Ég er nú bara búin að vera í hálfgerðu tölvu-bindindi undanfarið, veit ekki hvað veldur, en hef greinilega haft nóg annað að gera en að vera í tölvunni... hvernig sem það getur nú passað... en mér finnst ekki ótrúlegt að það fari að breytast aftur.
En já það er sum sé margt og mikið að frétta síðan síðast var bloggað, ekki það að ég er nú en þá wonder woman sko 'beautiful princess' og allt það :þ En við fórum sem sagt til Íslands, eins og flestir vita, þarna í mars... og komum heim í síðustu viku... eða já það er víst tæpur mánuður síðan við komum heim aftur, en svo sem ekkert gerst á þeim tíma sem er í frásögu færandi held ég... en jú það eru jú nýbúnir að vera páskar og var Hekla í tilefni þess í fríi alla síðustu viku, Mía var nú bara á vöggustofunni á mánudeginum og þriðjudeginum (enda búin að vera lasin heima mestan part vikunnar á undan og enginn greiði gerður með að hafa hana í fríi) og við Hekla notuðum tækifærið og fórum á flakk á meðan, skoðuðum Danmarks Akvarium á mánudeginum og fórum svo í bíó á Ice Age 2 á þriðudeginum og skemmtum okkur ágætlega :)
Jæja nenni bara ekki aå skrifa meira núna, en lofa að fara að bæta mig!
þriðjudagur, apríl 18, 2006
fimmtudagur, mars 09, 2006
I'm Wonder Woman ;)
Your results:
You are Wonder Woman
Click here to take the Superhero Personality Quiz
You are Wonder Woman
| You are a beautiful princess with great strength of character. ![]() |
Click here to take the Superhero Personality Quiz
Jæja þá!
loksins smá blogg... ef það er þá einhver sem nennir að kíkja á þetta enn þá...
Hér hefur verið nóg að gera og plön mín um að liggja í leti eftir skil á verkefninu hafa orðið að engu. Mánudaginn 27 febrúar fékk Mía hina marg frægu hlaupabólu og varð ansi illa haldin, en komst loks aftur á vöggustofuna í gær, við mikinn fögnuð hennar og allra annarra :) Hún fékk alveg skriljón hlaupabólur og er að sjálfsögðu enn öll í skorpnuðum bólum, en þær sögðu á vöggustofunni að þær hefðu bara aldrei séð jafn margar hlaupabólur á einu barni. Það vildi nú samt svo heppilega til að hún fékk nær engar bólur í andlitið, ótrúlegt en satt. Hún var með hátt í 40 stiga hita alveg í 3 daga þegar hún var sem verst af þessu og það er óhætt að segja að það var ekki sofið mikið á þessu heimili þá vikuna... geysp! En blessað barnið var svo illa haldið að ég hef nú bara aldrei vitað annað eins, tja eða allavega var þetta sko ekki nærri svona slæmt þegar Hekla fékk hlaupabóluna, þá ný orðin 2 ára. Hekla fékk að mig mynnir eiginlega engan hita og var bara kát og hress og mig klæaði eiginlega meira en hana af því einu að horfa á hana, en Hekla er reyndar svo heppin að vera með ákaflega sterka og góða húð, en Mía er það hins vegar ekki :/
Ég er núna búin að fá verkefnið mitt samþykkt, með þessu óborganlega kommenti frá kennaranum: "your report was a pleasure to read" ;) hehehe... en hann var sum sagt bara hæst ánægður með skýrsluna. Nú bíð ég bara í ofvæni eftir prófskírteininu, en þeir eru búnir að lofa því eftir helgina.
Hörður byrjaði í skólapraktík 1 mars, en í gær fékk hann svo pláss hjá málara, ja eða fyrirtæki, sem lærlingur og byrjar þar á mánudaginn. Þeir verða fegnir að losna við hann úr skólapraktíkinni því hann er búinn að vera svo hræðilega duglegur að vinna að það hálfa væri nóg!
Svo er það bara Ísland eftir viku! Eftir nákvæmlega viku sit ég og kvelst í flugvélinni með dætrum mínum... en Hörður kemst víst ekki með því hann þarf jú að vinna í nýju vinnunni sinni :( Það er nú samt horfur á að hann komi og stoppi í tvær nætur helgina áður en við förum heim aftur :) en það kæmi sér ekki illa fyrir mig að hafa hann með á baka leiðinni með dúllurnar og allt okkar dótarí... það er ekki eins og maður ætli ekki að versla einhver kynstur af íslensku gúmmelaði ;)
En jæja, þeir sem vilja verða heimsóktir og ekki hafa fengið tíma hjá okkur ættu að fara að panta núna ;) Held ég þrufi að fara að setja upp dagskrá til að ég gleymi nú engum, þó þetta virðist rosa ríflegur tími núna verður hann það pottþétt ekki þegar á staðinn er komið...
En jæja þá verð ég að fara að redda vegabréfi fyrir Míu mús, já trassinn ég hugsaði fyrst af alvöru út í það í gærkvöldi :þ hringdi í sendiráðið áðan og þetta ætti að reddast með einhverjum bráðabyrgðapassa, en við þurfum ölla að mæta til að sækja um passann, ég, Hörður og Mía líka, með myndir peninga og pappíra upp á vasann.

