fimmtudagur, ágúst 11, 2005

Allra fyrsti skóladagurinn!!!

Jæja, þá er hún Hekla Sól okkar byrjuð í skóla! Mættum í morgun klukkan 8:25 út á skólarútu stoppið og tókum rútuna í skólan. Mía var bara á vöggustofunni á meðan og við foreldrarnir fylgdum Heklu í skólan fyrsta daginn. Það byrjaði á því að við fórum í kantínuna, þar sem "venskabskammerattarnir" úr 3 bekk tóku á móti hverju barni fyrir sig. Allir sem eru að byrja í börnehaveklassa fá nefilega einn "vin" úr 3ðja bekk sem á að passa svona aðeins uppá þau í frímínútum og hjálpa þeim að aðlagast aðstæðum þarna í skólanum. En já þarna var sem sagt bara byrjað á að kalla alla upp hvern fyrir sig, þar sem venskabs félaginn tók á móti viðkomandi. Sumir voru feimnir og þurftu að fá mömmu eða pabba til að leiða sig upp þegar nafnið þeirra var kallað, en Hekla var hvergi smeik og stökk af stað um leið og hennar nafn heyrðist :)
Svo var haldið inn í stofurnar, en það eru sko 2 bekkir A og B og Hekla er í A. Þar fann hún svo sætið sitt, en ég mætti á foreldrafund í gærkvöldi þarna og fékk þá það verkefni að búa til skilti með nafninu hennar sem stóð á borðinu hennar. En já ég tók myndir af þessu öllu og reyni að koma þeim inn sem fyrst. En jæja, þegar þarna var komið sögu var komin tími til að foreldrarnir færu að koma sér af stað og kennslan að hefjast.
Við fórum þá bara heim og klukkan 12 fórum við svo upp á götu að taka á móti Heklu úr skólarútunni... en þegar rútan kom var þar engin Hekla... og við fréttum að Hekla og Birta hefðu farið úr rútunni upp hjá Nettó... ég auðvitað hljóp á stað eins og fjandinn væri á hælunum á mér, og Hörður líka og eftir góðan sprett (upp brekkuna!) fundum við þær í hliðargötu og tvo danska stráka líka sem áttu líka að fara á Solsikken. Hekla var alveg miður sín því hún rataði ekki heim, en hún vissi heldur ekki að rútan myndi stoppa þarna upp frá fyrst... Ég segi nú bara að það var eins gott að við fórum að taka á móti henni því foreldrar hinna flökkukindanna voru ekki þarna og enginn frá Solsikken heldur... en ég er núna búin að fara og fá að vita það að þarna verið einhver að sækja þau á morgun, en ætli við förum ekki líka til öryggis þar sem daman er nú ekkert voða hrifin af þeirri tilhugsun að taka rútuna aftur heim, en ætlar nú samt að láta sig hafa það núna eftir að vera búin að fá nákvæmar upplýsingar um hvenær hún eigi að fara úr.
En að frá talinni þessari háskalegu heimferð var dagurinn mjög góður og gaman í skólanum. Þau fengu úthlutað verkefna bók og gerðu fyrstu blaðsíðuna, hlustuðu á sögu, fengu nammi!!! og borðuðu nestið sitt og svona eitt og annað. Á morgun er svo leikfimistími, mjög spennandi allt saman :)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með fyrsta skóladaginn. Og fengu þau NAMMI! Mér finnst það svolítið svakalegt.