föstudagur, ágúst 19, 2005

1 árs skoðun Míu Malínar

Jæja þá fórum við með dúlluna í 1 árs skoðunina í gær og kom hún nú bara vel út úr því. Hún vó nákvæmlega 10 kg og mældist 79 cm á hæð (mælt standandi), hún er alveg að halda sinni kúrfu í lengd, en er búin að hrapa aðeins í þyngd og er núna alveg í meðaltalinu. En hún samsvarar sér mjög vel svo það er ekkert til að hafa áhyggjur af. Læknirinn var annars bara mjög ánægður með hana, hvað hún er orðin dugleg að labba og hreyfiþroskinn greinilega í góðulagi og rétt rúmlega það! Þegar ég fór svo að kvarta við hann um að hún segði nú ekkert af viti, þá fór hann að kíkjá í eyrun á henni og mæla eitthvað og svona og prentaði svo út eitthvað kassarit á miða og lét mig hafa og sagði mér að láta eyrnalækni kíkja á hana því hún gæti verið með einhvern vökva í eyrunum, svo ég er að fara að panta tíma. Já og svo fékk hún náttulega sprautu, það gekk eins og í sögu, hún horfði á lækninn sprauta þessu í lærið á sér og var bara alveg salla róleg á meðan og grét ekkert :)

Það gengur alltaf betur og betur í vöggustofunni, vona bara að það gangi eins vel í dag, en Randý fóstran hennar Míu var lasin í dag svo hún verður að gera sér hinar að góðu.

En jæja ætli maður fari ekki bara að drífa sig í sólbað á þessum síðasta degi sumarfrís hjá mér, en á mánudaginn byrja ég aftur á dösnku námskeiðinu, tek level 2 núna á næstu 3 vikum og þegar það er búið verður skólinn kominn á fullt, svo ætli ég fresti ekki frekari dönsku námskeiðum þar til eftir þessa síðusu önn...

Engin ummæli: