föstudagur, júlí 01, 2005

350D :)

Jæja í dag kom nýja glæsilega Canon 350D vélin okkar með sendlinum. Hún er vægast sagt algjört æði!!! Er nú ekki búin að læra almennilega á undrið enn þá, en er byrjuð að taka myndir á fullu á bara svona átómatískum stillingum. Þetta er bara alveg mögnuð vél og virkar svo hundrað sinnum betur en gamla skrapatólið að því er nú bara ekki saman að jafna...

En já fyrir þá sem ekki hafa fylgst með er mikill ljósmyndunar áhugi vaknaður hjá mér, ekki bara að taka myndir af dúllunum, heldur hef ég verið að taka þátt í ljósmyndakeppni á netinu, en það gengur nú bara svona lala enn sem komið er... en nú fer náttulega snilldin að spretta fram með nýju græuna ;)

Betra seinnt en aldrei!

Jæja, langt síðan eitthvað hefur verið skrifað hér og ýmislegt að frétta.

Við Fríða erum búnar með verkefnið og búnar að verja og allt og gekk bara fínnt. Fyrir áhugasama má finna verkefnið okkar hér, gríðarlega skemmtileg lesning!

Hér eru annars allir hressir, sumarið er komið og hér hefur verið þetta fína sumarveður undanfarið. Til að tæpa á því helsta sem ekki hefur verið bloggað um á undanförnum vikum og mánuðum þá...

Ömmurnar komu til okkar 22. maí og voru til 2. júní. Dvöl þeirra hófst á því að við skruppum til Lalandia og dvöldum þar í 3 nætur. Systurnar skemmtu sér vel í "Badelandinu", en ömmurnar voru ekki alveg jafn hrifnar af því ;) Annars vildi svo óheppilega til að Kristín varð lasin í ferðinni og þurfti því að gjöra svo vel og leggjast í rúmið og eyða dágóðum parti af fríinu þar.

Þann 31. maí var svo síðasti dagurinn hennar Heklu Sólar í leikskólanum, hún er orðin svo STÓR! Í tilefni þess að þau stæðstu voru að hætta í leikskólanum var haldin hátíð, þau léku leikrit um ævintýrið Eldfærin og stóðu sig með príði og allir komu með einhvern rétt eða köku og svo borðuðu allir saman í Centrinu. Já og núna er Hekla sum sé byrjuð að vera á frítíðsheimilinu Sólsikken í staðinn, en það er beint við hliðina á gamla leikskólanum. Þar kemur hún svo til með að vera eftir skóla næsta vetur. Hún kann mjög vel við sig á Solsikken, þar er sko ýmislegt spennandi hægt að gera auk þess sem krakkarnir eru MUN frjálsari þar en á leikskólanum. Það eru naggrísir og hænur úti á lóðinni og svo er þarna smíðaverkstæði og saumavélar og einhver svona klifur og leikherbergi og playstation og fleira, en þetta er allt saman mjög heimilislegt.

Mía Malín er komin með 8 tennur og er farin að bíta frá sér ef á þarf að halda... hún er nú ekki farin að tala sérlega mikið, segir jæja, hæ, mamma, babba, ekla, namm namm og eitthvað lítið annað, hún er hinsvegar farin að labba :) hún er löngu farin að taka eitt og eitt skref á milli hluta, en 8. júní byrjaði hún að taka svona 5-6 skref ef maður lokkaði hana til að labba til sín og síðasta sunnudag byrjaði hún svo að labba sjálf út á mitt gólf án þess að halda í neitt. Frekar óörugg með sig enn þá og skellir sér bara á hnén og skríður ef mikið liggur við, en er sífellt að verða öflugri í þessu. Hún eignaðist alvöru skó í síðustu viku og gengur bara vel að labba á þeim, en þá eignaðist hún líka svona "labbivagn"... fórum í IKEA og leifðum henni að prófa svona vagn og hún bara rauk á stað með hann og hefði örugglega helst viljað labba með hann út um alla búð, svo auðvitað keyptum við svona handa henni ;)

Hekla Sól var í koloni með Solsikken í síðustu viku, já hún var alla vikuna í burtu! Fór á mánudegi hjólandi með liðinu, 9 km leið í skátakofan sem þau gistu í upp í Værløse, og kom hjólandi til bara á föstudeginum. Þetta gekk bara eins og í sögu og hún skemmti sér ofsalega vel og kom bæði flóa og lúsalaus heim :)

En já hér hefur ríkt mikið lúsafár undanfarið, byrjaði þannig að við fundum eitthvað skrítið dýr í hausnum á Míu og við nánari athugun var þar um hlussu stóra lús að ræða, engar fleiru reyndust þó leynast í Míu, enda ekki auðvelt að leynast þar... en Hekla reyndist grálúsug þegar farið var að rannsaka málið og var þá farið að kemba á fullu. Ég og Hörður sluppum nú bara vel, en í okkur fundust aðeins 2-3 stykki og til allrar hamingju virðast þessi heimilisdýr ekki hafa tekið sér bólfestu í okkur... en nú er búið að útrýma þessum 6 fættu elskum á þessu heimili í bili.

föstudagur, júní 03, 2005

Tönn nr. 6

Hmm... ég ætti kanski að fara að blogga aftur...

En já vissi ekki hvar ég ætti að skrifa það svo ég skrifa það bara hérna, en Mía Malín er komin með sína 6. tönn, hægramegin við hægri framtönnina í efri góm. Sú vinstramegin við vinstri framtönnina kom fyrir svona 3-4 vikum síðan.

þriðjudagur, apríl 26, 2005

Jæja jæja og gnístran tanna!!!

Jæja, í gær losnaði eitthvað um málbeinið í henni Míu og hún bara byrjaði að tala :) Hún hefur nú ekki sagt mikið fram að þessu, hélt hún væri farin að segja "mamma" um daginn en svo bara var það ekki... En í gær byrjaði hún að segja "jæja" og segir það víst í tíma og ótíma síðan og sagði meira að segja "HÆ" við mig þegar ég kom heim úr skólanum. Er annars alltaf í skólanum þessa daganna, allt á fullu í að klára verkefnið og við Fríða sitjum sveittar við, en þetta fer nú að klárast hvað úr hverju...

Já svo held ég bara að Mía sé komin með báðar framtennurnar í efrigóm, þe. ég held þær hafi bara báðar komið upp í nótt, því í morgun var litla dúllan byrjuð að gnísta tönnum upp í eyrað á mér... ughh... en þær eru báðar búnar að vera við það að koma upp í nokkra daga. Mía er annars búin að vera hálf kvefuð og Hörður fór með hana tíl læknisins í dag því hún hóstaði svo mikið í nótt og er líka búin að vera með nefrennsli meira og minna síðan hún fékk lungnabólguna. En hún reyndist stálhraust og bara soldið kvefuð :)

Jæja best ég haldi árfam að vinna...

mánudagur, apríl 18, 2005

Jæja!

Ekki mikið bloggað hér þessa daganna! En já það er nóg að gera hjá mér í verkefninu sem er á loka sprettinum.

Dæturnar eru bara hressar, Hekla fékk línuskauta um daginn og er nú á fullu í að renna sér á þeim. Gekk ekkert voða vel í fyrsta skiptið, en mun betur í annað skiptið og nú er þetta allt að koma ;) Mía er ekki alveg komin á línuskautanna en hjá henni er nýjasta trixið að prufa að standa og sleppa báðum höndum, stendur reyndar enn ekki nema í nokkrar sekúndur svona fríhendis, en hikar ekki við að prufa sérstaklega ef hún hefur einhvern nálægt sér til að láta sig detta á... En já, Mía er líka farin að skríða alveg hefðbundið 4 fóta skrið núna og er alveg að fara að fá framtennurnar uppi, en þær skína alveg í gegn.

En jæja hef örugglega fullt annað að skrifa, en má bara ekkert vera að þessu núna, er að fara að horfa á Lost :)

mánudagur, apríl 11, 2005

Er ekki bara frakki innra með mér...





Your Inner European is French!









Smart and sophisticated.

You have the best of everything - at least, *you* think so.


fimmtudagur, apríl 07, 2005

Netið er komið aftur! :)

Jæja þá er netið á kollegíinu komið aftur, ja eða allavega eitthvað bráðabirgða net, en það er verið að skipta um netfyrirtæki þar sem það er búið að vera eitthvað bull í gangi með þetta sem var.

En já, vorið er svo sannarlega komið hér um slóðir, hitinn kominn vel yfir frostmarkið og húfan og vetlingarnir ekki lengur í notkun, segi nú ekki að það sé neitt rosa heitt samt en ekki kalt er bara mjög fínnt í bili. Hekla er því náttulega öllum stundum úti að leika sér. Í gær fór hún að heimsækja Önnu vinkonu sína eftir leikskóla en mamma hennar kom og sótti þær báðar á leikskólan og þær voru heima hjá Önnu að leika sér til klukkan 6. Hekla var búin að bíða lengi eftir að fá að fara að heimsækja hana Önnu svo þetta var allt voða gaman, en já Anna er sem sagt dönsk og býr ekki á kollegíinu en ekkert langt frá samt, en aðeins of langt til að þær geti farið einar á milli. Hekla er annars búin að vera mikið að leika við hana Helgu Sóley vinkonu sína af leikskólanum undanfarið, þær fara saman í skóla næsta vetur og virðast vera orðnar ágætis vinkonur.

miðvikudagur, apríl 06, 2005

Netlaust á Kagså :(

Þvílík eymd og volæði! Það er búið að vera netlaust heima hjá okkur núna síðan á föstudag og sér ekki fyrir endan á því, veit varla hvað ég á af mér að gera... Þetta hafði svo slæm áhrif á mig á föstudaginn að ég lagðist í rúmið með magapínu um kvöldið og gubbaði og gubbaði um nóttina, fékk háan hita og var bara alveg að drepast. Dróst ekki út úr bælinu fyrr en á sunnudagskvöldi en dreyf mig svo í skólan á mánudagsmorgninum, var öll önnur eftir að hafa komist aðeins á netið í skólanum ;)

Nú er bara allt á fullu í verkefninu, höfum ekki nema til 1. Maí svo nú þarf sko að taka á því! En þetta er líka allt að koma, GAMSið svo gott sem tilbúið og algórithminn líka, en við erum að fara að ráðast í að tjúna og testa bara sem allra fyrst.

miðvikudagur, mars 30, 2005

Solsikken

Nú á Hekla að fara að byrja í aðlögun á Solsikken, en það er svona "fritidshjem" eða skóladagheimili þar sem hún mun byrja í júní og kemur til með að vera næsta vetur eftir skóla. En núna verður hún sum sé þar á föstudögum út maí til aðlögunnar. Það er nú ekki langt að fara því Solsikken er bara við hliðina á leikskólanum hennar og er meira að segja hlið af leikskólalóðinni yfir á lóðina þar. Þarf eiginlega að fara og taka myndir og sýna ykkur, þetta er mjög ævintýralegur staður...

Hún byrjar nú samt sjálfsagt ekki næsta föstudag, því þá eru þau í stórugrúbbunni á leikskólanum að fara niður á Rådhuspladsen að taka þátt í hátíðarhöldum í tilefni af afmæli H.C Andersen. Það verður sjálfsagt fjör!

Hekla er annars voða hress þessa daganna og mikið að gerast hjá henni, kærastarnir koma og fara í löngum bunum... allavega 3 á síðustu 10 dögum eða svo ;) En það er ýmislegt verði að bralla og hún farin að geta verið meira úti að leika þar sem það er nú loksins farið að vora.

Mía á ferð og flugi

Jæja það er ekki nóg með að Mía sé búin að ná tökum á því að skríða um allt heldur er hún líka farin að fikra sig áfram í að ganga meðfram húsgögnunum! Komst líka að því í fyrradag að hún getur labbað ef maður heldur í hendurnar á henni! Algjör hetja ;) En hún er jú fyrir vikið orðin stór hættuleg, hún er nefnilega alveg sátt þegar hún er að gera eitthvað af sér og ekkert með nein læti þá ;) tók meðal annars sjónvarpið úr sambandi í morgun þegar við vorum eitthvað ekki með augun á henni... og í gærkvöldi var hún áður en við vissum af komin inn í herbergið hennar Heklu að leita sér að einhverju skemmtilegu dóti til að leika sér með...

mánudagur, mars 28, 2005

Skríðandi Mía!

