Jæja, þá er ég farin að spá í að fara að blogga aftur :)
Er að vinna í nýju útliti á síðunni, endilega fylgist með hvað gerist :þ
sunnudagur, september 30, 2007
sunnudagur, júlí 29, 2007
Ferðasaga
Jæja þá erum við komin aftur heim eftir 2 vikna Íslandsreisu, alltaf gaman að heimsækja landið kalda og alla famelíuna og vinina, náðist reyndar ekki að hitta alla að þessu sinni þrátt fyrir stíft prógram en svona er þetta nú bara.
Ýmislegt náðist nú samt. Þetta byrjaði brösuglega, en ætlunin var að fljúga með icelandexpress að kvöldi miðvikudags kl. 21:30 en það var seinkun... fórum ekki í loftið fyrr en um 5 leitið um nóttina/morguninn... Fengum 100 dkr í sárabætur á mann í formi ávísunnar á mat á flugvellinum, æðislegt!! Þetta var nú samt ekki eins slæmt og það hefðfi getað verið því við fundum ágætis stað í fjölskylduhorni flugvallarins þar sem var sjónvarp og allskonar dót og grjónapúðar/dínur á gólfinu svo við gátum hvílt okkur meðan við biðum. Reikna nú samt með að við reynum að fljúga með iclendair næst...
En jæja, við byrjuðum ferðalagið svo á að keyra alla leið til Reyðarfjarðar á föstudeginum, því lík harka, og var helginni eitt í að skoða austfirðina og heimsækja austfirðinga. Keyrðum svo aftur í bæinn á mánudeginum og kláruðum hringinn.
Svo var ráðist í að hreinsa út slatta af gamla draslinu okkar sem verið hefur heima hjá foreldrum mínum síðan við fluttum út (og jafnvel lengur), held bara að ég hafi varla hent nokkrum hlut frá 10 ára aldri þar til við fluttum hingað til dk fyrir 4 árum síðan... en sú afstaða hefur heldur betur breyst og fékk góði hirðirinn að njóta góðs af því :)
Miðvikudaginn 18. júlí átti Hörður svo stórafmæli þar sem hann varð hvorki meira né minna en 40 ára gamall! Ótrúlegt alveg, held hann hafi fengið 3 grá hár í tilefni dagsins. En við héldum að sjálfsögðu í Hveragerði þann daginn þar sem móðir afmælisbarnsins var búin að töfra fram glæsilegar jafnt sem gómsætar veitingar! Smjatt! :)
Vorum svo í Hveró fram að helgi, Hörður tók til hendinni og málaði soldið hjá mömmu sinni og við mæðgur heimsóktum að sjálfsögðu Margréti vinkonu mína. En skruppum svo í sumarbústaðaferð með gömlu góðu vinkonum mínum og fjölskyldum á föstudeginum og gistum svo í sumarbústaðnum hjá mömmu og pabba nóttina eftir það. Á sunnudeginum var svo haldin fínasta afmælisveisla fyrir Míu krúttið hjá Ömmu í Hveragerði, þar sem hún varð 3 ára þann daginn. Amman bakaði hina glæsilegustu afmælisköku sem ég hef séð held ég bara (verð að muna að setja inn myndir!) og fékk ég uppskriftina til að reyna að leika þetta eftir á næsta afmæli Heklu... hehe, gæti þurft að senda eftir Ömmunni til að það náist ;) Mía var þvílíkt sæl og glöð með þetta allt saman, og þá sérstaklega kökuna! og fékk auðvitað margar góðar gjafir líka.
Á mánudeginum var svo haldið upp í Borgarnes að heimsækja Langömmu Grétu og því næst var förinni heitið aftur í Harfnarfjörðinn. Á þriðjudeginum heimsóktum við svo Steinunni og Evu Lín og litla sæta gaurinn þeirra hann Benjamín Ágúst og auðvitað alla hina ættingjana í Garðinum og um kvöldið komu svo pálmi brósi og famelía í mat í Kvistabergið svo við náðum aðeins að hitta þau. Gunna frænka kom svo í heimsókn á miðvikudagsmorgninum og var svo lagt af stað á völlinn um hádegið. Flugið heim var sem betur fer á tíma, nokkuð nákvæmlega bara.
En já, við eru búin að vera í afslöppun hérna síðustu daga og á morgun hefst svo prógrammið á ný, Hörður að vinna, Mía í leikskólann og Hekla á sundnámskeið og ég bara að aðlaga Míu og sendast með Heklu :) og aldrei að vita nema ég bloggi meira eða jafnvel setji inn myndirnar úr ferðalaginu ef mér tekst einhverntíman að koma þeim inn í tölvuna... er búin að vera að bíða eftir þeim síðan ég byrjaði að skirfa...

sunnudagur, júní 10, 2007
Jæja, hér er sumarið aldeilis komið! Svoleiðis steikjandi hiti og sól hér þessa daganna, úff... eiginlega aðeins of mikið af því góða!
Erum annars bara þokkalega hress. Systurnar bara kátar og gengur vel í skóla og vöggustofu. Mía er reyndar um næstu mánaðarmót að far a að byrja á leikskóla, hún er jú nefnilega að verða 3 ára í júlí svo það er víst alveg kominn tími á það. Hún er annars söm við sig og uppátækjasemin óbreytt. Eitt mesta sportið hjá henni þessa daganna er að klifra upp í efrikojuna hennar Heklu, það er reyndar engin stígi þangað upp og á sú stóra stundum hálf erfitt með að komast þetta, en Mía er sko orðið ekki í minnstu vandræðum með að vinda sér þarna upp... á samt enn þá í smá basli með að komast niður ;) Í morgun þegar lötu foreldrarnir veltu sér fram úr rúminu var sú stutta svo komin ekki bara upp í koju heldur upp á hillu sem er upp við loft þarna við hliðina á kojuni, búin að losa einhvernvegin niður ljósið í loftinu og guð má vita hvað... eins gott bara að hillan hélt! er ekki viss um að svona IKEA vegghillur eigi að þola svona mörg kíló... En Mía var bara hin ánægðasta og brosti sínu sára saklausa brosi eins og venjulega með einhvern bláan lit sem hún hafði náð í á bæði andliti og höndum :S

mánudagur, maí 21, 2007
Gleðilegt sumar!!!
Jæja þá er barasta komið sumar :) Tíminn flýgur áfram hérna hjá okkur ;)
Sólin skín og allt í blóma. En já, villtist inn á þessa blessuðu síðu svo ég varð að skrifa smá svona vor-vakningar blogg :þ
Ætlum í sumarfrí á Íslandi í júlí og vonumst að sjálfsögðu til að hitta sem flesta.
Jæja, þá er það komið, skrifa nýtt blogg um jólakortin sem aldrei voru send um næstu jól, þangað til, hafið það gott :)

þriðjudagur, desember 26, 2006
Jólablogg
Gleðileg Jól og farsælt komandi ár!
Þökkum allt gott á árinu sem er að líða :)
Þar hafði þið það, þetta var jólakortið í ár, en áþreifanleg jólakort voru sum sé bara alls ekki send út þetta árið (neitt frekar en í fyrra) en þau koma vonandi á næsta ári... jólapakkarnir ættu hins vegar að berast á næstu dögum...
En við erum annars búin að eiga hin bestu jól hér í huggulegheitum heima hjá okkur, sátt og glöð við góða heilsu. Kærar þakkir fyrir allar fínu góðu gjafirnar til þeirra sem þær gáfu :) Við fórum á jólaball í dag hér á kollegíinu

þriðjudagur, nóvember 07, 2006
Vinsælasta lagið í UK þegar ég fæddist
The UK number 1 single on your birthday was:
Queen - Bohemian Rhapsody
... og hefur líka alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér ;)
Check this out!

sunnudagur, október 08, 2006
MÍslan
Jæja þá fékk Mía ný rör í eyrun á miðvikudaginn og gekk það svona líka vel og bendir allt til þess að hún heyri soldið betur núna :)
Hún er nú samt alltaf sami pottormurinn... Fréttum það í vikunni að hún væri orðin svo "dugleg" á vöggustofunni að hún gæti opnað hurðina fram í andyrið, en á henni eru tveir hurðahúnar, einn á hefðbundnum stað og einn talsvert mikið hærra uppi og þarf að taka í þá báða til að opna. En hún sem sagt nær sér í stól, grípur í hærri húninn og setur hnéð á þann lægri og opnar :s En hún er líka voða klár í að komast leiðar sinnar og því enginn leikur að fela hlutina fyrir henni. Í gær náði hún sér til dæmis í málningu uppi á hillu í eldhúsinuog klíndi sig alla út í henni, var sem betur fer bara á nærfötunum þegar þetta gerðist svo hún fór bara beinnt í bað :) Í fyrradag komst hún í eitthvað sem Hekla var að klippa út og klippti það í smátt, inni í herbergi þar sem enginn sá til, mjög klár að klippa sko ... hmm... ég náði nú samt að láta þetta hverfa og klippa eins ræmur út og Hekla var búina að klippa áður en hún komst að þessu :) Það fór ekki jafn vel með sniglanna uppi á vegg sem Mía pillaði augun af í morgun... En já hún er sum sé algjör terroristi á köflum þessi elska, eins og hún getur annars verið þæg og dugleg þess á milli :)

föstudagur, september 29, 2006
Hálfsmánaðarlegt blogg eða svo... þetta er að koma...
Jæja, rólegur dagur í vinnunni í augnablikinu, spurning hvað það endist lengi. Er enn ekki farin að updeita myndasíðuna, skil ekkert í þessu... gæti gert það núna, nema hvað myndirnar eru auðvitað á prívat tölvunni en ekki vinnu tölvunni :Þ
Við erum búin að vera að gera smá breytingar heima upp á síðkastið, búin að setja sófasettið þar sem borðstofuborðið var og öfugt og erum eiginlega bara mjög sátt við það. Svo erum við, ja eða Hörður að minni ósk, búinn að mála hálfan vegg svartan! Er rosa ánægð með þennan svarta lit og vildi eiginlega helst hafa allan vegginn svartan... á bara eftir að sannfæra málaran um listræna fegurð þess ;)
Nú styttist í að við fáum ömmurnar í heimsókn, já bæði eintökinn í einu, og þær koma í haustfríinu sem er í viku 42! Hehe mikið er ég að verða dönsk ;) En fyrir þá sem ekki vita eru viku númer mikið notuð hér. En já, við þurfum víst að fara að skipuleggja einhverja dagskrá fyrir þær... er reyndar búin að skipuleggja að láta þær passa laugardaginn 21. okt, en þá er Kagsaafestin árlega og kemur sér því mjög vel að hafa tvær ömmur við hendina :)

fimmtudagur, september 14, 2006
Alltaf sumar og sól
Hér er alltaf sama blíðan :) (Ringdi reyndar megnið af ágúst, en það er auka atriði).
Ég er annars bara alltaf að vinna eins og venjulega og svo sem ekkert mikið nýtt að frétta. Stelpurnar eru byrjaðar í fimleikum báðar tvær, að vísu ekki saman, ég og Mía erum reyndar saman í fimleikunum, förum í tíma númer tvö í dag, en síðast var alveg svaka fjör hjá okkur og vorum við báðar sveittar og þreyttar eftir tíman ;)
Mér sýnist vera að koma tími á að ég fari að updeita myndasíðuna okkar, hmm... jæja best að fara að sinna vinnunni ;)

sunnudagur, júlí 23, 2006
Sumar og sól!!!
Jæja þá erum við stúlkurnar komnar í sumarfrí og búnar að vera í fríi í heila viku. Hér er ekkert lát á góðviðrinu og er það búið að vera eiginlega aðeins meira en góðu hófi gegnir undanfarið...
Mía varð 2 ára í gær og er að sjálfsögðu búin að stækka heilan helling við það :) Hún fékk kanínuna Fífí í afmælisgjöf frá Heklu, það er svona "Build a bear" bangsi, en þess háttar félagar eru í gríðar miklu uppáhaldi hjá Heklu um þessar mundir. Svo fékk hún heilt hús frá okkur foreldrunum til að leika sér í úti í garði (ásamt stóru systur sem var ekki síður ánægð með nýja húsið ;)
Nú styttist í íslandsför okkar, en ferðinni er heitið á klakann næsta föstudag. Ég er að hamast við að reyna að klára að prjóna lopapeysur á okkur til að við verðum ekki úti í íslenska kuldanum, en eftir hitan hér undanfarið finnst manni nú bara allt undir 20 gráðunum vera kalt (og það er eiginlega bara á nóttunni) En það verður nú bara frískandi að kvíla sig aðeins á þessum hita.
Ég er búin að taka nokkrar myndir í sumarfríinu og stefni núna á að fara að setja einhverjar myndir inn á síðuna, en það tekst vonandi áður en sumri líkur, en við erum auðvitað alltaf jafn sæt og fín eins og þið vitið!
Jæja þá er þessari blogg stund lokið í bili, hæ hæ!!

fimmtudagur, júní 08, 2006
Vinna, vinna, vinna... og ekkert blogg...
Jæja, þá er nú kominn mánuður síðan ég byrjaði að vinna :) En fyrir þá sem ekki vita er ég sum sagt komin í vinnu, já í alvöru vinnu sem 'logistik konsulent' hjá litlu dönsku ráðgjafafyrirtæki. Það gengur bara bísna vel, en eini gallinn er sá að ferðatími til og frá vinnu er heldur langur, eða hátt í klukkustund hvora leið... þennan tíma mætti þó stytta niður í einungis 20 mínútur ef ég hefði einkabifreið við hendina og er því ekki ótrúlegt að dagar bílleysis á heimilinu séu brátt taldir.
En þar sem ekki er hægt að blogga í strætó hefur víst ekki verið bloggað mikið hérna undanfarið... en það eru annars svo sem engar stór fréttir af okkur, stúlkurnar dafna vel og það gera líka plönturnar okkar í garðinum, en við erum búin að vera að dunda okkur við að sá hinum ýmsu fræum, auk þess sem við erum með þessar fínu tómat og agúrku plöntur og meira að sejga eina jarðaberja plöntu sem nú þegar er farin að skila heilmiklum berjum :) Mía kallar þau reyndar epli ;) en hún er sko alveg vitlaus í þau.
Jæja, hef víst ekki meiri tíma fyrir blogg í bili, alltaf geðveikt að gera hérna!

þriðjudagur, apríl 18, 2006
Jæja kanski kominn tími á smá blogg?!?
Ég er nú bara búin að vera í hálfgerðu tölvu-bindindi undanfarið, veit ekki hvað veldur, en hef greinilega haft nóg annað að gera en að vera í tölvunni... hvernig sem það getur nú passað... en mér finnst ekki ótrúlegt að það fari að breytast aftur.
En já það er sum sé margt og mikið að frétta síðan síðast var bloggað, ekki það að ég er nú en þá wonder woman sko 'beautiful princess' og allt það :þ En við fórum sem sagt til Íslands, eins og flestir vita, þarna í mars... og komum heim í síðustu viku... eða já það er víst tæpur mánuður síðan við komum heim aftur, en svo sem ekkert gerst á þeim tíma sem er í frásögu færandi held ég... en jú það eru jú nýbúnir að vera páskar og var Hekla í tilefni þess í fríi alla síðustu viku, Mía var nú bara á vöggustofunni á mánudeginum og þriðjudeginum (enda búin að vera lasin heima mestan part vikunnar á undan og enginn greiði gerður með að hafa hana í fríi) og við Hekla notuðum tækifærið og fórum á flakk á meðan, skoðuðum Danmarks Akvarium á mánudeginum og fórum svo í bíó á Ice Age 2 á þriðudeginum og skemmtum okkur ágætlega :)
Jæja nenni bara ekki aå skrifa meira núna, en lofa að fara að bæta mig!

fimmtudagur, mars 09, 2006
I'm Wonder Woman ;)
Your results:
You are Wonder Woman
Click here to take the Superhero Personality Quiz
You are Wonder Woman
| You are a beautiful princess with great strength of character. ![]() |
Click here to take the Superhero Personality Quiz
Jæja þá!
loksins smá blogg... ef það er þá einhver sem nennir að kíkja á þetta enn þá...
Hér hefur verið nóg að gera og plön mín um að liggja í leti eftir skil á verkefninu hafa orðið að engu. Mánudaginn 27 febrúar fékk Mía hina marg frægu hlaupabólu og varð ansi illa haldin, en komst loks aftur á vöggustofuna í gær, við mikinn fögnuð hennar og allra annarra :) Hún fékk alveg skriljón hlaupabólur og er að sjálfsögðu enn öll í skorpnuðum bólum, en þær sögðu á vöggustofunni að þær hefðu bara aldrei séð jafn margar hlaupabólur á einu barni. Það vildi nú samt svo heppilega til að hún fékk nær engar bólur í andlitið, ótrúlegt en satt. Hún var með hátt í 40 stiga hita alveg í 3 daga þegar hún var sem verst af þessu og það er óhætt að segja að það var ekki sofið mikið á þessu heimili þá vikuna... geysp! En blessað barnið var svo illa haldið að ég hef nú bara aldrei vitað annað eins, tja eða allavega var þetta sko ekki nærri svona slæmt þegar Hekla fékk hlaupabóluna, þá ný orðin 2 ára. Hekla fékk að mig mynnir eiginlega engan hita og var bara kát og hress og mig klæaði eiginlega meira en hana af því einu að horfa á hana, en Hekla er reyndar svo heppin að vera með ákaflega sterka og góða húð, en Mía er það hins vegar ekki :/
Ég er núna búin að fá verkefnið mitt samþykkt, með þessu óborganlega kommenti frá kennaranum: "your report was a pleasure to read" ;) hehehe... en hann var sum sagt bara hæst ánægður með skýrsluna. Nú bíð ég bara í ofvæni eftir prófskírteininu, en þeir eru búnir að lofa því eftir helgina.
Hörður byrjaði í skólapraktík 1 mars, en í gær fékk hann svo pláss hjá málara, ja eða fyrirtæki, sem lærlingur og byrjar þar á mánudaginn. Þeir verða fegnir að losna við hann úr skólapraktíkinni því hann er búinn að vera svo hræðilega duglegur að vinna að það hálfa væri nóg!
Svo er það bara Ísland eftir viku! Eftir nákvæmlega viku sit ég og kvelst í flugvélinni með dætrum mínum... en Hörður kemst víst ekki með því hann þarf jú að vinna í nýju vinnunni sinni :( Það er nú samt horfur á að hann komi og stoppi í tvær nætur helgina áður en við förum heim aftur :) en það kæmi sér ekki illa fyrir mig að hafa hann með á baka leiðinni með dúllurnar og allt okkar dótarí... það er ekki eins og maður ætli ekki að versla einhver kynstur af íslensku gúmmelaði ;)
En jæja, þeir sem vilja verða heimsóktir og ekki hafa fengið tíma hjá okkur ættu að fara að panta núna ;) Held ég þrufi að fara að setja upp dagskrá til að ég gleymi nú engum, þó þetta virðist rosa ríflegur tími núna verður hann það pottþétt ekki þegar á staðinn er komið...
En jæja þá verð ég að fara að redda vegabréfi fyrir Míu mús, já trassinn ég hugsaði fyrst af alvöru út í það í gærkvöldi :þ hringdi í sendiráðið áðan og þetta ætti að reddast með einhverjum bráðabyrgðapassa, en við þurfum ölla að mæta til að sækja um passann, ég, Hörður og Mía líka, með myndir peninga og pappíra upp á vasann.

miðvikudagur, febrúar 22, 2006
BÚhÚhÚin!!! HÍHíhíhíhí!!!!
Þá er ég búin að skila verkefninu :D
Vonandi bara að ég fáið það ekki í hausinn aftur :þ En prófessorinn ætlar að lesa þetta á næstu dögum og vonandi bara að hann verði sáttur, ekki það að ég á svo sem ekkert von á öðru :)
En já, það er samt ekki svo að það taki ekki alltaf ný verkefni við, en nú er Fastelavn á næsta leiti og var ég víst búin að lofa að sauma búning, svo ég þarf víst að fara að vinda mér í að klára hann! Komst líka að því í dag að það er fastelavnsfest á vöggustofunni á föstudaginn og ekki var ég nú búin að finna búning fyrir Míu... svo ætli ég verði ekki bara að nota efnið sem til er og sauma búining á hana líka...
Svo er ég líka að fara að drífa mig í að fara að taka myndir aftur, sko fyrir dpchallenge :) Setti inn eina í keppni sem byrjaði í nótt, byrjaði vel en einkunin er aðeins að dala núna byrjaði í 5.75 eftir 21 atkvæði en er komin niður í 5.21 :S ekki alveg nógu gott mál... en þetta er nú bara fyrsti dagurinn og aðeins 61 atkvæði enn sem komið er.
Já og svo er náttulega bara að fara að fínpússa CVið og fara að stúdera atvinnuauglýsingarnar!

föstudagur, febrúar 17, 2006
Þessir íslendingar...
Í dag hjóluðum við Hörður út í Lidl að versla, það hefði nú svo sem ekki verið í frásögu færandi, nema hvar ég stend og horfi á grænmetið bendir Hörður mér allt í einu á að Jóhannes í Bónus stæði þarna hinu megin... og jú, mikið rétt þar var lágvöruverðskonungur Íslands bara mættur á svæðið ásamt fríðu föruneyti, tja alveg hátt í 15 manns held ég bara. Hefði ég verið nýbúin að borða eitthvað vafasamt hefði ég nú talið þetta vera ofskynjannir ;) en þar sem svo var ekki gat ég haldið ró minni :þ En já, þeir gengu um alla búðina og stúderuðu hlutina og ræddu hátt og mikið saman á Íslensku, mér sýndist starfsfólkinu þarna nú ekki alveg vera farið að standa á sama, en þarna voru miklar spekúlasjónir í gangi, búðin borin saman við Bónus, vörurnar og verðlagið tékkað. Jóhannes var greinilega mikið að fræða fylgdarmenn sýna í þessum túr þeirra í Lidl og veltir maður nú fyrir sér hvort hann leggi það bara almennt í vana sinn að skipuleggja svona skoðunnarferðir í erlendar lágvöruverðsverslannir fyrir íslenska ferðamenn eða hvað eiginlega býr að baki... hmmm... Lidl er annars frekar ný búð hér, þýsk keðja, ekki ósvipuð Aldi bara í við betra úrval. Kannski maður megi búast við að hér opni Bónus á næstunni ;) En allavega við gerðum góð kaup og versluðum inn fyrir alla helgina og hjóluðum með það heim eins og venjulega.
fimmtudagur, febrúar 16, 2006
Jibbííí!!! Búin að missa tvær tennur ;)
Í dag fórum við Hekla til tannlæknisins og kom hún tveimur tönnum fátækari tilbaka!
Það var sko þannig að hún var komin með eina og næstum aðra fullorðins-framtönn í neðrigóm, en var hins vegar ekki búin að missa eina einustu barnatönn. Það leit satt að segja út fyrir að hún væri að breytast í hákarl, svo við ákváðum að drífa okkur til tannasa. Tannlæknirinn var líka á því að þetta væri nú einum of, þannig að hún ákvað að rífa bara þessar þrjósku, nánast rammföstu barnatennur úr. Það gekk nú barasta nokkuð vel, versta var bragðið af deyfingunni og dofinn þegar allt var afstaðið. En eftir hafa jagast soldið á tönnunum náði tannsa þeim nú út og fékk Hekla þær með heim í sérstakri kistu :) Svo er hún bara búin að vera á fljótandi fæði í dekri hérna heima síðan, en hún stóð sig sem sagt bara eins og hetja og er sko heldur betur ánægð með að vera búin að losna við hvorki meir né minna en tvær barnatennur á einu bretti :D

...og hér má sjá hina tannlausu... ja eða samt ekki svo tannlausu pæju ;)

mánudagur, febrúar 13, 2006
Jamm og jæja!
Er búin að vera rosa dugleg að skrifa skýrsluna fyrir verkefnið mitt núna upp á síðkastið, er nánast bara á undan áætlun og finnst ekki ólíklegt að ég skili bara fyrir 6. mars sem er settur skiladagur... þetta er nú ekki alveg normalt sko ;)
Hér eru annars allir þokkalega hressir, dæturnar eldhressar alveg, reita af sér brandarana eins og venjulega... ég var t.d. í gær eitthvað að brasa í tölvunni og Hekla sat við hliðina á mér og var á teikna og svo kom Mía og var byrjuð að príla upp fyrir aftan mig á stólinn sem ég sat á og eitthvað farin að hanga í mér, þá sagði ég við Hörð "Heyrðu, ég er í soldið slæmri stöðu hérna", þá sagði Hekla án þess að líta upp "Nú? ertu ný komin úr baði?", ég ætlaði alveg að springa úr hlátri... alls ekkert ný komin úr baði, en hún er náttulega fljót að tengja hlutina, ég sagði sko þessa sömu setningu einhvertíman um daginn þegar ég var ný komin úr sturtu (og hef sjálfsagt oft sagt) og Mía var eitthvað að flækjast í mér þegar ég var að reyna að klæða mig... En Mía er sko ekkert lamb að leika sér við þessa daganna... hún nánast dregur okkur orðið með sér á milli herbergja til að láta okkur gera eitt og annað og segir alltaf meira og meira, en það hjálpar sko þegar hún er að skipa fyrir!
En já, öll famelían nema ég fór í klippingu á mánudaginn fyrir viku, þarf að fara að setja inn myndir af dúllunum nýklipptu :)

mánudagur, febrúar 06, 2006
Bara smá Quiz
You scored as Engineering. You should be an Engineering major!
What is your Perfect Major? (PLEASE RATE ME!!<3) created with QuizFarm.com |
Fjúkk! Valdi greinilega rétt ;)
fimmtudagur, febrúar 02, 2006
klukkeddí klukk!
"Klukk!" sagði Erla mágkona mín, þetta virðist nú ekki svo erfitt á að líta, best að vinda sér í að svara þessu....
4 matarkyns sem ég held uppá:
- Svína "mörbrad" að hætti Harðar með kartöflum að hætti Harðar :)
- Pitsa með salati og dressingu ofan á að hætti útlensku pitsumannanna :)
- Sunnudagsmáltíð í Kvistabergi 9B
- Íslensk Lifrarpylsa (as allways ;)
4 staðir sem hef unnið á:
...hmm.. hvenær var ég nú í vinnu síðast...
- Ríkisbókhald
- Hagkaup
- Hótel Saga
- Fiskvinnslan Sjóli
4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur:
- Forrest Gump - alltaf jafn góð :)
- Hair - skemmtileg tónlist
- Sódóma Reykjavík
- Four weddings and a funeral - æ
4 staðir sem ég hef búið á:
- Kagsåkollegiet, Herlev, Danmark
- Kvistaberg, Hafnarfirði
- Njálsgata, Reykjavík
- Wood Street, Manly, Syndey, Australia
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríi:
- Lalandia, dk
- Neskaupstaður
- Amsterdam
- Algarve, Portúgal
4 sjónvarpsþættir sem falla að mínu lundafari:
- LOST!!!
- Desperate Housewifes
- Unge mødre, heimilda þáttur um ungar danskar mæður
- Tv avisen... fréttirnar... er það ekki sjónvarpsþáttur ;)
4 staðir sem ég vildi vera á núna:
- Hérna heima hjá mér fyrir framan tölvuna :)
- Á sólarströnd, er soldið kalt!
- Eiginlega bara uppi í rúmi samt... klukkan er orðin soldið margt til að vera annarsstaðar á fimmtudagskvöldi!!!
4 síður sem ég skoða oft- ekki blogg:
... væntanlega hvorki blogg né umræður þá...
- mbl.is
- dmi.dk - veðrið
- dpchallenge.com
- campusnet.dtu.dk
4 bækur sem ég hef lesið oft:
- Bláa kannan (skil hana samt ekki enn...)
- Týra og dýrin í sveitinni
- Góða nótt Bóbó bangsi
- Allar herramanna bækurnar sem hafa komið út á íslensku (svo ég viti til)
En já... ég hef held ég aldrei lesið neina "fullorðins" bók oftar en einu sinni... bara aldrei nokkurtíman held ég, tja eða allavega ekki í heild sinni... hef náttulega oft lesið í ýmsum námsbókum og uppflettiritum oftar en einu sinni, en aldrei meira en eina klausu þá :þ
Jæja þá er þetta bara komið held ég :) og þá er sum sé komið að mér að klukka einhverja tvo... og það verður... klukk! Margrét og klukk! Fríða...

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)