þriðjudagur, ágúst 16, 2005

Skóla skóla...

Í framhaldi af því sem ég skrifaði hér í vetur um það þegar verið var að meta hvort Hekla og aðrir af leikskólanum væru tilbúnir til að fara í skóla langar mig að halda áfram að lýsa hneykslan minni á dönskum foreldrum og skólakerfi... Í gær fengum við sko senda heim símaskrá bekkjarins hjá Heklu, það væri ekki í frásögu færandi nema af því að þar mátti lesa afmælisdaga krakkanna í bekknum. En þegar ég fór að skoða hvenær börnin væru fædd sá ég að af þessum 17 börnum sem eru í bekk með Heklu eru 4 af þeim fædd árið 1998! Elsta barnið er sum sé 1 ári og 1 mánuði eldri en Hekla sem er yngst, og það barn sem er næst yngst er fætt í október. Svo er eitt barn fætt í ágúst og allir hinir sem eru fæddir 1999 eru fæddir í apríl, maí eða júní. Þeir sem eru fæddir 1998 eru svo 2 í nóvember og 2 í desember. Svo já, það ber ekki á öðru en það sé eitthvað til í því að danir séu gjarnir á að seinka börnunum sínum í skóla... en þeir vilja jú ekki að börnin þeirra séu yngst í bekknum... betra að þau séu eldri til að þau nái betur að skara framm úr, en hvar endar það? Mér finnst þetta nú bara út í hött, sérstaklega með tilliti til þess að það er nú ekki verið að kenna mikið þarna, það er jú verið að kenna bókstafina og svo er ein verkefna bók sem á að duga í allan vetur, en verkefnin aftast í bókinni eru ekki erfiðari en svo að Hekla hefði getað leist þau í fyrra...

En já Hekla stendur sig nú bara vel þó hún sé yngst og fellur vel í hópinn sýnist mér, en ég verð nú að segja að ég hélt að barnið sem er 1 ári og 1 mánuði eldri en hún hefði farið í vitlausan bekk...

Já, námið gengur svo líka bara vel, í gær áttu þau að skrifa alla stafina sem þau kynnu á blað, hvern fyrir sig inn í hring og á blaðinu voru 28 hringir (danska stafrófið) og Heklu vantaði bara þrjá. Hún hafði nú reyndar skrifað íslenskt Ö en ekki danskt (skiljanlega) og eitt Ú, sem á náttulega ekki heima í danska stafrófinu, en það er nú aukaatriði. Að hennar sögn kunnu hinir miklu færri stafi en hún og var hún nú ekkert lítið montin yfir því ;) En hún var nú líka búin að læra stafina fyrir allavega ári síðan svo það er ekkert skrítið að hún kunni þá í dag.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ þetta er hún amma Steina.
Hekla mín verður bara að hafa þolinmæði og halda áfram að standa sig vel þó hún sé yngst. Hún getur bara lært heima að lesa á íslensku. Svo getur amma athugað hvort hún finni ekki stærðfræði við hæfi. Já og hljóðbækur. Ég hafði nú grun um að þeir væru rólegir í tíðinni blessaðir.
Verið þið sæl að sinni.