miðvikudagur, febrúar 22, 2006
BÚhÚhÚin!!! HÍHíhíhíhí!!!!
Þá er ég búin að skila verkefninu :D
Vonandi bara að ég fáið það ekki í hausinn aftur :þ En prófessorinn ætlar að lesa þetta á næstu dögum og vonandi bara að hann verði sáttur, ekki það að ég á svo sem ekkert von á öðru :)
En já, það er samt ekki svo að það taki ekki alltaf ný verkefni við, en nú er Fastelavn á næsta leiti og var ég víst búin að lofa að sauma búning, svo ég þarf víst að fara að vinda mér í að klára hann! Komst líka að því í dag að það er fastelavnsfest á vöggustofunni á föstudaginn og ekki var ég nú búin að finna búning fyrir Míu... svo ætli ég verði ekki bara að nota efnið sem til er og sauma búining á hana líka...
Svo er ég líka að fara að drífa mig í að fara að taka myndir aftur, sko fyrir dpchallenge :) Setti inn eina í keppni sem byrjaði í nótt, byrjaði vel en einkunin er aðeins að dala núna byrjaði í 5.75 eftir 21 atkvæði en er komin niður í 5.21 :S ekki alveg nógu gott mál... en þetta er nú bara fyrsti dagurinn og aðeins 61 atkvæði enn sem komið er.
Já og svo er náttulega bara að fara að fínpússa CVið og fara að stúdera atvinnuauglýsingarnar!

föstudagur, febrúar 17, 2006
Þessir íslendingar...
Í dag hjóluðum við Hörður út í Lidl að versla, það hefði nú svo sem ekki verið í frásögu færandi, nema hvar ég stend og horfi á grænmetið bendir Hörður mér allt í einu á að Jóhannes í Bónus stæði þarna hinu megin... og jú, mikið rétt þar var lágvöruverðskonungur Íslands bara mættur á svæðið ásamt fríðu föruneyti, tja alveg hátt í 15 manns held ég bara. Hefði ég verið nýbúin að borða eitthvað vafasamt hefði ég nú talið þetta vera ofskynjannir ;) en þar sem svo var ekki gat ég haldið ró minni :þ En já, þeir gengu um alla búðina og stúderuðu hlutina og ræddu hátt og mikið saman á Íslensku, mér sýndist starfsfólkinu þarna nú ekki alveg vera farið að standa á sama, en þarna voru miklar spekúlasjónir í gangi, búðin borin saman við Bónus, vörurnar og verðlagið tékkað. Jóhannes var greinilega mikið að fræða fylgdarmenn sýna í þessum túr þeirra í Lidl og veltir maður nú fyrir sér hvort hann leggi það bara almennt í vana sinn að skipuleggja svona skoðunnarferðir í erlendar lágvöruverðsverslannir fyrir íslenska ferðamenn eða hvað eiginlega býr að baki... hmmm... Lidl er annars frekar ný búð hér, þýsk keðja, ekki ósvipuð Aldi bara í við betra úrval. Kannski maður megi búast við að hér opni Bónus á næstunni ;) En allavega við gerðum góð kaup og versluðum inn fyrir alla helgina og hjóluðum með það heim eins og venjulega.
fimmtudagur, febrúar 16, 2006
Jibbííí!!! Búin að missa tvær tennur ;)
Í dag fórum við Hekla til tannlæknisins og kom hún tveimur tönnum fátækari tilbaka!
Það var sko þannig að hún var komin með eina og næstum aðra fullorðins-framtönn í neðrigóm, en var hins vegar ekki búin að missa eina einustu barnatönn. Það leit satt að segja út fyrir að hún væri að breytast í hákarl, svo við ákváðum að drífa okkur til tannasa. Tannlæknirinn var líka á því að þetta væri nú einum of, þannig að hún ákvað að rífa bara þessar þrjósku, nánast rammföstu barnatennur úr. Það gekk nú barasta nokkuð vel, versta var bragðið af deyfingunni og dofinn þegar allt var afstaðið. En eftir hafa jagast soldið á tönnunum náði tannsa þeim nú út og fékk Hekla þær með heim í sérstakri kistu :) Svo er hún bara búin að vera á fljótandi fæði í dekri hérna heima síðan, en hún stóð sig sem sagt bara eins og hetja og er sko heldur betur ánægð með að vera búin að losna við hvorki meir né minna en tvær barnatennur á einu bretti :D

...og hér má sjá hina tannlausu... ja eða samt ekki svo tannlausu pæju ;)

mánudagur, febrúar 13, 2006
Jamm og jæja!
Er búin að vera rosa dugleg að skrifa skýrsluna fyrir verkefnið mitt núna upp á síðkastið, er nánast bara á undan áætlun og finnst ekki ólíklegt að ég skili bara fyrir 6. mars sem er settur skiladagur... þetta er nú ekki alveg normalt sko ;)
Hér eru annars allir þokkalega hressir, dæturnar eldhressar alveg, reita af sér brandarana eins og venjulega... ég var t.d. í gær eitthvað að brasa í tölvunni og Hekla sat við hliðina á mér og var á teikna og svo kom Mía og var byrjuð að príla upp fyrir aftan mig á stólinn sem ég sat á og eitthvað farin að hanga í mér, þá sagði ég við Hörð "Heyrðu, ég er í soldið slæmri stöðu hérna", þá sagði Hekla án þess að líta upp "Nú? ertu ný komin úr baði?", ég ætlaði alveg að springa úr hlátri... alls ekkert ný komin úr baði, en hún er náttulega fljót að tengja hlutina, ég sagði sko þessa sömu setningu einhvertíman um daginn þegar ég var ný komin úr sturtu (og hef sjálfsagt oft sagt) og Mía var eitthvað að flækjast í mér þegar ég var að reyna að klæða mig... En Mía er sko ekkert lamb að leika sér við þessa daganna... hún nánast dregur okkur orðið með sér á milli herbergja til að láta okkur gera eitt og annað og segir alltaf meira og meira, en það hjálpar sko þegar hún er að skipa fyrir!
En já, öll famelían nema ég fór í klippingu á mánudaginn fyrir viku, þarf að fara að setja inn myndir af dúllunum nýklipptu :)

mánudagur, febrúar 06, 2006
Bara smá Quiz
You scored as Engineering. You should be an Engineering major!
What is your Perfect Major? (PLEASE RATE ME!!<3) created with QuizFarm.com |
Fjúkk! Valdi greinilega rétt ;)
fimmtudagur, febrúar 02, 2006
klukkeddí klukk!
"Klukk!" sagði Erla mágkona mín, þetta virðist nú ekki svo erfitt á að líta, best að vinda sér í að svara þessu....
4 matarkyns sem ég held uppá:
- Svína "mörbrad" að hætti Harðar með kartöflum að hætti Harðar :)
- Pitsa með salati og dressingu ofan á að hætti útlensku pitsumannanna :)
- Sunnudagsmáltíð í Kvistabergi 9B
- Íslensk Lifrarpylsa (as allways ;)
4 staðir sem hef unnið á:
...hmm.. hvenær var ég nú í vinnu síðast...
- Ríkisbókhald
- Hagkaup
- Hótel Saga
- Fiskvinnslan Sjóli
4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur:
- Forrest Gump - alltaf jafn góð :)
- Hair - skemmtileg tónlist
- Sódóma Reykjavík
- Four weddings and a funeral - æ
4 staðir sem ég hef búið á:
- Kagsåkollegiet, Herlev, Danmark
- Kvistaberg, Hafnarfirði
- Njálsgata, Reykjavík
- Wood Street, Manly, Syndey, Australia
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríi:
- Lalandia, dk
- Neskaupstaður
- Amsterdam
- Algarve, Portúgal
4 sjónvarpsþættir sem falla að mínu lundafari:
- LOST!!!
- Desperate Housewifes
- Unge mødre, heimilda þáttur um ungar danskar mæður
- Tv avisen... fréttirnar... er það ekki sjónvarpsþáttur ;)
4 staðir sem ég vildi vera á núna:
- Hérna heima hjá mér fyrir framan tölvuna :)
- Á sólarströnd, er soldið kalt!
- Eiginlega bara uppi í rúmi samt... klukkan er orðin soldið margt til að vera annarsstaðar á fimmtudagskvöldi!!!
4 síður sem ég skoða oft- ekki blogg:
... væntanlega hvorki blogg né umræður þá...
- mbl.is
- dmi.dk - veðrið
- dpchallenge.com
- campusnet.dtu.dk
4 bækur sem ég hef lesið oft:
- Bláa kannan (skil hana samt ekki enn...)
- Týra og dýrin í sveitinni
- Góða nótt Bóbó bangsi
- Allar herramanna bækurnar sem hafa komið út á íslensku (svo ég viti til)
En já... ég hef held ég aldrei lesið neina "fullorðins" bók oftar en einu sinni... bara aldrei nokkurtíman held ég, tja eða allavega ekki í heild sinni... hef náttulega oft lesið í ýmsum námsbókum og uppflettiritum oftar en einu sinni, en aldrei meira en eina klausu þá :þ
Jæja þá er þetta bara komið held ég :) og þá er sum sé komið að mér að klukka einhverja tvo... og það verður... klukk! Margrét og klukk! Fríða...