Já haldiði ekki að hún Mía sé bara farin að skríða, þ.e.a.s. beint áfram! Var nú farin að veltast um og bakka og snúa sér á alla kanta og þokast um fyrir löngu, en á undanfarinni viku er hún farin að komast leiðar sinnar beint áfram! Nú er allt í hættu og eins gott að setja hana í grindina þegar enginn er að fylgjast með!





Hér er verið að testa þetta ;)

Páskar

Jæja þá er kominn annar í páskum og heilsufarið á heimilinu enn hálf slappt, en þó er Mía öll á uppleið, hóstaði reyndar soldið mikið í nótt, en er hressari og andar nokkuð eðlilega. Verst að nú er ég komin með kvefið og orðin heldur slöpp. Vonandi er þetta nú ekki alveglegt samt því ég verð nú að fara að vinna eitthvað i verkefninu, en það hefur ekki gefist færi á að vinn í því um páskanna eins og ráðgert var...

En já við erum nú bara búin að hanga meira og minna inni þessa páska, en höfum þó fengið nokkra gesti. Á fimmtudaginn komu Margrét og Bubbi í heimsókn, en þau voru hér á viku ferðalagi og skemmtu sér held ég ágætlega. Þau borðuðu hjá okkur um kvöldið og sötruðu svo með okkur smá bjór og skjaldbökulíkjör fram eftir kvöldi :) Á föstudaginn kom svo Fríða í mat til okkar og borðaði með okkur franskar Berberrie andabringur sem smökkuðust ágætlega. Í gær páskadag buðum við svo Steinunni í mat, en hún var nýkomin úr viku páskafríi á Íslandi og kom færandi hendi með grautinn góða :) Snoopy litli páfagaukur fór svo aftur heim með henni eftir viku dvöl í pössun hjá Heklu Sól.

Margrét flutti til okkar páskaeggja sendingu frá mömmu svo hér fengu allir íslensk páskaegg, nema auðvitað Mía Malín, en hún fékk nýbruggaða páskaeggjamjólk hjá múttu sinni ;) Hekla var svo búin með sitt egg og hluta annarra löngu fyrir kvöldmat, ekki lengi að þessu, nammigrísinn sem hún er! Núna er hún svo í afmæli hjá Evu vinkonu sinni í næsta húsi og eflaust fær hún eitthvað nammi þar ;) Hér er hún ferðbúin rétt áðan:


laugardagur, mars 26, 2005

Á batavegi :)

Jæja þá er dúllunni nú farið að batna, er ný sofnuð og andar núna ekki nema 43 á mínútu, miðað við 50 til 60 sinnum á mínútu í gær. Hún er líka bara öll önnur, hressari og sprækari og hitalaus í dag. Okkur fannst nú reyndar áhyggjuefni hversu illa gengur að koma meðalinu ofan í hana, en þetta er pensílínduft sem maður svona leysir upp í vanti og gefur henni með skeið eða sprautar því upp í hana og hún er sko alls ekki hrifin af þessum viðbjóði og reynir af fremsta megni að frussa þessu út aftur... tókst reyndar aðeins betur í kvöld þegar ég setti þetta út í A38 mjólk (sem er svona nokkurskonar AB mjólk ef ég skil þetta rétt), en hún ætti líka að bæta meltinguna því pensilín fer jú ekki vel í maga... Mía gubbaði einmitt nokkru eftir að hafa fengið meðalið í morgun og var komin með niðurgang i kvöld... en eitthvað af meðalinu er greinilega að skila sér og vonandi nóg, en ég tók eftir því þegar ég las leiðbeiningarnar að hún er að fá skammt sem ætti að duga 15 kg barni en hún er ekki nema í mestalagi 9 kg held ég... svo það ætti að sleppa þó þriðjungur fari fyrir ofan garð og neðan...

En já við erum sum sé bara búin að vera heima í dag og Hekla fór ekki einu sinni úr náttfötunum í dag, hún er sko heldur betur að njóta þess í páskafríinu að slappa af heima hjá sér ;) ef hægt er að tala um að hún slappi nokkru sinni af...

föstudagur, mars 25, 2005

Lungebetændelse

Aumingja Mía Malín sem er búin að vera svo kvefuð er núna barasta komin með lungnabólgu litla greyið :( Seint í gærkvöldi byrjaði hún eitthvað að rumska og var þá með smá hita og svo tókum við eftir að hún var farin að anda svakalega hratt og hóstaði líka slatta. Svona var hún svo alltaf að rumska í alla nótt voðalega lítil og aum. Í morgun áváðum við svo að tala við læknavaktina og fórum svo með hana þangað, en það er upp á Herlev Amtssygehus. Læknirinn hlustaði hana og sagði að hún væri með væga lungnabólgu og lét okkur fá pensilín til að gefa henni strax og Hörður og Hekla fóru svo í apótekið í Lyngby að ná í skammtinn. En ef hún versnar eitthvað eigum við að koma með hana strax aftur því þá þarf hún að fara á spítala... svo við vonum bara að pensilínið reddi þessu! Þurfti nú að pína það ofan í hana áðan, en hún var sko allt annað en hrifin af því og stór móðguð útí mig að fara svona með hana :/ En síðan er hún svo búin að sofa í allavega einn og hálfan tíma sem er mjög gott miðað við svefn næturinnar.

miðvikudagur, mars 23, 2005

Vor í lofti

Jæja nú held ég að hljóti bara að vera að vorið sé að koma, þegar ég var að labba heim úr strætó í dag um hálf sjö leitið var svo hlýtt að ég hvorki setti á mig vettlinganna né renndi upp jakkanum og var samt bara frekar heitt! Hefði ég ekki verið með þunga innkaupapoka í báðum höndum og verið að flýta mér þá hefðfi ég örugglega rennt niður flíspeysunni! Svo er líka komin svona hálfgerður vorilmur í loftið, svona einhvernveginn rakara og ferskara loft en verið hefur lengi lengi. Þegar ég kom heim sá ég svo að það voru hvorki meira né minna en 10 gráður á mælinum :)

Undanfarið hefur líka verið sól og ég er meira að segja búin að dusta rykið af gömlu sólgleraugunum, svo nú má sumarið bara fara að koma ;)

Vorloftið fer annars ekki svo vel í Míu Malín eða hún er allavega alveg ferlega kvefuð litla greyið, alveg að drukkna í hori :/ vonum bara að þetta fari að lagast hjá henni. Hekla er hinsvegar hraust og spræk og byrjaði í páskafríinu í dag og naut þess vel, var að leika við Birtu og voru þær víst all hressar saman eins og oft áður... nóg að gera hjá Herði. Hjá mér er annars lítið páskafrí, nóg að gera í verkefninu, ætla samt að taka mér frí á morgun því þá koma Margrét og hann Bubbi hennar í heimsókn til okkar :) En svo verður föstudagurinn langi nýttur til hins ýtrasta, vona bara að hann verði nógu langur... hehehe.

