föstudagur, desember 30, 2005

Allt í snjó!

Hér hefur snjóað heil ósköp, reyndar ekki mikið í nótt en talsvert í gær og síðustu nótt. Setti inn myndir á smugmugið í gær, teknar á aðfangadag og til og með deginum í fyrradag, þar sést sá mikli snjór sem var hér þá... en já það er óhætt að segja að snjórinn hafi margfaldast síðan ;) Þessi mynd er tekin núna:



Skruppum út í búð í gær með Míu á snjóþotunni, hefðum sko örugglega lent í basli ef við hefðum ætlað að fara með vagninn, en danir eru nú samt svo duglegir að moka að það var nú búið að moka stéttarnar svona á köflum og salta, en mér sýndist það nú í þessu tilviki bara vera íbúar nærliggjandi húsa sem voru að því. Göngustígarnir eru nú samt alltaf mokaðir af kommúnunni svo ætli við tökum ekki þá leiðina í dag.

fimmtudagur, desember 29, 2005

Ég á afmæli í dag!!!

Góð ástæða til að blogga, ikk? :)

En jæja, löngu kominn tími á jólabloggið og einhver fleiri blogg... En við erum búin að hafa það alveg sérdeilis huggulegt hérna um jólin. Þetta byrjaði allt með því að jólatréð var sett upp á aðfangadagsmorgun og með því kom þessi gríðarlegi jóla-andi inn í húsið, enda ekki hjá því komist þar sem þetta er alveg gríðar, risa, kæmpe STÓRT tré, fyrsta skipti lengi sem jólatré heimilisins er stærra en ég, en það er hátt í 2 metrar og var Hörður lengi að jafna sig á að hafa hjólað með það heim...

En aðfangadagur jóla var að venju ekki mjög stuttur, bætti að vísu úr skák að jólasveinarnir Stekkjastaur og Kertasnýkir lögðu leið sína til okkar um morguninn með pakka alla leiðina frá Íslandi :) Systurnar voru nú heldur feimnar við þá bræður, en ákaflega glaðar að sjá þá engu að síður. En já, þegar klukkan loksins varð 6 var hamborgarahryggur etinn með bestu lyst, Heklu fannst við hin þó vera heldur lengi að slafra þessu í okkur, en það tókst að lokum og eftir minni háttar frágang var hægt að fara að sinna PÖKKUNUM! Heklu lá mikið á að afgreiða það verk og var varla búin að opna einn pakka þegar hún var tilbúin að afhjúpa næsta ;) Okkur tókst nú samt að vera einhverja 2 tíma að þessu og voru allir glaðir og sælir að lokum, ...en þá hófst hausverkurinn við að ná leikföngunum úr umbúðunum og skrúfa þau saman og allt það, en þetta tókst blessunarlega vel á endanum.

Systurnar höfðu báðar verið ægilega duglegar að búa til jólagjafir handa okkur í skólanum/vöggustofunni, Hekla gerði jólaskraut og svo þessa líka glæsilegu hálsfesti handa mér (sem ég hef borði síðan) og Mía málaði myndir á dagatal. Á því voru líka myndir sem teknar höfðu verið af henni sjálfri við að mála myndirnar, algjör snilld :) En þegar við vorum að skoða dagatalið saman gerðist sá merkilegi viðburður að dúllan benti á myndina af sér og sagði hreykin "ÍA" :) En er þetta í fyrsta skipti sem hún segir nafnið sitt, ja eða allavega svo við heyrum og skiljum ;)

Jóladagur var tekinn rólega og gjafirnar skoðaðar, nammi borðað og horft á sjónvarp. Um kvöldið var Hekla reyndar orðin lasin, með hita og hausverk og vaknaði svo um nóttina og gubbaði. Morguninn eftir var hún öllu hressari og bara alveg stálslegin þegar komið var hádegi, svo við ákváðum að skella okkur á jólaball kagsaa búa. Þar var dansað í kringum jólatréð og Kertasnýkir og Stekkjastaur litu við með nammipoka handa börnunum. Allir komu svo með veitingar með sér svo þegar saman safnaðist var þarna hið þokkalegasta veisluborð.