mánudagur, janúar 30, 2006
Litla stubbastelpan
Þá erum við loksins búin að mæla og vigta litla krúttið... reyndar fyrir nokkrum dögum, gleymdi bara að ég var ekki búin að segja frá því :þ
En hún er alveg jafn mikill stubbur og við héldum, en hún er sum sé 12,0 kg og rétt tæplega 83 cm, 18 mánaða gömul. Gat náttulega ekki annað flett upp hveru stórt eldra eintakið var á þessum sama tíma punkti, en hún var 11,7 kg og 87,5 cm!!! Sem sagt litla tröllið er 300 gr þyngri en næstum 5 cm lægri! En líkamsbyggingin er líka ger ólík, Mía er svo miklu þéttari og sterkari, alls ekkert feit samt, á meðan Hekla hefur alltaf verið ákaflega löng og grönn, þó ég mundi nú samt ekki segja að hún væri neitt hræðilega mjó.
En margur er knár þótt hann sé smár og er hún Mía litla þar engin undantekning ;) Setti inn nokkrar myndir teknar í síðustu viku af henni príla upp og niður af tómum pappakassa, alveg típískt fyrir hana sem prílar sí og æ alls staðar :)
En já hún er alltaf að segja fleiri orð hérna heima, talaði við Randý fóstruna hennar fyrir helgi og þá var hún með áhyggjur af að kanski væru rörin eitthvað að klikka í eyrunum hennar því henni finndist hún tala minna núna síðan eftir jól. Það merkilega er að hérna heima talar hún miklu meira síðan um jól! En sennilega er þetta eitthvað tengt því að vera tvítyngdur, því hún talar náttulega íslensku hér og dönsku þar (ja, eða þannig ;). En alla vega bara um helgina byrjaði hún að segja "sís" = ís, en það var sko ís í eftirrétt á laugardaginn ;) og "míía mad" = meiri mat alveg á fullu við matarborðið þegar hún klárar af diskinum sínum, "ætt essu" = hættu þessu við Heklu þegar hún er eitthvað að ráskast með hana :þ og sagði líka í fyrsta skipti svo ég heyrði "gó" = skó, en það gerði hún oft og mörgum sinnum þegar hún vildi fara í uppáhalds skónna sína...
En varðandi uppáhalds skónna hennar, þá á hún hvíta sandala sem eru núna í sérlegu uppáhaldi... keypti handa henni nýja svona mjúka skinn-inniskó fyrir helgi því hún var vaxin upp úr sínum gömlu og mér fannst sniðugt að hún ætti líka svona mjúka skó svo hún væri ekki allan daginn í sandölunum. En það fannst henni ekki... hún vill helst alltaf vera í sandölunum og verður alveg vitlaus ef við reynum að setja hana í nýju skónna í staðinn. Önnur sérviska er líka sú að hún virðist sofa betur í sokkum! Byrjaði um daginn að segja hana í svona kanínulopasokka (sem hún fékk frá ömmu í Hveró) áður en hún fór að sofa. Núna er það bara þannig að ef sokkurinn dettur af þegar hún er að reyna að sofna eða jafnvel um miðja nótt, þó æpir hún og gólar þangað til hún er sett í hann aftur, en þá er allt í besta lagi :) En það jákvæða er að hún virðist sofa mun betur í rúminu sínu í þessum sokkum og þarf því sjaldnar að koma upp í til að hlýja tásurnar sínar hjá mér :) Alveg magnað!

miðvikudagur, janúar 25, 2006
Nýjar myndir
Lúsastríð og ný gereyðingarvopn
Í gær var ég í mestu rólegheitum að fara að lesa þessa fínu grein sem ég var búin að finna fyrir verkefnið, ég lagðist upp í sófa og byrjaði að lesa, en svo fór ég að klóra mér í hausnum... ekki af því að ég væri í einhverjum vandræðum með lesturinn, heldur klæjaði mig eitthvað svo í hausinn. Var reyndar búið að klæja svolítið í svona 3 daga, en hafði skrifað það á að þarna væri gamla "góða" flösuexemið að taka sig upp vegna kulda og mikillar inniveru, en var reyndar 2 dögum fyrr búin að hugsa hvort þetta væri nokkuð lús en afskrifaði það eftir að hafa leitað í hausnum á Heklu án þess að finna nein merki þess að hún væri með lús ;) En ákúrat þarna fattaði ég allt í einu að ég var nú bara eiginlega ekki með neina flösu!?! Svo þá datt mér það snjallræði í hug að tékka á lús í sjálfri mér... náði í lúsakambinn og viti menn, fullt af stórum sprækum lúsum :/ Þannig að já, ég er ekki enn búin að lesa greinina því í gær var ég bara í því að kemba á mér hárið og eitra fyrir lús. Taldi að gamni mínu kvikindin sem komu úr hausnum á mér og reyndust þar leynast ein 40 kvikindi, sem sagt heill ættbálkur alveg! Merkilegast finnst mér þó að enginn annar í fjölskyldunni reyndist hafa eina einustu lús í hausnum, ekki einu sinni Mía sem er í ansi nánu sambandi við hárið á mér alla daga. En það er víst satt sem þeir segja að lúsin fer ekki tilneydd úr góðum haus og er minn sjálfsagt ekki af verri endanum, stór og rúmgóður með miklu þykku og notalegu hári :þ
Það óhuggulegasta er reyndar að ég hlýt að vera búin að vera með þetta í hausnum síðan Hekla fékk lúsina um jólin, sem sagt allavega 3 - 4 vikur! Því fyrst stelpurnar eru ekki með þetta núna er bara ekki um neinn annan stað að ræða sem ég get hafa náð mér í svona nokkuð!
En ég fór á netið að leita að lúsakömbum í gær, það er nefnilega alls ekki sama hverslags lúsakamb maður notar, þessir gömlu venjulegu eru alveg vita gagnslausir, en það eru til sérstakir kambar sem heita 'Bug buster' og þeir virka mjög vel. Til merkis um það var ég búin að kemba Heklu með venjulegum kambi í síðasata lúsatilfelli og fann ekkert, en tók svo einn svona kamb, hálf tannlausan, og fann lús í fyrstu tilraun! Já og það er heldur ekki óhætt að stóla á lúsasjampóið því það eru margar lýs ónæmar fyrir því. En allavega þegar ég var að leita að þessu fann ég nýjasta lúsavopnið, Lusesnapperen :) , en það er alveg snilld! Það er svona unit sem maður festir á ryksuguna og svo bara sogar maður lýsnar úr hausnum, einfalt og fljótlegt og er ég nú þegar búin að panta þessa græu og bíð nú spennt eftir póstinum :)

laugardagur, janúar 21, 2006
Prins Christian Valdemar Henri John til Danmark
Jæja þá erum við búin að vera að horfa á konunglega skírn í morgun, gátum nú ekki farið að missa af því, og fékk drengurinn nafnið Christian Valdemar Henri John :) Ég sé það núna að ég hef ekki skírt mín börn nærri því nógu mörgum nöfnum :þ En þetta gekk voða vel hjá þeim og Fredrik táraðist náttulega og allt ;) Yndislegt allt saman...
En hér er allt í snjó og svona hálf kalt, spurning hvort maður hætti sér kanski út úr húsi eftir hádegið.

