föstudagur, ágúst 12, 2005

Vöggustofan

Mía er núna, eins og áður hefur komið fram, byrjuð á vöggustofunni og gengur það nú bara svona bærilega. Hún byrjaði í aðlögun fyrir 2 vikum síðan, fyrstu 3 daganna fór ég bara með hana og var með henni þarna í soldinn tíma, á 4ða degi skildi ég hana eftir í hálftíma og gekk það bara vel en daginn eftir varð hún alveg brjáluð þegar ég fór og endaði það með því að ég sótti hana 20 mínútum síðar... þau voru sko úti þannig að þegar ég kom heim og opnaði svaladyrnar heyrði ég grátinn í henni skýrt og greinilega, þar sem vöggustofan er bara í næsta húsi... þannig að þegar hún hætti ekki að gráta kom mútta auðvitað og bjargaði henni ;) Á mánudaginn var ég svo bara með henni á vöggustofunni þar sem hún var voða lítil í sér eitthvað og vildi alls ekki sleppa mér, en á þriðjudeginum varð hún svo efir í klukkustund og gekk þá skár en áður og svo bara mjög vel á miðvikudeginum og þá svaf hún líka morgunblundinn á vöggustofunni. Í gær og í dag var hún svo frá rúmlega 8 til tæplega 12 og tók þá bæði blundinn og borðaði hádegismat á vöggustofunni og gekk bara alveg glymrandi... það er að segja eftir að hún var búin að jafna sig á því áfalli að vera skilin eftir þarna, en hún ætlar ekki að verða sérlega auðveld hvað það varðar... en þegar ég hef komið að sækja hana þessa síðustu daga hefur hún bara verið mjög sæl og glöð að leika sér... þó hún hafi nú fljótlega viljað að ég tæki hana upp og byrjað svo að vinka fóstrunni sinni, til merkis um að hún ætli heim :)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Blessað barnið er nú ekki krabbi fyrir ekki neitt:) Þeir geta verið óöruggir og varkárir.