Á annan í jólum var líka farið að snjóa, ekki skemmdi það jólastemminguna, og síðan hefur bara snjóað meira og meira, svo það er barasta kominn slatti af snjó, ekki kanski á Íslenskan mælikvarða samt, en snjór samt. En já, nú er ég að spegúlera í að fara að reyna að koma einhverjum myndum inn á smugmugið, nánar um það síðar.

mánudagur, desember 05, 2005

Tölvunördatröll

Jæja, var að gera enn eina könnunina á netinu og það komst aldeilis upp um mig...



Tölvunördatröll


Þú ert nýjungagjarn, yfirvegaður innipúki.

Tölvunördatröllið hefur rosalega gaman af svona könnunum. Eitt slíkt bjó þessa könnun meira að segja til! Fyrir tölvunördatröllinu er bjarmi tölvuskjásins sem huggulegur arineldur á vetrarkvöldi. Tölvunördatröllið sendir frekar tölvupóst en að tala við fólk í persónu og á fleiri vini í netheimum en raunheimum (eða kjötheimum eins og tölvunördatröllið myndi orða það). Tölvunördatröllið er náskylt vampírunni, en það vakir á nóttunni og þolir illa sólarljós (og hvítlauk).



"Live long and prosper"


Hvaða tröll ert þú?

föstudagur, desember 02, 2005

Drillenissen Palle

Í gær fékk Hekla Sól nissan hann Palla með sér heim úr skólanum. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá eru nissar litlir jólaálfar sem eru oft mikið fyrir að stríða og gera furðulega hluti, og þá helst á meðan allir eru sofandi. Palle er sko greinilega mjög sprækur á nóttunni, en í nótt fór hann sko greinilega eitthvað á stjá hérna á heimilinu! Þegar Hekla vaknaði, en hann hafði sofnað í fanginu á henni kvöldið áður, þá var hann horfinn úr rúminu, en hann hafði tekið fötin hennar sem lágu tilbúin fyrir daginn í dag á borðinu og klætt stærsta hundabangsann hennar í þau... hann var með sokka á eyrunum og frekar fyndinn að sjá. Því næst sá Hekla að öllu dótinu á skólatöskunni hennar hafði verið raðað upp á gólfinu og hérna frammi var hann búinn að taka alla skónna okkar og raða þeim í langa lest eftir endilöngu gólfinu. En það tók nú smá stund að finna Palla, en hann fannst á endanum uppi á hillu hjá jóladagatalinu hennar Heklu. Þegar Hekla ætlaði svo að fara að fá sér súkkulaði dagsins, þá sá hún að hann hafði sko opnað glugga nr. 2 og nartað aðeins í súkkulaðið!! Þegar Hekla fór svo að setja dótið í skólatöskuna komst hún að því að þar hafði hann sett annað stígvélið hennar Míu og pandabangsan hennar líka, það hefði nú verið saga til næsta bæjar ef Hekla hefði farið með það í skólan í staðinn fyrir bækurnar ;)

En já þeir eru skemmtilegir þessir nissagaurar, Heklu fannst nú samt eins gott að hann ætti ekki að vera hjá okkur aðra nótt, því það er nefnilega aldrei að vita hverju svona drillenissar geta tekið upp á og ein nótt í einu því alveg nóg fyrir hvert heimili.

fimmtudagur, desember 01, 2005

Julefrokost

Jæja, þá er ég nú búin að taka mér smá lærdómspásu og skreppa í jólahlaðborð mömmugrúppunar :) Þar var sko nóg um kræsingar, grafinn lax, roastbeaf, önd með brúnuðum kartöflum og sósu og flatkökur með hangikjöti, rúgbrauð og síld og guð má vita hvað, allt ofsalega girnilegt, þannig að ég er gjörsamlega afvelta eftir allt átið! Ekki má nú gleyma að nefna að það var líka malt og appelsín og svo kökur á eftir :)

En þá er að fara að læra aftur, vona bara að ég sofni ekki yfir bókunum eftir allt þetta át...

Jóladagatalsdagurinn mikli!

Jæja, þá er hinn langþráði desember mánuður loksins byrjaður... ég hefði nú alveg getað beðið aðeins lengur, en öðru máli gegnir um Heklu Sól :) Hún rauk á fætur í morgun og var óvenju fljót að klæða sig og borða morgunmatinn, en það þurfti hún sko að gera áður en hún opnaði fyrsta gluggan í jóladagatalinu! Vonandi bara að það haldist þannig fram að jólum, því hún getur oft verið ansi lengi að koma sér af stað á morgnanna.

Mía er þessa daganna farin að vera ansi öflug í klifri... já ég hélt nú reyndar að hún væri orðin það fyrir löngu, en núna er sko bara ekkert sem stöðvar hana... Við höfum verið með sófaborðið upp við vegginn fyrir framan sjónvarpið, en það gengur víst ekki lengur því hún er farin að skella sér upp á það eins og ekkert sé, án þess einu sinni að stíga upp á neitt, og stendur svo uppi á borði og horfir, en það versta er að hún lætur sér ekki alltaf nægja að horfa heldur er hún endalaust að slökkva og kveikja og skipta um stöðvar og vesenast í tækinu. Hún er líka búin að finna út hvernig hún getur klifrað upp í rúm inni hjá Heklu og þaðan upp á borð, en þaðan getur hún náð upp á hillu sem geymir ýmsar gersemar... Svo er aðal sportið núna að klifra upp í babyborn vagninn hennar Heklu og sitja þar... og af vagninum upp á sófan o.s.frv. Já og svo vorum við að færa rúmið hennar til að það væri ekki upp víð ofninn, svo nú er annar endinn á því upp við rúmið okkar, sem þýðir að hún er ekki í nokkrum vandræðum með að klifra út úr því...

En ég er nú bara að reyna að vera róleg yfir þessu, hún er ótrúlega fim og hefur svo sem ekki slasað sig á þessu enn sem komið er, ef frá er talið þegar hún brenndi sig á ljósaperunni í ljósinu fyrir ofan borðstofuborðið...

Jæja, ætli það sé nú ekki best að fara að læra núna, bara vika í Cryptography prófið... vonandi síðasta prófið í þessu námi... en ekki ef ég fer ekki að læra og það strax :S

föstudagur, nóvember 25, 2005

Í skólanum í skólanum...

Jæja, það er annars lítið að frétta. Ég er að fara í próf eftir 2 vikur og er bara að reyna að byrja að læra eitthvað fyrir það, en auk þess á ég reyndar eftir að skila einu prófverkefni sem ég er að vinna með 2 öðrum. Hörður er alltaf á fullu í skólanum, en þessar fyrstu 10 vikur í skólanum klárast fyrir jól og svo þarf hann að fara að komast á samning og fara í praktík í einhverjar 20 vikur mynnir mig. Um daginn voru 10 vikurnar hálfnaðar og hann fékk einkunn fyrir það sem hann var búinn að vera að gera á fyrri helmingnum, hann er greinilega að standa sig í þessu, en hann fékk 11 og það er víst ekki algengt að það sé gefið svona hátt og var hann hæstur af öllum :) Hann er samt alls ekki sá eini þarna sem hefur unnið við þetta áður, bara mesti snillinn ;)

Rörin virka fínnt!

Fór með Míu á miðvikudaginn í tékk út af rörunum og reyndist allt eins og best væri ákosið. Eftir ítarlegar mælingar með hinum ýmsu græum komst eyrnalæknirinn að þeirri niðurstöðu að eyrun væru bara þurr og fín og Mía örugglega farin að heyra mikið betur. Við getum svo sem verið sammála því, hún hefur nefnilega verið að gefa frá sér mun fjölbreyttari hljóð þessa síðustu viku, auk þess sem hún er farin að ná því sem verið er að tala um í næsta herbergi... tja, þ.e. ef einhver er að tala um að fara í bað eða fá sér að borða þá er Mía mætt ;)

miðvikudagur, nóvember 16, 2005

Rörin komin á sinn stað :)

Jæja, þetta gekk nú bara eins og í sögu! Miklu minna mál en ég hefði nokkurtiman getað ímyndað mér!

Við vorum mættar kl. 9 í morgun á stofuna hjá eyrnalækninum, Mía fastandi en eldhress að skoða allt dótið þarna á biðstofunni, en það gekk bara vel að láta hana fasta því Hekla var búin að borða morgunmat áður en Mía vaknaði og ég fastaði náttulega henni til samlætis. En svæfinga lækririnn kom svo og fylgdi okkur inn á stofuna þar sem ég lyfti Míu svo upp á bekkinn, hún vildi nú helst ekki leggjast á hann og skældi þegar hann setti grímuna fyrir vitin á henni en var fljót að róast og sofna. Svo fór ég fram í rétt tæpar 5 mínútur á meðan eyrnalæknirinn hreinsaði út úr eyrunum á henni og setti rörin í. Svo sat ég hjá henni í kanski aðrar 5 mínútur og þá vaknaði hún og grét aðeins og nuddaði eyrun, en róaðist fljótlega. Þá gátum við bara farið og tókum bara leigubíl heim, þar sem ekki var mælt með að hún ferðaðist öðruvísi en í bíl heim. Klukkutíma eftir að við mættum vorum við svo komnar heim og Mía bara hin sprækasta farin að leika sér og fljótlega farin að krefjast þess að fá eitthvað að borða, sem hún og fékk og fagnaði mikið :)

En það var mjög gott að þetta var gert því lækririnn sagði að það hefði verið alveg massi af gumsi þarna í miðeyrunum á henni, en ég er sannfærð um að hún heyrir strax mikið betur í okkur, en það á nú eftir að koma í ljós ;)

fimmtudagur, nóvember 10, 2005

Rör

Jæja þá erum við komnar aftur frá eyrnalækninum, Mía er enn með vökva í eyrunum, þó þau líti að öðru leiti vel út, svo það verður að dreyna á henni eyrun. En já, ætli þetta skýri ekki geðhundinn sem hefur verið í henni undanfarið og það að hún er alltaf að vakna á nóttunni, en ég hef nú verið sannfærð um það í soldinn tíma að hún heyri ekki sem best.

En já, næsta miðvikudag á hún að mæta í röraísettningu, fastandi kl. 9 um morguninn (úff það verður fjör :/ og verður hún svæfð og rörin sett í og því næst vakin geri ég ráð fyrir, en svo á að flytja hana heim í bíl skv. upplýsingablaðinu sem ég fékk... á eftir að finna eitthvað út úr því!

Ég verð nú að segja að mig er strax farið að kvíða fyrir, en þetta verður nú sjálfsagt til mikillar blessunnar þegar upp er staðið... gæti jafn vel gerst að maður fari að fá almennilegan nætursvefn! :)

Mýsla litla

Jæja, hér er allt þokkalegt að frétta, Mía jafnaði sig á pestinni ó nó tæm og er bara sæmilega hress, en í dag á hún að fara aftur í tékk til eyrnalæknisins og það verður spennandi að sjá hvort allt er ekki bara í besta standi með eyrun á henni. Hún er nú farin að reyna að tala aðeins meira, en mér finnst það nú ansi lítið samt og hún nær ekki sérlega vel að herma eftir... eiginlega nær hún bara hljómfallinu, ef þið skiljið hvað ég meina, en ekki neinum nákvæmum hljóðum. En hún gefur nú frá sér nóg af hljóðum þessa daganna, eiginlega allt allt of mikið :/ en hún tjáir sig heilmikið þó hún tali ekki... og lætur það ekki aftra sér þegar kemur að því að heimta eitt og annað... bendir á mismunandi skápa í eldhúsinu eftir því hvað hana vantar og segir mjög ákveðið eitthvað óskiljanlegt sem skilst þó oftast... en já hún er bísna matglöð! Svo er hún strax komin í þann pakkann að kasta sér bara í gólfið í einhverju drama kasti ef hún fær ekki sínu framgengt... og hún hefur sko ákveðnar skoðanir á því hvenær hún vill fara í bað eða út að leika eða horfa á stubbanna o.s.frv. Úff, ekki sú auðveldasta í umgengni :s en það er erfitt að vera lítill og fá ekki að ráða öllu sjálfur! Fá ekki að velja hvað maður fær að borða, hvaða föt maður fer í, hvenær maður fer í bað eða að sofa o.s.frv... ég mundi allavega ekki vilja vera í þessari stöðu ;)