föstudagur, janúar 20, 2006
"islag" eða "isslag"?
Jæja hérna er allt aldeilis ísað, ekkert flogið á Kastrup og brúin lokuð allt út af þessum ísslag :þ Hekla hélt að þeir væru að tala um ÍsLAND í fréttunum, en svo var ekki. Fyrir þá sem vilja vita munin á dönsku orðunum "islag" og "isslag" er hægt að lesa allt um það hér!
Hér eru annars allir hressir, höldum okkur sem mest innandyra í þessum ísakulda, ekkert sérlega aðlaðandi að hjóla, vindurinn ansi kaldur og svo er líka þokklega hált. Ég fór með Míu í bólusetningu á miðvikudaginn, hefur staðið lengi til en þetta var sum sé 15 mánaða bólusettning gegn rauðum hundum og myslingum og hettusótt, en það gekk vonum framar, hún horfði bara dáleidd á lækninn stinga sig í lærið, en setti svo upp skeifu þegar hann sprautaði þessu í hana en það svíður víst, en hún var hörð af sér og skældi næstum ekkert heldur var bara með þessa rosa skeifu í smá tíma. Hún kann sko að haga sér þegar hún er ekki heima hjá sér og er ekkert að skæla yfir smámunum ;) En svo fékk hún smáköku í verðlaun hjá lækninum og þá var auðvitað allt í góðu aftur :) Já, hann er alveg einstaklega vingjarnlegur og barngóður læknirinn okkar og sem betur fer því hér fer maður alltaf til síns fasta heimilislæknis. En já, þá er Mía laus við frekari bólusetningar þangað til hún verður 5 ára, en hún fer næst í skoðun 2 ára og svo árlega fram að skóla aldri. Hún var nú hvorki vigtuð né mæld, enda ekki gert ráð fyrir því, en hún er allavega orðin 12 kg samkvæmt okkar vigt og ég þarf endilega að reyna að mæla hvað hún er orðin löng... finnst hún frekar stutt litla krúttið, en það er nú kanski líka bara samanburðurinn við stóru systurina sem er og hefur alltaf verið mjög löng!
En já fyrst ég er farin að tala um Míu verð ég nú að segja aðeins frá því að hún er nú alltaf að segja meira og meira... aðallega "meira" reyndar og þá við matarborðið :) en hún segir reyndar "míía" þegar hún vill meira, en það er náttulega bara danska. Þegar hún segir Mía (eins og í hún sjálf) þá segir hún samt oftast "Ía" :) Svo segir hún eitthvað sem líkist "ólk" = mjólk, frekar óskýrt, en skilst þó og svo segir hún "bau" eins og í brauð og "boðða" = borða og "at" = mat og nýjasta og krúttlegasta orðið hennar er "búba" = súpa = drekka :) Já svo segir hún líka "nei" og "ní", en það eru eiginlega uppáhalds orðin þessa daganna og koma oftast mörg saman "nei nei nei" og "níííí" mjög ákveðið :)
Svo er hún er núna aðeins að byrja að setja saman tvö og tvö orð, sagði fyrir nokkrum dögum síðan "míía bau", en já hún talar nú samt ekki um margt annað en mat enda mjög mikið fyrir mat :)

mánudagur, janúar 16, 2006
LOST!!!
Jæja þá er lost loksins byrjað aftur :) og er ekkert að klikka, eina sem er alveg að gera mig brjálaða eru allar helvítis auglýsingarnar inn í þættinum, úff... Fyrsta sísonið var sínt á tv danmark, það er stöð sem maður þarf ekki að borga fyrir og þar voru og eru engar auglýsingar inn í miðjum þáttum, bara á milli. Núna er þetta sýnt á kanal 5 og það er sko stöð sem maður borgar fyrir að hafa aðgang að, en núna eru mörg þvílíkt lööööng auglýsinga hlé í þættinum. Ég verð nú að segja að ég skil bara ekki hvernig er hægt að bjóða manni upp á þetta! En ég tek það fram að ég mundi að sjálfsögðu ekki styðja þetta kjaftæði, (OG missa af lost fyrir vikið!) nema af því Hörður tekur ekki annað í mál vegna fótbolta...
En já ég bíð spennt yfir að horfa á allar auglýsingarnar aftur næsta mánudag :þ

fimmtudagur, janúar 12, 2006
Depot rum!
Best að halda árfam að vera dugleg að blogga!
Við vorum svo heppin í dag að okkur var úthlutuð geymsla :) erum búin að vera á biðlista síðan við fluttum hérna á kollegíið sem var í apríl 2004. Þetta er sum sé læst kompa í einum kjallaranum hérna á svæðinu þar sem maður getur geymt eitt og annað, kostar ekkert nema maður þarf að leggja út 500 dkr í tryggingu, sem maður fær til baka þegar maður skilar lyklunum og tómri geymslunni þegar maður flytur af kollegíinu. Eftir að við fluttum í raðhúsið höfum við ekki haft neina geymslu utan íbúðarinnar nema hjólaskúrinn sem allt myglar í, svo þetta ætti að gera aðeins rýmra hér í íbúðinni :)
En já þetta var samt allt soldið dularfullt mál og ég er farin að halda að ég geti gert ýmislegt með hugarorkunni einni saman!!! En þannig er sko mál með vexti að þegar við fengum raðhúsið var ég búin að vera að spá í það daginn áður hvort við færum nú ekki bráðum að komast í raðhús og ákvað meira að segja að hengja upp eina gamla hillu sem hafði verið á leiðinni upp á vegg lengi, og sagði sem svo að ef ég hengdi hana upp fengjum við örugglega strax raðhús (og þyrftum að fylla upp í götin), en það varð svo raunin :) Í gær var ég svo að lesa fyrir verkefnið, fór allt í einu að spá í þessi geymslumál og rauk upp og rak Hörð úr tölvunni til að kíkja á hverjir væru fyir ofan okkur á geymslulistanum sem var sendur út fyrir u.þ.b. ári síðan (þá vorum við nr. 19), en ég þekkti ekki til neins þarna svo ég var engu nær... fór samt að spá í hvað það væri nú hentugt að fá geymslu fyrir jólaskrautið sem við vorum ný búin að pakka saman og allt hitt draslið sem við vorum búin að stappa hérna inn í fataherbergið fyrir framan baðherbergið, var samt ekki sérlega bjartsýn þar sem við vorum bara nr. 14 í september... En viti menn í dag kom tilkynning um að við værum búin að fá geymslu :) Ég er greinilega í mjög góðu andlegu sambandi við innspektorinn og fólkið þarna á skrifstofunni ;) Þarf að fara að þróa þetta eitthvað nánar og nota þetta til að láta einhvern ráða mig í vinnu þegar ég klára verkefnið ;)

þriðjudagur, janúar 10, 2006
Bókadómar og kuldi
Þá er ég búin að lesa Vetrarborgina hans Arnaldar. Hún var nú þokkalega spennandi á köflum eins og hans fyrri bækur allar, en ég mundi nú samt ekki segja að hún væri hans besta hingað til. Kanski er maður bara farinn að búast við svo miklu, en það voru ákveðin atriði sem mér fannst hefðu mátt vera öðruvísi... má ekki segja neitt samt svo ég skemmi ekki fyrir þeim sem ekki hafa lesið hana enn. Engu að síður góð bók og ég mæli með henni :)
En þessi vetrarlega bók var svo sem veðurfarslega séð mjög í stíl við veturinn sem ríkir hérna, en það er búinn að vera skíta kuldi, ekkert grín fyrir okkur hjólreiðafólkið! En það á víst eitthvað að fara hlýnandi næstu daga. Það er nú samt öruggast að halda sig sem mest inni við þessa daganna, varð svo heiftarlega kalt á leiðinni heim í gær að ég var ekki almennilega búin að jafna mig fyrr en á hádegi í dag og Hörður er líka búinn að vera eitthvað slappur. Er nú samt öll að koma til og byrjaði meira að segja að finna lykt núna seinni partinn eftir 2 vikna nefstíbblu.
Stelpurnar eru annars bara hressar, Mía er undanfarið farin að segja NEI af miklum krafti, en í dag var hún öll í því að hrista bara hausinn eða kinka kolli ef ég spurði hana að einhverju, án þess að segja nokkuð :) Hún er alveg milljón :) Hekla er alltaf á fullu í skólanum, loksins farið að kenna eitthvað af viti eftir allt jóla jóladæmið sem tók allan desember og í dag var stafurinn p tekinn fyrir. Hekla er núna mest að spá í að vera froskur á fastelavns/öskudaginn, svo nú verð ég að fara að redda mér grænu efni og sauma froskabúning :) og vona svo bara að hún skipti ekki um skoðun, en það er ansi stutt síðan hún ætlaði að vera banani!

mánudagur, janúar 09, 2006
Snjómoksturs bestun
Jæja, ég fór að tala við prófessorinn í morgun og er komin með verkefni til að klára þessa síðustu punkta mína :) Nú er bara að hefjast handa, ætla að skrifa skýrslu, eða svona 'review' um 'The snow removal problem', þeas. snjómokstursvandamál, en það snýst (eins og ykkur kanski grunar) um að skipuleggja snjómokstur í borgum og bæjum á sem hagkvæmastan hátt. Snjómokstur felur í sér ýmsa þætti sem hægt er að besta og ætla ég að fjalla um þá í skýrslunni og fara svo nánar í lausnaraðferðir á einhverjum tilteknum þáttum. Þetta vandamál er mjög ofarlega á baugi í dag, en í þessum geira má spara mikla peninga með bættri skipulagningu, en skipulagstæknin ku ekki hafa þróast eins hratt og önnur tækni þessu tengd s.s. tölvur og tæki. Ekki það að ég hafi hugsað mér að bæta úr því prívat og persónulega ;) en þetta verður áhugavert viðfangsefni.
Hér er annars allt þokkkalegt að frétta, hálf tómlegt hérna inni eftir að risa stóra jólatréð var borði út í gær, en meira pláss :) En jæja, þá er bara að fara að hella sér út í verkefnið áður en Mía kemur heim.

miðvikudagur, janúar 04, 2006
Lestur góðra bóka
Jæja þá er ég búin að vera að lesa um jólin, ég les nú ekki sérlega hratt og fæ nú ekki sérlega mikið næði til þess en er þó búin að lesa heila bók síðan rétt fyrir jól, og til að kóróna afrekið var bókin á dönsku! En ég fór að lesa Harry Potter og verð nú bara að segja að ég kann vel að meta hann og er að auki mjög ánægð með hversu vel mér gekk að lesa hann á dönsku, held ég hafi í allt flett upp einhverjum fimm orðum í orðabókinni, en var það nú meira bara svona til gamans ;) Svo nú er ég sko bara spennt að lesa bók númmer tvö :)
Ekki samt jafn spennt og að lesa bókina sem ég fékk í jólagjöf frá tengdaforeldrum mínum, en það er nýja bókin hans Arnaldar Indriðasonar, Vetrarborgina, sem kom út núna fyrir jólin. Ég hef lesið allar hans bækur fram að þessu og verð að segja að þær hafa allar verið algjör snilld bara. Þessi er því búin að vera að bíða eftir mér eins og einskonar sparí konfekt kassi, enn í plastinu, því ég ákvað að ég yrði nú að klára Harry fyrst fyrst ég var byrjuð á honum og hann var jú ágætlega spennandi. En jæja þá er ég farin upp í rúm að lesa :)

Gleðilegt ár 2006
Jæja þá er enn eitt nýtt árið hafið, byrjaði á fullum krafti hjá okkur strax 2. janúar með skóla, skóla og vöggustofu, en Hörður er sá eini í þessari familíu sem enn er í jólafríi. Stelpurnar voru nú bara glaðar og kátar með að byrja aftur í skólanum/vöggustofunni og eru bara búnar að vera bísna hressar það sem af er árinu. Sjálf er aumingja ég búin að vera að drukkna í kvefi, en það er nú heldur á undanhaldi.
Áramótin hjá okkur gengu þannig fyrir sig að við borðuðum kvöldmat í seinni kantinum, Mía greyið var búin að vera heldur óheppin þarna seinni partinn, byrjaði á að detta í gólfið með miklum skell þegar hún var að klifra upp úr rúminu sínu yfir í okkar (sem hún annars venjulega gerir slysalaust), þar kom ein kúla... stuttu síðar var hún eitthvað að vesenast á gólfinu fyrir neðan sófan þar sem Hekla sat og var að horfa á sjónvarpið, Hekla tók eitthvað ekki eftir henni og hlammaði sér einhvernveginn á hana þannig að hún skall með andlitið í gólfið með þeim afleiðingum að eftivörin sprakk og blóð flæddi í allar áttir... því líkt drama alveg. Litla dúllan var nú þó nokkuð lengi að jafna sig á því og Hekla var nú heldur sjokkeruð líka. Stuttu efir það settumst við við matarborðið og fengum okkur köku, þá tók Mía gleði sína á ný og var svo kát að hún rann niður úr stólnum, rak hausinn í borðið og endaði undir því... Það sem eftir var dags var hún höfð undir sérstöku eftirliti!
En allaveg við borðuðum íslenskt lambakjöt í fyrsta sinn það árið á gamlárs, það var nú ágætt af því sem var kjöt... en þetta var heldur feitt stykki... Fyrir og eftir matinn var svo sprengdur ágætis slatti af ýmiskonar innibombum og Hekla fór út í garð með stjörnuljós, sem reyndust þó ekki vera hefðbundin stjörnuljós heldur einhver ískurljós sem brunnu upp á nó tæm. En já eftir desertinn var svo haldið á brennuna, en hún hófst klukkan 9, þær systur voru nú báðar nokkuð hrifnar af brennunni og Míu fannst nú flugeldarnir líka mjög áhugaverðir, en Heklu er aftur á móti orðið mein illa við flugelda í seinni tíð, en fékkst til að fara út þegar hún var búin að setja upp viðeigandi flugeldagleraugu :)
Við vorum svo komin inn afur um 10 leitið þar sem ég var að drukkna í kvefi, Mía orðin dauð þreytt og Hekla fegin að komast í skjól frá flugeldunum. Míu var þá bara skellt í bælið og við hin fórum að spila, en Hekla var svo sofnuð um hálftólf leiðið. Þannig að við Hörður horfuðum nú bara á flugeldanna út um gluggan á miðnætti. En þetta voru nú bara bísna hugguleg áramót hjá okkur, en þetta munu vera þriðju áramótin sem við eyðum hérna í danaveldi, ótrúlegt hvað tíminn líður!
Er núna búin að setja allar myndir teknar á jólum og áramótum inn á myndasíðuna okkar í albúmið jól 2005 :)

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)