sunnudagur, nóvember 06, 2005

Lasleiki og jólapælingar

Jæja, lítið að frétta hérna þessa helgina nema það að Mía er búin að vera lasin síðan í gær, með hita og tilheyrandi slappleika, svo við erum búnar að vera heima. Hekla er bara búin að vera að leika sér með vinkonunum, fyrir utan að hún fór í balletinn í gær með pabba sínum. Hún er allt af að verða betri og betri :)

En ég ætla að fara að vinna eitthvað í því að koma heilum helling af myndum sem við höfum tekið síðustu mánuði inn á myndasíðuna, en það kemur svona smá saman.

Já, jólin eru að nálgast... Hekla var í morgun farin að teikna jólasveina og jólatré og klippa út og sagðist vera að búa til skraut á jólatréð. Hún er líka búin að skoða jólagjafalistan frá dótabúðinni og búin að fá mig til að skrifa fyrir sig lista yfir allt sem hana langaði í... það var nú alveg A4 blaðsíða! og svo vildi hún nú helst gera lista fyrir Míu líka. Jólaskapið lætur ekki á sér standa!

Engin ummæli: