Á morgun er Halloween partý í skólanum hjá Heklu, fengum að vita það síðasta föstudag og að allir ættu að vera dressaðir upp sem annað hvort: draugur, norn, rotta, leðurblaka, beinagrind, Drakúla, ófreskja, tröll eða köttur. Það var nú ekki margt af þessu sem prinsessunni þóknaðist að vera, en þar sem það mátti ekki vera prinsessa þá vildi hún helst vera norn. Og þá var bara eftir að redda búning... fór í dótabúðina á mánudaginn og komst að því mér til mikillar skelfingar að allir halloween búningarnir voru uppseldir nema í fullorðinsstærðum og líka allir nornahattarnir og nornanefin o.s.frv. Í gær fór ég svo í ToysRus í von um að þar væri eitthvað eftir, en fékk bara nef og málningu... þannig að ég fór bara yfir í rúmfatalagerinn og keypti svartefni til að sauma búning úr. Nú kemur sér sko vel að eiga saumavél :) Heklu leist nú ekkert á þetta hjá mér fyrst, en þegar ég kom heim úr skólanum saumaði ég pils fyrir nornina og hún var nú bara ánægð með það... núna er bara verkefni dagsins í dag að gera efrihluta og föndra nornahat... og nornakúst... sem sagt ólíklegt að ég fái mikinn tíma til að læra í dag, en þetta er náttulega mun mikilvægara verkefni!
En já, Míu leist ekkert á þetta nornadæmi, þegar Hekla setti upp nýja nornanefið í gær og svartan hatt sem hún á, þá varð Mía alveg logandi hrædd við hana og fór bara að skæla! hehe.. greinilega sannfærandi í hlutverkinu hún Hekla ;)
miðvikudagur, nóvember 02, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli