svo nokkrar kommur en aftur hitalaus um kvöldið og hefur verið síðan :) Bara smá hor í nebba núna. Þriðja tönnin kom í ljós síðasta laugardag, svo nú er komin ein í efri góm og dúllan auðvitað strax búin að fatta að gnísta.... Hún er annars að verða tilbúin í að fara að labba sýnist mér, nokkrum sinnum búin að taka skrefið út á gólf og sleppa s.s. höndum!!! En um leið og hún fattar það verður hún voða hissa og sest beint á rassinn ;)
Stubbarnir eru núna vinsælustu sjónvarpsstjörnur heimilisins, Úlfhildur fæst nefnilega alveg til að vera í leikgrindinni ef ég set þá í tækið og færi grindina svo hún sjái ;) En við erum með stubbana á íslensku, þökk sé mömmu ;) svo þetta eru náttulega bara hin besta íslensku kennsla (ekki bara leið til að fá frið til að gera eitthvað annað en að elta krúttið um íbúðina).
Lestur góðra bóka er reyndar líka komin ofarlega á blað, en Úlfhildur er orðin alveg merkilega áhugasöm um að láta lesa fyrir sig og situr oftast kyrr og stilt og hlustar (ef ekki er óhóflega mikill texti á blaðsíunum).
Hekla er annars söm við sig í lestrinum og er núna búin með allar sjö Harry Potter bækurnar og byrjuð aftur á þeirri fyrstu því hana langar ekki að lesa neitt annað en Harry Potter :) Ég sem ætlaði að reyna að láta hana lesa eitthvað á íslensku næst... ætli ég verði ekki bara að redda mér Harry Potter á íslensku...
Já og svo ég gleymi nú ekki hörpuleiknum! Hekla er sum sé byrjuð í tónlistarskólanum og búin að fara í tvo tíma að læra á hörpu, litli engillinn minn stendur sig auðvitað rosa vel í því (enn sem komið er). Við fengum sem sagt leigða hörpu í tónlistarskólanum til að hafa heima til að æfa sig... hún kom í hús á föstudaginn með aðstoð Lisbeth úr dönsku mömmugrúbbunni minni sem var svo góð að skutla mér að sækja hana á steisjónbílnum sínum. Hún komst heil harpan og helgin var tekin í að rýma pláss fyrir hana... mér finnst ég nú nokkuð góð í að skapa pláss hérna á 60 fermetrunum verð ég að segja (sjálf ;) Verð endilega að setja inn mynd af hörpuleikaranum við fyrsta tækifæri!
Er annars í gangi með að setja inn nýjar myndir, enda tími til kominn! Endilega kíkið :)
Ps. Mía hefur það líka voða fínt alltaf jafn sæt og góð, svo ég gleymi nú ekki miðju-barninu ;)

föstudagur, ágúst 01, 2008
Hér er sumarblíðan, búið að vera steikjandi hiti og sól undanfarið. Hörður er búinn að vera í sumarfríi síðustu vikurnar og við erum búin að fá ömmurnar og afann í heimsókn og gera ýmislegt.
Úlfhildur vex og dafnar og er alltaf jafn dugleg. Hún byrjaði að klappa saman lófunum í gær og prílaði upp í sófann!!! Ein uppáhalds iðja hennar þessa daganna er að tæta öll fötin sín út úr hillunum undir skiptiborðinu... ekki sérlega vinsælt... Það er annars betra en margt annað, því hún er líka mjög iðin við að ryksuga gólfið hjá okkur, hún er nefnilega orðin svo hrikalega dugleg í að ná agnarsmáum kornum upp með "þumal-vísifingur" gripinu og stingur svo auðvitað öllu bara beint í munninn. En hún er líka orðin betri í að borða grófari mat, brauðbita og svona. Sundhedsplejersken kom í síðustu viku og reyndist Úllan vera orðin hvorki meira né minna en 9.600 gr og 74 cm, held nú reyndar að hún sé orðin lengri, en hún var mæld standandi upp við dyrastafinn... held að konan hafi ekki þorað að reyna að láta hana leggjast ;) En hún var líka 74 cm í 5 mánaða skoðuninni, þá liggjandi. Svo var gerð á henni svokölluð Boel prufa, sundhedsplejersken sagði reyndar að barnið væri nú greinilega svo sprækt að það þyrfti varla að gera þessa prufu, en gerði þetta nú samt og stóðst hún prófið með glans ;)
Heklu gengur bísna vel að lesa Harry Potter og er nú á síðustu blaðsíðunum í sjöttu bókinni. Hún á viku eftir í sumarfríi núna og svo byrjar skólinn á fullu.
Mía er alltaf jafn hress. Í gær stakk hún af af leikskólanum eina ferðina enn... þær sáu reyndar á eftir henni og hlupu af stað og náðu henni heima hjá einum vini hennar sem er í sama leikskóla en var í fríi þennan daginn og hafði boðið henni í heimsókn... hún var að sjálfsögðu skömmuð vandlega!
Jæja, best að fara að gera eitthvað af viti, þarf að fara að koma inn myndum við fyrsta tækifæri, Úlfhildur er alveg búin að stækka um helming síðan ég setti inn myndir síðast ;)

laugardagur, júní 07, 2008
Lestrarhesturinn mikli
Já og svo gleymdi ég alveg að monta mig af litla lestrarhestinum mínum ;) Sólin er núna komin með Harry Potter æði, já ekki svo langt síðan ég gekk í gengum það svo ég skil hana svo sem vel ;) En þann 13. Maí fórum við mæðgur saman í bókasafnið, þar fengum við þá snilldar hugmynd að kanski gæti Hekla bara farið að lesa Harry Potter, en ég hugsaði nú að það gæti kanski verið soldið erfitt... hún var nýbúin að vera að horfa á myndirnar nr. 1 og 2 með Birtu vinkonu sinni og hafði mikinn áhuga á að reyna að lesa bækurnar, svo við tókum þá fyrstu. Hún byrjaði að lesa og lesa og viti menn, hún var bara búin með bókina á einni viku! Næstu bók tók hún á 2 vikum og í gær byrjaði hún svo á bók nr. 3 og er komin á bls. 120 takk fyrir og það er ekki einu sinni eins og hún hafi bara setið og lesið, heldur er hún búin að vera úti að leika sér meira og minna allan daginn og bara lesið smá stund í gærkvöldi, í morgun og núna í kvöld! Ég verð nú að játa að ég komst hvergi nálægt því að geta lesið svona vel þegar ég var 8 ára... held meira að segja svei mér þá að hún sé bara að ná mér í lestrarhraða á núverandi tímapunkti... :)
Sól sól skín á mig...
Jæja, alltaf nóg að gera á þessu heimili. Var svo afslöppuð á mánudaginn að ég meikaði ekki einu sinni að skrifa blogg hvað þá meir... lagðist út í garð og las bók í sólinni meðan Úllan svaf í friði og ró í vagninum sínum :) En ég má víst bíða eitthvað eftir næsta afslappaða mánudagsmorgni þriggja barna móður í fæðingarorlofi, því verkfallið heldur áfram og Mía verður heima í næstu viku. Erum annars bara búin að hafa það gott, það var "Grundlovsdag" á fimmtudaginn og allir voru í fríi og svo átti Hörður frí í gær. Veðurblíðan er þvílík, alveg steikjandi í dag og búið að vera vel heitt undanfarið.
Veit ekki hvort ég var búin að skrifa um það, en Úlfhildur byrjaði að skríða daginn eftir 6 mánaða afmælið, reyndar bara toga sig áfram á maganum, en mjög hnitmiðað sína leið. Svo er hún smátt og smátt búin að vera að byrja að koma sér áfram á fjórum og í dag er það bara alveg farið að virka hjá henni. Hún er annars rosalega spræk og stendur upp á fjóra fætur, s.s. eins og í á iljunum og lófunum, og veifar rassinum út í loftið ;) en hún er sem sagt alveg farin að geta sest upp sjálf og líka staðið upp við hluti þegar vel tekst til. Í fyrradag reyndi hún svo að ganga meðfram sófanum, en steig alltaf á tærnar á sér, en í gær tók hún svo nokkur skref þegar hún ég hélt í hendurnar á henni bara nokkuð átakalaust, algjört undrabarn hún Úlfhildur Ellen!! ef hún heldur svona áfram verður hún farin að labba fyrir 7 mánaða... púff... ég sem hélt að hún yrði svo mikið rólegheita barn... En já, ég verð að fara að drífa mig að koma inn myndum af tilþrifunum hjá þeirri stuttu.

föstudagur, maí 30, 2008
Verkfall
Þá er vika nr. 2 í verkfalli leikskólakennara á enda... úff... og sér ekki fyrir endan á því. Það má nú segja að við séum nú bara mjög heppin að ég er í fæðingarorlofi, en samt sem áður verð ég að játa að það er sko ekkert grín að þurfa að passa börnin sín sjálfur ;) SFOið hjá Heklu er í verkfalli, svo hún kemur bara með skólabílnum beint heim eftir skólan sem er búin kl. 13:15. Á leikskólanum hennar Míu er takmörkuð starfsemi í gangi, en það eru bara leikskóla kennarar sem eru í stéttafélaginu Bupl sem eru í verkfalli svo þar er slatti af starfsfólki sem ekki er í verkfalli. Því má hafa opið með takmarkaðan fjölda barna á mismunandi tímum, eða þegar nógu margir eru að vinna með nógu mikla reynslu til að megi hafa opið. Það virkar þannig að einungis hluti barnanna má mæta í hverri viku fyrir sig og svo er opnunnar tíminn misjafn frá degi til dags. Það var gefið út 4 vikna plan í upphafi verkfalls og samkvæmt því má Mía mæta í 3ju vikunni og er það næsta vika :) Þannig að þá mun ég svo sannarlega nota hverja mínútu af leikskólatíma til að slappa af og ná andlegujafnvægi ;) Held reyndar að Mía verði jafnvel enn fegnari að komast loks á leikskólann sinn "min elskede børnehave" eins og hún segir þegar hún faðmar að sér hópmyndina af krökkunum á leikskólanum sem við vorum að fá um daginn.
Hún er annars enn sem fyrr mjög "strok-gjörn" og sérstaklega í sumarblíðunni er hún ekki lengi að skjóta sér út þegar litið er af henni, en það getur verið MJÖG erfitt þar sem Úlfhildur þarf nú líka sína athygli.
En já, það verðu kanski tími á annað blogg á mánudaginn ;) En nú er Úlfan vöknuð og Mía á leiðinni berrössuð út...

þriðjudagur, maí 13, 2008
1/2 árs í dag :o)
Þá er hvítasunnuhelgin liðin hjá, með sól og 25 stiga hita, alveg geggjað veður búið að vera, en heldur kaldara í dag, bara svona 15 gráður enn sem komið er.
Úlfhildur Ellen á hálfsárs afmæli í dag :o) ótrúlegt alveg, hún sem er bara nýfædd!! Hún er ekki lengur það ósjálfbjarga ungabarn sem hún var fyrir svo stuttu síðan, hún er bara nánast farin að skríða og fiktar og tætir í öllu sem hún nær í og segir mama og baba og böhh. Hún byrjaði daginn í dag á að kveikja sjálf á spiladósinni á rúminu sínu, en það hefur hún nú ekki gert áður, en hún vissi greinilega alveg hvaða takka ætti að ýta á, snillingurinn sem hún er :o)
Síðustu daganna hefur hún sífellt verið að sækja í sig veðrið, farin að toga sig áfram á maganum á gólfinu og er farin að fara upp á fjóra fætur, svo það er sjálfsagt ekki langt í að hún verið komin á fullt skrið að rífa og tæta í öllu :-/ Hún fær nú reglulega að tala við ömmurnar og afan á skæpinu og hefur sko ekkert lítinn áhuga á tölvunni og öllum snúrunum í henni, um helgina gerðist hún líka svo kræf að hún plokkaði stafinn "s" af lyklaborðinu og er ég núna ný búin að afreka að koma honum á aftur eftir mikið bras...
Í augnablikinu sefur hún nú samt sætt og rótt úti í vagninum sýnum svo ætli það sé ekki best að nota tækifærið og reyna að taka aðeins til hérna á heimilinu á meðan ;)

fimmtudagur, maí 01, 2008
Þá breyttist sumarblíðan í sumar-rigningu...
Hér er hafin löööng helgi, dagurinn milli himmelfarts og helgar er nefnilega frídagur í skólum og leikskólum, en reyndar ekki hjá vinnandi fólki almennt sem er soldið glatað, en mjög margir taka sér þó frí. Hörður ætlar reyndar ekki að vera í fríi, svo við stúlkurnar verðum einar í kotinu, föstudagar eru nú samt stuttir dagar hjá honum svo við ættum ekki að vera einmanna mjög lengi ;)
Núna er verkefni í gangi á kollegíinu og allir sem vetlingi geta valdið farnir út í rigninguna að setja upp nýja róluvelli. Á þessu heimili var Hörður var boðinn fram í það verkefni svo ég sit hér núna með fullt hús af stelpum :) Úlfhildur sefur reyndar úti í rigningunni í augnablikinu og Mía er að glápa á Timmy á Disney Channel og Hekla og vinkonur eru inni í herbergi svo þetta er nú bara frekar rólegt (allavega þessa stundina ;)
Ætli það sé ekki best að nota tækifærið og fara að reyna að komast til botns í klístruðu eldhús óreiðunni :þ

miðvikudagur, apríl 30, 2008
Gleðilegt Sumar :)
Jæja, þetta gengur ekki, bara ekkert búið að blogga í háa herrans tíð! En það er auðvitað svo brjálað að gera hérna hjá okkur síðan 3ja dúllan fæddist ;) Ég er reyndar mikið í tölvunni, en mjög oft með Úlfhildi í fanginu og því aðeins með aðra hendina lausa sem gerir það að verkum að það er frekar mikið basl að ætla að fara að skrifa einhvern texta að ráði. Núna er hún reyndar farin að vera nokkuð dugleg að dunda sér á gólfinu stundum svo ég ætti nú að fara að reyna að koma smá bloggi inn svona endrum og eins.
Hér er búin að vera mikið veðurblíða síðustu daga, sól og bara hlýtt, alveg upp í 20 stig á daginn skv. veður stofunni og upp í 26 stig í vagninum hjá Úllunni, svo vetrarfötin eru komin upp í skáp og sólkremið hefur verið tekið út úr skápnum. Fórum í fyrstu skógarferð vetrarins á sunnudaginn með fjölskyldum krakkanna í bekknum hennar Heklu og fengum fínasta veður, ekki slæmt að geta setið úti á túni á teppi og borðað köku í apríl ;) En þetta var alveg ljómandi fínnt og Hekla naut þess alveg í botn að sýna vinkonunum Úlfhilldi, og Mía var alveg í essinu sínu þegar hún sá fínu RISA stóru trén þarna sem hægt var að klifra í... hún var að sjálfsögðu strax komin nokkra metra upp... móður sinni til mikillar hrellingar. Hún datt nú reyndar ekki nema einu sinni og hrapaði eitthvað aðeins niður, en hún var ekki lengi að jafna sig á því og hlaupa aftur að trénu og upp... Svo voru þarna froskar sem krakkarnir voru að leika sér að ná, fyndin kvikindi, Míu fannst þeir voða sniðugir og hoppaði eins og froskur á eftir þeim :)
Jæja best að fara að taka sig til og koma sér af stað í mömmugrúbbuna, er í tveimur núna, íslenskri hérna á kollegíinu og svo danskri með 4 sem eiga börn sem eru fædd í sama mánuði. Frábær félagsskapur alveg, svo skemmir ekki að í íslensku grúbbunni er alltaf gómsætur matur og kökur í eftirréttt, ekki slæmt ;)

miðvikudagur, nóvember 21, 2007
Úlfhildur komin í heiminn :)
Þá er hún fædd og það fyrir viku síðan :) Fæddist þann 13. Nóvember kl. 19:16 eftir gangsetningu og gekk bara ótrúlega vel. Fæðingin gekk reyndar bara sjálfkrafa eftir að vatnið var tekið svo það þurfti nú ekki meira til. Dúllan fæddist reyndar með aðra hendina fyrst, í svona súperman stellingu, algjör gella! En þetta tók samt ekki nema 2 og hálfan tíma frá því vatnið var tekið og verkirnir fóru að koma fyrir alvöru og slapp ég alveg við meiriháttar blóðtap og rifnaði ekki neitt, ótrúlegt en satt :) En ég missti sem sagt ekki nema 700 ml af blóði, sem þykir nú reyndar slatti, en er nú ekkert miðað við 2,5 lítra eins og þegar Mía fæddist! En núna fékk ég líka dripp í æð um leið og barnið var komið út til að hjálpa leginu að draga sig saman aftur og koma þannig í veg fyrir blóðtap.
En litla pían reyndist vera 4.662 gr og 54 cm og bara alveg fullkomin :) Hendin virðist ekki hafa borið nokkurn skaða af þessu uppátæki hennar og hefur hún bara verið ákaflega ljúf og góð og mjög dugleg að drekka.
Stóru systurnar eru líka voða ánægðar með hana Úlfhildi sína, en við komum heim af spítalanum strax daginn eftir að hún fæddist og höfum bara haft það mjög gott.
Meira síðar, það er kominn slatti af myndum inn á smugmugið, endilega kíkið :)

sunnudagur, nóvember 11, 2007
11/11 og enn ekkert að gerast...
Jæja þá er settur dagur runnin upp og dúllan virðist ekkert ætla að fara að koma sér út úr bumbunni. Hef það annars bara ágætt, engir verkir eða neitt og þarf svo sem ekkert að vera að stressa mig þar sem ég get verið nokkuð viss um að það er ekki langt eftir. En jú, litla dúllan er nú örugglega nú þegar orðin á stærð við ágætis tröllabarn, verður spennandi að sjá nákvæmlega hversu stór, virkar frekar plássfrek, en mögulega platar það eitthvað að hún er ekki með hausinn almennilega ofan í grindinni.
Fórum í gær í göngutúr niður í Herlev, fór létt með það þó ég hafi ekki labbað mikið svona lengri vegalengdir undanfarið, bara hjólað, en nei þessi göngutúr skilaði engum verkjum né þess háttar... En hér er annars veturinn greinilega að færast yfir, var frekar kalt í gær og allt frosið að sjá úti um morguninn þegar við vöknuðum. Eins gott að ég verð ekki ólétt mikið lengur því ég kemst ekki í nokkra einustu vetraryfirhöfn með góðu móti, fór reyndar í risa stóru og víðu úlpunni minni í gær (sem ég b.t.w. hélt ég yrði aldrei of ólétt til að vera í!) en það var ekki séns að renna henni upp, ekki einu sinni að hneppa tölunum, bumban stendur einfaldlega of langt út í loftið :þ
Jæja best að fara að fá sér smá hindberjalausfte og sjá hvað verða vill :)

fimmtudagur, nóvember 08, 2007
Bara 3 dagar í settan dag!
Jæja jæja, barnið er enn í fullum vexti og virðist ekkert vera að hugsa um að láta sjá sig á næstunni... virðist bara hafa það nokkuð huggulegt þarna inni með fæturnar í rifbeinunum á mér!
Á mánudaginn í síðustu viku fór ég til fæðingarlæknisins og eftir að hafa skoðað krílið fram og til baka í sónar komst hann að þeirri niðurstöðu, ja eða sónartækið, að hún væri um 3.850 gr, sjálfur sagði hann svona tæp 4.000 gr eftir að hafa potað soldið í bumbuna. Fór svo til ljósmóðurinnar á fimmtudeginum og hún sagði 4.000 gr... þessi sama ljósmóðir sagði Míu vera 4.600-4.800gr rúmum sólarhring áður en hún fæddist (4.800 gr), svo þetta er vonandi nálægt lagi hjá henni núna líka.... Í dag fékk ég svo að vita að ef ekkert hefur gerst næsta þriðjudag verð ég sett af stað, var reyndar búið að ræða að það yrði um helgina en það er víst voða mikið að gera hjá þeim þarna á spítalanum skilst mér... En ég hef þá smá meiri séns á að hún komi sjálfviljug áður, sem væri jú allra best :)
Þriðjudagurinn er nú annars heldur ekki sem verstur þar sem það er 13. nóvember, sem er jú bæði afmælisdagur móður minnar og brúðkaupsdagur tengdó :)

laugardagur, nóvember 03, 2007
sunnudagur, október 28, 2007
Þá græddum við klukkutíma í nótt :) og erum þar með komin yfir á vetrartíma, klukkan bara að verða hálf sex núna barasta komið myrkur! En það ætti þá að verða bjart og fínnt í fyrramálið. Erum búin að nota þennan langa dag í ýmiskonar undirbúning heimilisins, búin að þrífa vagninn og þvo stóran hluta af handþvottinum ásamt því að vinna í almennri tiltekt...
Annars lítið að frétta, fórum í bæinn í gær að máta kuldagalla á leikskólabarnið, sem ég endaði svo með að panta á netinu þar sem rétti gallinn fannst ekki í réttum lit og stærð í búðinni. Ótrúlega gott að versla barnaföt á netinu hérna, er farin að gera þó nokkuð af því, enda ekkert grín að fara með þessa grísi í búðir ;) Já, á föstudaginn fór ég í klippingu, gott að vera búin að því áður en krílið kemur. Fimmtudaginn var svo mömmugrúbba og foreldrafundur um kvöldið á leikskólanum, svo já, það er svo sem alltaf eitthvað að gera.
Á morgun förum við svo að hitta fæðingarlækni á spítalanum og fáum þá að vita hvað bumbudúllan er orðin stór, eða svona c.a. Spennandi!!! Finnst hún geti nú varla verið sérlega smávaxin, en hún virðist samt ekki vera komin með hausinn almennilega ofan í grindina... en hún er sæmilega spræk og sparkar miskunarlaust í allar áttir þegar þannig liggur á henni ;) Já og bumban heldur áfram að stækka, hér er mynd tekin í síðustu viku (á 38. viku):

og svona til gamans ein tekin 17. september (komin 32 vikur):

sunnudagur, október 21, 2007
Jæja jæja, best að halda áfram blogginu. Þá erum við komin með nýja tölvu, sú gamla fór í steik greyið :( og hellingur af myndum með henni :( en sem betur fer ekkert svona extra spes, nema kanski nokkrar bumbumyndir sem ég hefði gjarnan viljað eiga... en bumban er hér enn, stærri og sprækari en nokkru sinni, en í dag eru aðeins 3 vikur til stefnu!!!
Ótrúlegt hvað þetta líður hratt, fékk panikkast fyrir helgi og keypti allt sem vantaði fyrir krílið og ætla svo eftir helgi að hella mér í að þvo fötin og þrífa vagninn o.s.frv. Pískaði Hörð til að mála vögguna í gær, keyptum nefnilega gamla notaða vöggu á www.dba.dk um daginn, en nú þarf ég sjálf að drífa í að klára að sauma utan um hana, en ég er næstum búin að því.
En já, dúllan telst nefnilega fullburða barn hvenær sem hún nú fæðist úr þessu, svo það er eins gott að vera undirbúin. Er nú svona á síðustu vikunni farin að finna aðeins fyrir að þetta er að styttast, kúlan orðin frekar umfangs mikil, orðið ansi erfitt að beygja sig og svo rekst hún í allt sem fyrir verðu :S Er heldur ekki alveg að meika það að gera allt sem mér dettur í hug og nánast ómögulegt að finna góða stellingu að sofa í, þó ég sofi bara vel þessa c.a. 7 tíma sem ég sef að öllu jöfnu, en þá er ég líka orðin ansi þreytt á að liggja! Frekar einkennilegt.
En þetta er samt alltaf jafn æðislega gaman :)

laugardagur, október 06, 2007
Innrás köngulónna
Ég er búin að komast að því að heimili okkar er allt vaðandi í köngulóm, vissi nú alveg að þær væru nokkrar hérna á ferðinni, en eftir tiltektar æði vikunnar er ég búin að rekast á heilu fjölskyldurnar og að sjálfsögðu búin að drepa þær í tugatali, jafn vel hundraða... En köngulærnar sem um er að ræða eru svona hálfgærar með langar lappir og lítinn búk og leynast hér í öllum mögulegum skúmaskotum, ekki er annað að sjá en þær hafi það helvíti gott hérna og eru greinilega að fjölga sér í stórum stíl því það er slatti af pínu litlum köngulóa börnum líka á ferðinni :S
þriðjudagur, október 02, 2007
Skúra skrúbba og bóna...
Þá er ég búin að skúra og bóna hálfa íbúðina síðan í gær ;) rosalega dugleg! En það munar greinilega mjög miklu að bóna þennan leiðinlega gráa gólfdúk og verður kanski ekki jafn hrikalega leiðinlegt að skúra næst. Ohh hvað ég er orðin húsmóðurleg :þ
Hér eru annars allir hressir, Mía var reyndar eitthvað óhress í gær, án þess þó að nokkuð væri sjáanlega að henni, en í dag var hún bara eldhress á leikskólanum svo þetta hefur bara verið eitthvað tilfallandi.
Hekla keppist við að lesa þessa daganna og er bara orðin algjör lestrarhestur, farin að lesa langar myndalausar bækur alveg vandræða laust, snillingurinn sem hún er :) Á morgun er svo Mini-sport hjá henni, en því verður hún í í allan vetur, en Mini-sport er svona íþróttanámskeið sem er i boði fyrir krakka í 7 og 8 ára bekk hérna þar sem þau fá tækifæri til að prófa mismunandi íþróttagreinar. Hún byrjaði t.d. í fótbolta og var í því síðustu 6 vikurnar og svo á morgun byrjar hún í handbolta sem verður næstu 6 vikurnar, þegar því er lokið er það badminton og svo sund (sem hún er reyndar í líka einu sinni í viku þess utan) og svo loks judo. En mér finnst þetta algjör snilld, þá fá krakkarnir tækifæri á að prufa svona sitt af hverju án þess að maður þurfi að skrá þau í það fyrir allan veturinn og kaupa allt mögulegt dótarí sem þessu fylgir, þarna fá þau bara það sem til þarf lánað, þurfa bara strigaskó og stuttbuxur með sér. En mér skilst að Hekla hafi allavega ekki hugsað sér að fara að æfa fótbolta... var víst voða gaman samt en ekki alveg fyrir hana segir hún. Nú er spennandi að vita hvernig handboltinn gengur, hún er reyndar lítið spennt fyrir honum svona fyrir fram, en maður veit aldrei.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)