En já, læt vita hvað eyrnalæknirinn segir á eftir.

sunnudagur, nóvember 06, 2005

Lasleiki og jólapælingar

Jæja, lítið að frétta hérna þessa helgina nema það að Mía er búin að vera lasin síðan í gær, með hita og tilheyrandi slappleika, svo við erum búnar að vera heima. Hekla er bara búin að vera að leika sér með vinkonunum, fyrir utan að hún fór í balletinn í gær með pabba sínum. Hún er allt af að verða betri og betri :)

En ég ætla að fara að vinna eitthvað í því að koma heilum helling af myndum sem við höfum tekið síðustu mánuði inn á myndasíðuna, en það kemur svona smá saman.

Já, jólin eru að nálgast... Hekla var í morgun farin að teikna jólasveina og jólatré og klippa út og sagðist vera að búa til skraut á jólatréð. Hún er líka búin að skoða jólagjafalistan frá dótabúðinni og búin að fá mig til að skrifa fyrir sig lista yfir allt sem hana langaði í... það var nú alveg A4 blaðsíða! og svo vildi hún nú helst gera lista fyrir Míu líka. Jólaskapið lætur ekki á sér standa!

fimmtudagur, nóvember 03, 2005

Hexið Hekla



Hér kemur myndin af norninni okkar, hún var gríðar ógnvekjandi! Fleiri myndir af henni á smugmuginu, en hún flaug í skólan á galdrakústinum sínum í morgun í rigningunni ;)

Þetta er annars búin að vera mjög góð vika í skólanum, halloween partýið í dag og á þriðjudaginn var ís veisla í tilefni þess að allir krakkarnir í bekknum voru búnir að læra heimilisfangið sitt, símanúmerið, afmælisdaginn og fullt nafn.

miðvikudagur, nóvember 02, 2005

Mikið að frétta þennan daginn

Jæja, þá er ég nú búin að afreka slatta skrif hér! Er líka búin að sauma efri hlutann á nornabúningnum, svuntu á nornina, datt í hug að það kæmi vel út) og er búin að finna trjágrein í kústinn, vantar bara einhver strá eða eitthvað þannig til að binda á hann og klára hattinn og líma "hár" á hann. Verð sko að setja inn mynd af norninni í fyrramálið! Ætli ég þurfi ekki að vakna kl. 6 til að hafa hana til og koma henni í bössinn fyrir 7:45

Mía hætt á brjósti!

Þá er þeim áfanga loksins náð... en síðasta föstudag ákvað ég að þetta væri nú orðið gott. Þetta var nú tekið í áföngum samt, var hætt að fá kvöldsopan c.a. 10 dögum fyrr eða svo, en ætlaði ekki að gefa sig með það að vakna um 5 leitið og fá sopa... og jafn vel oftar... Dúllan var nú ekkert yfir sig hrifin og öskraði fullum hálsi lengi lengi fyrstu nóttina og lét öllum illum látum, alveg ösku reið yfir þessum stælum í mér. Næstu nótt var þetta strax miklu minna mál og núna í nótt svaf hún bara alveg til 6:30 og var bara róleg í rúminu sínu í smá stund eftir að hún vaknaði meira að segja... held það hafi aldrei gerst fyrr!

En já, brjóstagjafa fitulagið hefur líka verið að láta sig hverfa smá saman af mér :) Frekar fyndið dæmi, en það er sum sé í beinu samhengi við matarlystina sem hefur farið minnkandi með minnkandi brjóstagjöf, en mér finnst hreinlega maturinn bara ekkert eins góður lengur... því miður, en líka sem betur fer... en já ég er núna á rúmum mánuði búin að minnka svo mikið að fötin mín, sérstaklega buxurnar, eru orðnar svo víðar að það er alveg með ólíkindum. En já, 67 kg segir vigtin og ég er bara ánægð með það, þó það sé nú 3 kg meira en þegar ég varð ólétt af Míu.

Enn einn foreldrafundurinn

En reyndar sá fyrsti fyrir Míu. Fór á foreldrafund á vöggustofunni á mánudaginn, það var nú bara ágætt, fengum svona helstu fréttir af rekstri leikskólans og horfðum svo á videó á myndina "jeg kan selv" eða eitthvað í þá áttina, en það fjallaði um það vandamál hvað foreldrum hættir til að hjálpa börnunum sínum aðeins meira en góðu hófi gegnir með eitt og allt, klæða sig, borða og passa upp á að þau meiði sig ekki. Þetta var ágætis pæling, maður þarf aðeins að spá í þetta, leifa barninu að prufa sjálft að borða, þó það fari út um allt til að byrja með, gefa því tíma til að klæða sig sjálft og ekki stoppa það alltaf af þó það sé kanski gera eitthvað sem gæti talist soldið hættulegt, eða við höfum ekki trú á að þau ráði við, nema auðvitað ef það er orðið stór hættulegt... Já gaman að þessu, en svo fengum við líka að heyra af ferðalagi 2 af fóstrunum til Íslands þar sem þær heimsóktu nokkra leikskóla og kynntu sér málin. Ég held það sé óhætt að segja að þær voru nú ekkert yfir sig hrifnar... áttu varla orð yfir þessum svakalega strúktúr á leikskólastarfinu, hver mínúta skipulögð og ekki mikið um frjálsan leik. Ég var nú búin að taka eftir þessum mun, fannst einhvernveginn allt vera í lausu lofti hvað skipulag varðar þegar Hekla byrjaði í leikskóla hér, en hef komist að því að þetta var ekki skortur á skipulagi starfsfólksins, heldur bara önnur speki á bakvið þetta, alls ekki verri. En já svo fannst þeim líka heldur lítið af faglærðu starfsfólki í íslensku leikskólunum, en það er nú eitthvað sem allir vita. En mesta menningarsjokkið fyrir þær var þegar þær fóru í heimsókn á leikskólann Hjalla, með kynskiptingu, nánast engum leikföngum og skólabúningum í ofanálag!!! hahaha, ég átti svo erfitt með að fara ekki að skellihlæja þegar Teresa var að lýsa þessu, sérstaklega þar sem þetta hefði getað hljómað hjá henni eins og svona væru bara íslenskir leikskólar... og henni stóð ekki á sama! En já það var fjarri því að þær skildu tilgang þess að hafa skólabúninga í leikskóla af því börnin gætu farið að keppast um hver væri í flottustu merkjavörunni... Mér þótti nú ekki mikið að þær skildu það ekki þar sem þær þekkja ekki mikið til þess mikilmennskubrjálæðis og flottræfilsháttar sem einkennir okkur íslendinga...
En þær voru nú samt mikið að pæla í þessari kynskiptingar pælingu og voru jafnvel að spá í að taka upp eitthvað svona þverdeildarlegt kynskipt starf og sjá hvernig það gæfist.

Halloween

Á morgun er Halloween partý í skólanum hjá Heklu, fengum að vita það síðasta föstudag og að allir ættu að vera dressaðir upp sem annað hvort: draugur, norn, rotta, leðurblaka, beinagrind, Drakúla, ófreskja, tröll eða köttur. Það var nú ekki margt af þessu sem prinsessunni þóknaðist að vera, en þar sem það mátti ekki vera prinsessa þá vildi hún helst vera norn. Og þá var bara eftir að redda búning... fór í dótabúðina á mánudaginn og komst að því mér til mikillar skelfingar að allir halloween búningarnir voru uppseldir nema í fullorðinsstærðum og líka allir nornahattarnir og nornanefin o.s.frv. Í gær fór ég svo í ToysRus í von um að þar væri eitthvað eftir, en fékk bara nef og málningu... þannig að ég fór bara yfir í rúmfatalagerinn og keypti svartefni til að sauma búning úr. Nú kemur sér sko vel að eiga saumavél :) Heklu leist nú ekkert á þetta hjá mér fyrst, en þegar ég kom heim úr skólanum saumaði ég pils fyrir nornina og hún var nú bara ánægð með það... núna er bara verkefni dagsins í dag að gera efrihluta og föndra nornahat... og nornakúst... sem sagt ólíklegt að ég fái mikinn tíma til að læra í dag, en þetta er náttulega mun mikilvægara verkefni!

En já, Míu leist ekkert á þetta nornadæmi, þegar Hekla setti upp nýja nornanefið í gær og svartan hatt sem hún á, þá varð Mía alveg logandi hrædd við hana og fór bara að skæla! hehe.. greinilega sannfærandi í hlutverkinu hún Hekla ;)

Tannfréttir

Jæja, þá er jaxlinn á brott. Þetta var nú miklu minna mál en ég hefði nokkur tíman getað ímyndað mér, hún deyfði mig og svo fór hún með eitthvað verkfæri upp í mig sem líktist einna helst skrújárni og sagði "ég ætla aðeins að prufa að losa um hana" og svo ýtti hún eitthvað á tönnina fram og til baka og áður en ég vissi af var tönnin bara komin út úr mér! Ekki sem verst! Er svo bara alveg að verða búin að jafna mig á þessu, verst var þegar deyfingin var að fara og ég hef nú reyndar líka verið soldið aum í kjálkanum svona eftir á og frekar andfúl og lystarlaus, en þetta var langt í frá eins slæmt og ég bjóst við.

B.t.w. Mía er komin með nýjan jaxl, er nú með framtennurnar 8 og jaxl uppi og niðri hægramegin, en engan vinstramegin enn þá... En hún er sko ekki í vandræðum með að tyggja, það sem barnið getur borðað er alveg með ólíkindum! Borðar stundum mest af öllum í fjölskyldunni í kvöldmatinn, þó hún sé lang minnst!

sunnudagur, október 30, 2005

Vetrartími

Jæja þá er kominn vetrartími hér í dk, síðasta nótt var sum sé klukkutíma lengri en gengur og gerist og núna klukkan 17 er eiginlega bara komið myrkur! Mía er bara enn þá sofandi úti í vagni í myrkrinu en Hekla er komin inn, ómögulegt að hafa hana úti að leika sér í myrkrinu. En já veturinn er greinilega að skella á, og farið að auglýsa jóla-allt mögulegt í öllum auglýsingapésum, ég er svo fyrirhyggjusöm að ég er meira að segja búin að kaupa jóladagatal sem þó á ekki að byrja á fyr en eftir rúman mánuð! Í fyrra var ég sko í mestu vandræðum með að finna dagatal þann 1. des... þau voru bara nánast uppseld, endaði með að kaupa eitthvað fáranlega dýrt í einhverri konfektbúð. Er nú ekki farin að gera frekari jólakaup en það þó, en núna er víst tíminn til að vinda sér í þetta, endalaus tilboð hér út um allan bæ!

þriðjudagur, október 25, 2005

Meira um tennur...

Jæja er loks laus vid tannverkinn, tannlæknirinn hreinsaåi svæåiå og tok mynd og gaf mer pensilin, en eg a sem sagt aå taka pensiliniå i viku til aå losna viå bolguna og mæta svo næsta manudag og ta ætlar hun aå kippa tessum endajaxli ur :/ A aå vera voåa auåvelt tvi hann er ekki meå neitt rosalegar rætur og er allur kominn upp... sagåi reyndar aå hun gæti kanski turft aå bora eitthvaå ur kjalkanum til aå na honum ut... *føln*... en ta er bara aå vona taå besta...

En er sem sagt mætt i skolan i dag, eftir svefnlitla nott, er i tima til kl. 17 en verå aå fara eitthvaå fyrr tvi tad er fjølskylduskemmtun i bekknum hennar Heklu fra 17 til 20 i kvøld og eins gott aå vera mættur kl. 17 tvi ta eru skemmtiatriåi :) Allir eiga aå koma meå mat, nanar tiltekiå uppahaldsmat barnsins sins, vid ætlum aå taka lifrarpylsuna sem eg er buin aå vera aå lura a i frystinum, tad veråur spennandi aå sja hvernig danirnir fila lifrarpylsu!