Jæja Hörður fór í bæinn á eitthvað djamm með fótboltastrákunum í kvöld og ég er bara að bíða eftir að Orange County byrji... ekki segja neinum að ég horfi á þetta... en ég skil það varla sjálf, þvílík vitleysa sem þetta er... en Desparate Housewives var ekki sýndur í gær á norsku stöðinni og ekki Joey heldur :( og Lost þátturinn á mánudaginn var ekkert spes, ekkert á við síðustu þætti sem hafa verið algjör snilld, svo nú er bara að vona að O.C. fari fram úr björtustu vonum ;)

sunnudagur, mars 20, 2005

Skype

Jæja þá erum við búin að uppgötva Skype og ágæti þess, svo ef þið viljið tala við okkur þá er bara að skæpa í okkur :) eða þannig. Fyrir þá sem ekki þekkja Skype þá er þetta svona forrit, ekki ólíkt msn messenger í notkun, nema í þessu talar maður bara rétt eins og í "audio conversation" í messenger við viðmælandan, en það krefst náttulega míkrófóns og hátalara... Svo erum við líka búin að uppgötva fídus í þessu sem heitir "skype out", en þá getur maður hringt í síma víðsvegar um heiminn geng lágu gjaldi. Það kostar þá ekki nema um 3 ísl.kr. mínútan svo þetta er bara svona eins og innanlands símtal :)

En endilega bara allir að fá sér Skype og tala við okkur frítt!

Við erum annars bara sæmilega hress, nema Mía Malín sem er búin að vera svakalega kvefuð og pirruð í dag. Það lekur endalaust hor úr nefinu á henni og hún hefur sofið stutt og borðað lítið, en verið samt bara frekar hress þegar hún hefur haft athygli mína óskerta. Hún var meira að segja farin að sína ákveðna skrið tilburði hérna í morgun, fór upp á fjóra og skreið áfram með höndunum, komst reyndar ekki langt þannig en nú er bara spurningin hvenær fæturnir fara að fylgja með ;)

Stefán bróðir Harðar og Solla konan hans komu í heimsókn til okkar í gær, en þau eru í helgarferð hér í danaveldi og létu vel af ferðinni só far. Við buðum þeim í mat og Hörður fór svo með þeim á tónleika með Emelíönu Torríní. Það var víst gaman á tónleikunum og allt fullt af íslendingum náttulega, en Herði fannst músíkin nú eitthvað ekki upp á marga fiska... ja eða nýju lögin hennar allavega alveg "dead boring" svo ég hafi það rétt eftir...

miðvikudagur, mars 16, 2005

11 dagar til Páska

Jæja, hér eru allir hressir, soldið sifjaðir en sæmilega hressir... Mía er búin að vera að taka upp á því undanfarið að vakna aftur á nóttunni til að heilsa upp á móður sína, við lítinn fögnuð móðurinnar... en kanski bara saknar hún mín svona mikið á daginn ;) Ég er mikið í skólanum þessa daganna, farið að síga á seinnihlutann í verkefninu, max 6 vikur eftir... en 4 skv. núverandi plani. Eigum eftir að bæta soldið við algórithman og klára gamsið sem er annars farið að virka og svo náttulega parametertjúna og testa og síðast en ekki síst skrifa heilan helling...

Við Fríða lyftum okkur nú samt aðeins upp í dag og fórum á svona fyrirtækja kynningu í skólanum, fyrirtæki að kynna starfsemi sína og stúdentar að kanna atvinnutækifæri... Þetta var nokkuð fróðlegt, reyndar heldur fá fyrirtæki sem höfðu áhuga á okkar sérsviði fannst okkur, en við fengum fullt af pennum og slatta af nammi og fengum að taka þátt í all nokkrum svona keppnum... þe. svara nokkrum spurningum og eiga svo kost á að vera dregnar út og vinna eitthvað.

Jám, annars lítið að frétta nema Mía er öll í því að standa á fætur þessa daganna og vill held ég helst bara hoppa eða dansa :) svaka kraftur í henni. Höfum tekið eftir því undanfarið að hún vaggar sér í takt við tónlist, þe. þegar kveikt er á músikinni byrjar hún að dilla sér og um leið og tónlistin slökknar stoppar hún aftur, algjört undrabarn ;)

Hekla er alltaf söm við sig og er farin að hlakka til Páskanna þar sem hún eygir von um að fá stórt og fallegt páskaegg, getur varla beðið!!

laugardagur, mars 12, 2005

Hún stendur!!!

Jæja, ekki nóg með að Mía Malín ákvað að setjast upp í gær, heldur stóð hún loks alveg upp á fæturnar í grindinni sinni í dag :) og það náðust meira að segja tvær myndir af henni áður en hún svo settist salla róleg niður aftur alveg sjálf :)



Hekla hafði hengt vasaljósið sitt á grindina og vakti það slíkan áhuga þeirrar stuttu að hún hefur hreinlega orðið að standa upp til að skoða þetta betur.

En því fylgja víst hættur að vera svona dugleg, því stuttu seinna þegar ég hafði sett hana á gólfið fyrir utan grindina og henni tekist að þoka sér á rassinum að nærliggjandi kolli þá hefur hún sjálfsagt verið að myndast við að reyna að standa upp við hann, en endaði á bakinu á gólfinu með miklum skarkala með kollinn í fanginu :/ Hún grét náttulega heil ósköp og móðir hennar fékk vægt taugaáfall, en dúllan var ekki lengi að jafna sig, fékk smá far á ennið þar sem kollurinn lenti á henni og litla skrámu á nefið eftir hann en ekkert að ráði samt.

