föstudagur, ágúst 26, 2005

Skólamyndataka

Jæja þá fór Hekla í myndatöku í skólanum í gær, ég pantaði auðvitað stóran myndapakka þe. að fá myndir af henni einni í öllum stærðum, ég pantaði myndir í svarthvítu og það var meira að segja hægt að velja bakgrunnslit, hvort maður vildi ljósan eða dökkan bakgrunn! Svo spáði ég náttulega vel í það í gærmorgun að greiða barninu og klæða hana í myndatökuvænleg föt...

En já, það væri nú ekki í frásögu færandi, nema af því að þegar Hekla kemur heim úr skólanum er hún með gamlan sólhatt af sér á hausnum! Hatt sem Mía er farin að nota og Hekla tók úr vagninum þegar pabbi hennar fylgdi henni út í skólastrætó í gær, en Mía kom með og fór svo á vöggustofuna á eftir... OG svo segir hún okkur stolt frá því að hún hafi sko verið með hattinn í myndatökunni :D og ekki bara það heldur að þá fór hún víst heldur ekki úr gallajakkanum í dag... og var því líka í honum á myndinni!

Það verður spennandi að sjá hvernig þessar myndir verða, þær verða í öllu falli eitthvað skrautlegar, alveg í stíl við karakter fyrirsætunnar :)

Engin ummæli: