miðvikudagur, nóvember 21, 2007

Úlfhildur komin í heiminn :)

Þá er hún fædd og það fyrir viku síðan :) Fæddist þann 13. Nóvember kl. 19:16 eftir gangsetningu og gekk bara ótrúlega vel. Fæðingin gekk reyndar bara sjálfkrafa eftir að vatnið var tekið svo það þurfti nú ekki meira til. Dúllan fæddist reyndar með aðra hendina fyrst, í svona súperman stellingu, algjör gella! En þetta tók samt ekki nema 2 og hálfan tíma frá því vatnið var tekið og verkirnir fóru að koma fyrir alvöru og slapp ég alveg við meiriháttar blóðtap og rifnaði ekki neitt, ótrúlegt en satt :) En ég missti sem sagt ekki nema 700 ml af blóði, sem þykir nú reyndar slatti, en er nú ekkert miðað við 2,5 lítra eins og þegar Mía fæddist! En núna fékk ég líka dripp í æð um leið og barnið var komið út til að hjálpa leginu að draga sig saman aftur og koma þannig í veg fyrir blóðtap.

En litla pían reyndist vera 4.662 gr og 54 cm og bara alveg fullkomin :) Hendin virðist ekki hafa borið nokkurn skaða af þessu uppátæki hennar og hefur hún bara verið ákaflega ljúf og góð og mjög dugleg að drekka.

Stóru systurnar eru líka voða ánægðar með hana Úlfhildi sína, en við komum heim af spítalanum strax daginn eftir að hún fæddist og höfum bara haft það mjög gott.

Meira síðar, það er kominn slatti af myndum inn á smugmugið, endilega kíkið :)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæ hæ og til hamingju thid øll med Ulfhildi.var ad tala vid pabba adan, thannig ad eg er fyrst nuna ad fretta af komu hennar;)
Vona ad thid øll hafid thad gott og allt gangi vel.Kv Heida
p.s rosalega flott nafn

margrét sagði...

Hæ Anna. Var að kíkja inn bloggið eftir langt hlé... Fullt af fréttum aftur í tímann;)Hafið það gott yfir hátíðarnar.
Jólakveðjur Margrét

margrét sagði...

Jæja, ekkert búið að gerast síðan í nóvember...:)
Hvað er að frétta??
Kannski ég kíki bara á smugmugið.