Nú er eins gott að fara að gera heimilið "barnhelt" svo hún slasist ekki frekar... það var reyndar soldið fyndið að ég var nýbúin að lækka botninn í rúminu hennar niður í neðstu stöðu í dag áður en hún stóð upp, mátti greinilega ekki seinna vera.

Var sem sagt að setja inn nokkrar nýjar myndir á smugmugið, hér er ein af fyrstu tilraun dúllunnar til að setjast upp í gær, tókst ekki í það skiptið en hafðist í næsta.



Upprennandi fimleika drottning ;)

Desperate housewives

Jæja fyrir ykkur sem fylgjast með þessum frábæra þætti þá hef ég komist að því hverri þeirra ég líkist mest ;)

Endilega takið prófið!

En já samkvæmt því er ég Lynette, tók prófið 3svar, það koma sko mismunandi spurningar, en í öllum tilraunum kom það sama út, hehe...

Lynette

You gave up a great job for this? No oe really appreaciates you, and yet you slog on, with very little sleep and very little thanks. Who can blame you when you occasionally lose it? Hang in there. Just lay off the Ritalin!

Fór á barinn!!!

Jæja, ég sem aldrei fer neitt skellti mér á Kagså barinn í gærkvöldi ásamt nokkrum úr mömmugrúbbunni. Það var bara fjör hjá okkur, drukkum nokkra bjóra og svona og spjölluðum. Þetta fer að verða fastur liður hjá okkur og stefnum við á að skreppa í bæinn næst í almennilega djammferð ;)

Lífrænir grautar og bröltandi Mía

Jæja í gær fór ég í bæinn og keypti lífræntræktaða grauta handa allri fjölskyldunni. Einn mjög góðan úr spelti, byggi og höfrum með möndlum og hökkuðum döðlum út í, en við Hekla fengum okkur svona graut í hádeginu og hann var mjög góður. Keypti líka spelt graut handa Míu sem hún fékk í gærkvöldi og aftur í hádeginu og líkaði bara mjög vel. Núna fær Mía sum sé bæði Gerber grautinn sem Steinunn var svo góð að koma með frá Íslandi fyrir okkur, en hann er járnbættur ólíkt því sem hér tíðkast, og líka lífræntræktaðan hafragraut og svo einstaka danskan mjólkursullsgraut... en ég er ekkert yfir mig hrifin af þessum dönsku ungbarnagrautum þar sem þeir virka frekar dularfullir, þe. maður hrærir svona graut út í vatni eins og segir á pakkanum og hann er mátulega þykkur og svo fer maður að gefa barinu og þegar maður er hálfnaður að gefa barninu er eins og grauturinn sé farinn að þynnast upp og verður bara að einhverju sulli!?! Það er eins og það séu einhver hleypiefni í þessu sem virka ekki nema takmarkaðan tíma eða eitthvað?!?

En allavega þessir lífrænugrautar eru fra Aurion og er því miður bara hægt að kaupa í sérstökum heilsuverslunum, en þeir eru samt ekkert svívirðilega dýrir neitt. En svona er þetta bara alltaf á dönskum matvörumarkaði maður getur sko ekki stólað á að fá allt í sömu búðinni heldur verður maður að hafa mikið fyrir því að finna út hvar hlutirnir fást og svo helst ekki kaupa neitt nema á tilboði því það munar sko mjög miklu.

En nóg um það, í gær tókst Míu að setjast upp þegar hún var eitthvað að brölta í rúminu okkar. Hún er að verða svo stór! Hún er nú samt ekki farin að skríða neitt af viti, bara mjakast svona aðeins um og veltir sér, svo hýfir hún sig upp og stendur á hnjánum og heldur sér í :)

miðvikudagur, mars 09, 2005

Myndir

Nýlega búin að setja inn nýjar myndir :)

þriðjudagur, mars 08, 2005

Litla dúllan

Já Mía Malín er ansi spræk þessa daganna, alltaf að stækka og stækka. Við keyptum okkur nýjan bala á laugardaginn, en hann er talsvert stærri og hærri en gamli IKEA balinn og í gær þegar pabbi hennar var að baða hana gerði hún sér lítið fyrir og hýfði sig upp og stóð upp í balanum. Hún er nú samt ekki farin að standa alveg upp við rimlanna í grindinni, en fer bara upp á hnén og stendur á þeim við rimlanna, skynsamt barn hún Mía ;)

Já og núna er ég sko orðin alveg sannfærð um að hún segir Mamma :) þegar ég fer út úr herberginu byjrar hún nefnilega oft að kalla Mamma! reyndar kallar hún pabba sinn víst líka mömmu þegar ég er ekki heima, en það er aukaatriði.

Jæja best ég fari að horfa á Desperate housewifes og Joey á norsku stöðinni :)

Framtíðarstarf óskast í framtíðinni

Jæja þá er ég farin að búa í haginn fyrir framtíðina og skellti mér á fyrirlestur í dag um atvinnuumsóknir, CV gerð, hvernig ber að haga sér í atvinnuviðtölum og fleira í þá áttina. Ég get nú ekki sagt að ég sé uppfull af eftirvæntingu að byrja á þessu, en það er víst ágætt að byrja að undirbúa sig með góðum fyrirvara, sérstaklega þegar maður er ekki með 13 í meðaleinkun og hefur varla unnið launað handtak á þessari öld! Að ég tali nú ekki um þegar maður hefur heldur ekki tekið að sér stjórnunarhlutverk í félagsstörfum, en ég get nú mögulega reynt að gera eitthvað í því ;)

En já svo er bara að fara í persónugreiningu á sjálfum sér til að gera það gott í atvinnuviðtölum og geta gert almennilega grein fyrir persónueinkennum sínum og rakið kosti sína og galla (gæta sín samt á að fara pent í gallanna). Svo lærði ég líka að það er lykilatriði þegar maður fer í atvinnuviðtal að tala í það minnsta 50% af tímanum sem maður er í viðtalinu, en það þykir víst mjög vænlegt til árangurs! En þá er líka mjög mikilvægt að undirbúa sig vel svo maður bulli nú ekki bara tóma vitleysu ;)

sunnudagur, mars 06, 2005

Djöfuls GAMS

Jæja eins og komið hefur fram hérna einhvertíman er ég búin að vera lengi lengi lengi að reyna að fá rétta lausn á módelinu í verkefninu með hinu ágæta verkfæri GAMS. Núna er mesti GAMS sérfræðingur DTU búinn að líta á málið og jú það var sko ekki allt sem skildi... fékk samt upplýsingar frá honum fyrir helgi sem áttu að redda málunum, en nei þetta er ekki alveg að virka... fyrir þá sem eitthvað vit hafa á málunum er þetta eitt af því dularfulla sem GAMSið er að gera:


...Presolve found the problem infeasible or unbounded.
Rerunning with presolve turned off.
Final solve did not return an optimal solution.
Proven optimal solution.

MIP Solution: 93.920391 (452 iterations, 20 nodes)
Final Solve: 5.801256 (378 iterations)

Best possible: 93.920391
Absolute gap: 0.000000
Relative gap: 0.000000



**** REPORT SUMMARY : 11 NONOPT ( NOPT)
0 INFEASIBLE
0 UNBOUNDED

laugardagur, mars 05, 2005

Gamlakonan fór á kattasýningu

Jæja, ég rauk á fætur kl. 6:35 í morgun þar sem Sólina hafði verið að dreyma eitthvað skelfilegt og fór svo að klára þvottastússið þegar þvottahúsið opnaði kl. 8. Svo ákváðum við að skella okkur út í sólina (og ísa kuldan) og fórum á kattasýningu í Herlev Hallen, þar voru til sýnis fjöldinn allur af köttum og margir rosa flottir, ef ekki bara allir. Sá sem mér fannst nú sérstakastur var Sphinx köttur, en hann var gersamlega hárlaus og allur í línum og hrukkum, merkilegt kvikindi. Abyssiníu kettirnir voru líka rosa flottir, kanski fáum við okkur einn þannig... einhvertíman í ellinni ;)

Yfir kvöldmatnum kom svo aldur okkar foreldranna til umræðu. Hekla var að leika mömmu okkar og skrældi fyrir okkur kartöflur og svona ;) og sagði að við værum 4 og 5 ára börnin hennar, þá datt mér í hug að spurja hvað hún væri þá gömul og hún varð hálf ráðvilt á svip svo ég spurði hvort hún mundi nokkuð hvað ég væri gömul? Hún hugsaði mikið og sagði svo "Ja svona 167 ára!" þá vildi ég náttulega vita hvað pabbi hennar væri gamall, en hún hélt að hann væri bara svona um 69 ára ;) Hmmm svo hann væri nú þá bara svona 100 árum yngri en ég... er núna búin að segja henni að ég sé 26 ára... bara svona til að fyrirbyggja allan misskilning ;)

Nafnamál

Jæja við vorum loksins að fá bréf frá Statsamtinu varðandi umsóknina um íslenskt eftirnafn á Míu, í þessu bréfi stendur að umsóknin og fylgiskjöl hafi verið send til Familiestyrelsen (veit ekki einu sinni hvað það nú er) og verði meðhöndluð þar á næstu 1 - 3 mánuðum, en þegar þeirra "udtalelse" verður móttekið hjá Statsamtinu verður málið "færdigbehandlet" hjá þeim... úff guð má vita hvað það tekur svo langan tíma, það eru nú þegar 5 vikur síðan við sendum Statsamtinu gögnin sem vantaði með umsókninni... vonandi bara að barnið verði komið með nafn áður en það byrjar í leikskóla...


En varðandi nafnamál, Hekla hefur nú mikið spáð í nöfn undanfarið og ekki er ýkja langt síðan hún vildi helst bara láta kalla sig Sól eða Ungfrú Sól :) En núna er hún sko búin að finna betra nafn og tjáði okkur um daginn að hún vildi gjarnan fá nýtt nafn ;) ekki fannst mér það nú svo voðalega sérstakt, öllu fyndnara fannst mér að hún vildi fyrir alla muni heita Jósefína!!! hahaha, sennilega það sem ég hefði síst viljað heita í æsku ;)

Ormur Ormsson

Jæja árans ormurinn lét aftur á sér kræla á aðfaranótt föstudagsins, lífseigt helvíti, en samkvæmt fræðunum átti það nú að taka hann minnst 14 daga að snúa aftur en það liðu nú ekki nema 9. Við höfðum þá samband við lækninn okkar á föstudagsmorguninn og hann lét okkur hafa eitthvað annað lyf sem allir tóku svo á föstudaginn, svo á að taka það aftur eftir 2 vikur og einu sinni enn 2 vikum eftir það. Nú er bara að vona að það vinni á plágunni.

En já það er því búið að þvo og þvo og þurrka og ryksuga og þvo og þvo allt heila klabbið aftur... ohh samt allt í rúst hérna, en vonandi njálg-eggja laust samt. Hluti af dótinu hennar Heklu var svo sett í sóttkví niður í geymslu þar sem það fær að dúsa í 2-3 vikur, en það er líftími eggjanna við stofuhita... hef verið að spá í hvort þau geymist betur eða verr í hita eða kulda? Hvort það væri fljótlegra að drepa eggin úr kulda úti á svölum en í fun heitri geymslunni? Endilega ef þið hafið hugmynd um það, látið mig vita!

miðvikudagur, mars 02, 2005

Snjór og Tannlæknir

Jæja hér snjóar og snjóar villt og galið og allar samgöngur úr lagi gengnar. Í gær var ég í rétt tæpan klukkutíma í strætó á leiðinni heim, sem venjulega tekur um 15 mínútur! Í morgun fór ég svo til tannlæknis niðrá Østerbro, ákvað að leggja tímanlega af stað þar sem mig grunaði nú að snjórinn gæti sett strik í reikninginn og ó jú það stóðst, mér gekk fínnt að hjóla í snjónum út á strætó stopp og strætó var bara á ljósunum svo ég var rosa glöð og hljóp yfir götuna og náði honum... nema hvað, þegar hann ætlar að fara að keyra af stað spólar hann bara og spólar... og jú situr bara pikk fastur! Það keryðu svona 3 strætóar fram hjá áður en loks kom vagn og strætóbílstjórinn ákvað að hleypa öllum út og yfir í hann... en þá var hann búinn að spóla og spóla í 12 mínútur!

Þegar ég komst svo út á lestarstöð með strætó þurfti ég að bíða í 14 mínútur eftir lest því lestarplanið var í molum og öllum + lestum aflýst... en þegar lestin loks kom komst ég greiðlega niður á Svanemøllen en ákvað svo að labba bara þaðan til tannsa frekar en að bíða eftir 1A en þetta var svo stutt. Þegar ég svo kom, nákvæmlega á réttum tíma til tannlæknisins var náttulega töf á henni eins og öllu öðru svo ég þurfti að bíða í einhverjar 25 mínútur, en það var svo sem í lagi þar sem ég var að lesa mjög áhugavert blað ;)

En þetta var sum sé tannlæknirinn hans Harðar, hún Anne, og ég var bara mjög ánægð með hana og hún gerði mjög glæsilega við gamla tannbrotið mitt svo tönnin er jafnvel betri en fyrr! En það sum sé hafði brotnað úr fyllingin sem hafði verið sett í brotið fyrir einhverjum 10 árum síðan. Já og viðgerðin kostaði svo ekki nema einhverjar 290 krónur sem mér fannst nú bara ansi vel sloppið!

Þegar ég fór svo upp í skóla frá tannlækninum gekk þetta nú öllu betur, fyrri strætóinn kom strax en seinni strætó (150S) var bara 10 mínútum á eftir áætlun og festist bara einu sinni smá hjá IKEA en komst fljótt af stað aftur. Nú er ég í skólanum, spurning hvernig gengur að komast heim í dag... en það er sko enn að snjóa!

sunnudagur, febrúar 27, 2005

Helgin

Jæja þá er helgin að verða búin. Hér er búinn að vera skíta kuldi, sérstaklega í dag, en ég er líka bara búin að vera inni í dag! Í gær skruppum við í bæinn, aðeins að spóka okkur á Strikinu og svona, orðið ansi langt síðan við gerðum það. Það voru nú frekar fáir í bænum aldrei þessu vant, enda ískalt, en þó alltaf eitthvað sniðugt að sjá, Harekristna gaurarnir hálf frosnir í kuldanum og ýmsir aðrir furðufuglar á vappi. Ég fékk aðeins að versla í H&M ;) keypti mér veski! Var að fatta að ég hef ekki átt veski síðan við fluttum út, fattaði það þegar ég fór í bíó um daginn og átti ekkert veski til að fara með... er alltaf með stærðarinnar tösku á mér já eða bara skiptitöskuna, ekki beint neitt gellu veski það sko... en ég bætti úr því svo nú er bara að fara að djamma ;)

En já við fórum náttulega á Mac Dó og svona og Hekla fékk lítinn hund þar í safnið, þessi hundafjölskylda hennar er alltaf að stækka, þarf bráðum sérherbergi! Mía var bara þæg og svaf ágætlega, mátti lítið vera að því að drekka né borða þegar hún var komin svona út í bæ, glápti bara í allar áttir, alveg greinilegt á henni hvað við höfum verið heimakær undanfarið, en vonandi fer það nú að breytast með hækkandi sól...

Hekla fékk gefins nammi á strikinu hjá einhverjum baráttuhóp fyrir einhverju bíla... döö.. veit ekki hvað... en hún gat þá keypt sér dót í staðinn í Tiger og valdi sér eitthvað teiknidót, tússliti, límmiða og einhver blöð og var rosa ánægð með það. En við keyptum okkur 3 eggjabikara á 10kall og rosa flottan kínverskan hitabrúsa á 20kall.

Já ég var að kaupa mér nýjan jakka um daginn, til að fá loks einhverja tilbreytingu frá gömlu grænu úlpunni minni, en hvað um það, þegar við vorum að fara heim úr bænum sagði Hekla við mig í lestinni: "Mamma, þú átt ekki að vera í þessum jakka" ég var voða hissa (fannst ég svo fín ;) og spurði "nú? afhverju ekki?" Hekla: "Það er sko vegna þess að þegar við erum í bænum þá bara lít ég í kringum mig og held bara að ég sé týnd" ég: "ha?" Hekla: "Já afþví ég þekki þig ekki í þessum jakka"... hehe, greinilegt að maður er búinn að vera aðeins of lengi í sömu flíkinni! barnið bara þekkir mig ekki öðruvísi en í þessari grænu úlpu ;)

föstudagur, febrúar 25, 2005

Neyddi Hörð náttulega í þetta próf sem önnur ;)





Your Dominant Intelligence is Linguistic Intelligence



You are excellent with words and language. You explain yourself well.
An elegant speaker, you can converse well with anyone on the fly.
You are also good at remembering information and convicing someone of your point of view.
A master of creative phrasing and unique words, you enjoy expanding your vocabulary.

You would make a fantastic poet, journalist, writer, teacher, lawyer, politician, or translator.


Ekkert nýtt í þessu...





Your Dominant Intelligence is Logical-Mathematical Intelligence





You are great at finding patterns and relationships between things.
Always curious about how things work, you love to set up experiments.
You need for the world to make sense - and are good at making sense of it.
You have a head for numbers and math ... and you can solve almost any logic puzzle.

You would make a great scientist, engineer, computer programmer, researcher, accountant, or mathematician.


Snýkjudýrið drepið!

Jæja þá eru allir búnir að fá njálgalyf og útrýmingar aðgerðum lokið á heimilinu. En ítrasta hreinlætis verður þó gætt næstu daga og lyfjameðferð endurtekin að 2-3 vikum liðnum til að tryggja að unninn sé sigur á ófögnuðinum! Ég hef nú enn ekki frétt af fleiri tilfellum af njálg í kringum okkur, en það er ómögulegt að segja hvar barnið hefur náð sér í þetta.

Annars er allt ágætt að frétta, er í skólanum núna, en við Fríða hittum kennarann í morgun og allt gengur þokkalega... og vonandi tekst kennaranum að finna lausn á gátunni sem við lögðum fyrir hann ;) en bein lausn stærðfræðilega módelsins okkar er ekki alveg að gera sig... En ætli það sé ekki best að ég fari að halda áfram að skrifa eitthvað í skýrsluna núna!

þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Óboðinn gestur :(

Úff hingað er mættur illa liðinn og óvinsæll gestur svo ekki sé meira sagt... en það er hann litli ljóti Njalli... oj oj oj!!!! Þvílík plága... nú er bara að fara að þvo og þvo og þvo fyrirskipa handþvot í tíma og ótíma. Svo þarf víst öll famelían að fá meðal við snýkjudýrinu, við hin fullorðnu höfum nú sem betur fer ekki fundið fyrir þessum ófögnuði, en sú eldri vaknaði sum sé áðan æpandi því hana klæjaði svo í rassinn og þar var kvikindið mætt... ég vona bara að sú stutta sleppi, en hún þarf sjálfsagt að fá þetta lyf eins og aðrir.

Við fengum þetta umrædda snýkjudýr líka í heimsókn síðasta vetur, en þá gekk mjög vel að útrýma þessu svo ég vona bara að það gangi jafn vel núna (7, 9, 13)!

Svo þið fáið smjörþefinn af því hvað málið snýst um þá er hérna smá fróðleikur.

sunnudagur, febrúar 20, 2005

Bíó og klapp og fleira

Í dag fór Hörður með Heklu og Birtu vinkonu hennar í bíó, þvílík gleði! Þau fóru að sjá "Peter Plys og Hafferlaffen" sem er frekar ný í bíó hér núna, stelpunum fannst hún svaka skemmtileg en Hörður var nú ekkert hrifinn... enda myndin svo sem ekki gerð fyrir hans líka!

Ég var heima og Mía átti að sofa svo ég gæti unnið í verkefninu, en hún var nú aldeilis ekki á því að sofa mikið og var óvenju athyglissjúk eitthvað og erfið viðureignar... ja þ.e.a.s. ef ég var ekki bara að horfa á hana, en þá var allt í lukkunnar velstandi. Hún er annars svo mikil dúlla núna, byrjuð að klappa saman lófunum! Ja eða meira svona höndunum, kemur nú ekkert hljóð, en þetta er í áttina. Hún getur reyndar alveg klappað með lófunum á borðið á stólnum sínum og framkallað hávaða vandræðalaust þannig (eins og reyndar á margan annan hátt ;)

Mía er annars voða spræk þessa daganna og veltir sér og snýr mjög mikið á alla kannta og er að verða ansi hreyfanleg öll og snör í snúningum í orðsins fyllstu merkingu. Ég er bara orðin dauðhrædd um að hún fari sér að voða með öllum þessum látum...

Já í kvöld buðum við svo Steinunni og Evu Lín í mat til okkar (létum þær nú reyndar taka með sér slatta af mat, hehe svona erum við nú út séð ;) En þær voru bara hressar, Hekla var hins vegar ekki eins hress og lá bara fyrir og var að drepast í maganum... borðaði held ég bara aðeins of mikið nammi í bíóinu, nammigrísinn sem hún nú getur verið! En hún sofnaði svo bara og vaknaði áðan og var orðin hressari í maganum, en er farin aftur að sofa í náttfötum og svona.

laugardagur, febrúar 19, 2005

Snjóþota keypt ;)

Jæja hér eru allir hressir!

Í gær kom Bjarki aðeins í heimsókn, sótti mig í skólan og fór með mér að versla, því líkur lúxus bara! En var svo fljótlega rokinn af stað í fleiri heimsóknir :)

Ég notaði tækifærið og keypti snjóþotu handa Heklu í búðinni (59 dkr), ekki á hverjum degi sko sem maður kemst í búð bílandi og hef ekki nennt að hjóla með slíkt fyrirbæri... en veðurspáin sýnir nefnilega áframhaldandi snjó hér á landi og því ekki annað hægt en að barnið fá snjóþotu eins og að hennar sögn allir eiga nema hún! En nú er hún orðin stoltur eigandi einnar slíkrar og fór í morgun með pabba sínum og Birtu vinkonu sinni upp í brekkuna hérna rétt hjá að renna sér :)

fimmtudagur, febrúar 17, 2005

Lítið að frétta

hér á bæ... hér er enn heilmikill snjór þó ekki hafi snjóað undanfarna daga. Hekla er farin að biðja um snjóþotu, en hefur lítið orðið ágengt með það, hennar praktísku foreldrar eru ekki hrifnir af því að fá meira dót í geymsluna og kanski fer snjórinn á morgun og kemur ekki aftur fyrr en að ári...

Mía Malín er þokkalega hress en Hörður búinn að vera hálf slappur í dag, en honum til mikillar gleði var ég heima í dag. Við Mía litum aðeins í mömmugrúbbu, en stoppuðum ekki mjög lengi því ég er farin að stressast meira yfir verkefninu, skiladagur nálgast óðfluga :/

þriðjudagur, febrúar 15, 2005

Stavblender

Hörður fór í morgun í bæinn og keypti "stavblender" til að mauka mat fyrir Míu, held þetta kallist töfrasproti á íslenskum markaði. Kosturinn við að hafa frekar svona en blandarann er náttulega að það er talsvert auðveldara að þrífa þetta og kemur það sér einstaklega vel þar sem við erum núna bara að mauka allt þegar á að borða það... en ekki mauka og frysta eins og ég gerði þegar Hekla var lítil, því nú erum við með frystihólf á stærð við eldspítustokk og þar er bara ekki pláss fyrir maukbirgðir...

Erum búin að prufa að mauka peru fyrir hana í dag og maukaðist hún alveg í spað og það merkilegasta var að barnið bara át það mauk með bestu lyst! En hún hefur ekki verið sérlega hrifin af perumauki í krukku, frekar en öðru í krukku. Svo nú er bara að fara að mauka og mauka!

Danska Mömmugrúbban

Þá er danska mömmugrúbban búin að vera hjá okkur í morgun. Við vorum 4 því það vantaði líka Mie og Tobias, en Tobias er að taka tennur og svaf eitthvað lítið í nótt greyið. En þetta var ágætt, Míu leist svo vel á hin börnin :) Ein vinkona hennar (veit ekki hvernig nafnið hennar er skrifað og ætla ekki að reyna... soldið óvenjulegt... ) kom ofan í leikgrindina til hennar og Mía tók náttulega strax dótið hennar og reyndi svo að toga í hana svo þeirri stuttu leist ekkert á hana, en sú er nú samt talsvert stærri en Mía. Ég færði Míu nú aðeins frá, en það endaði með að til að ná betur til hennar stökk Mía áfram og skellti sér á magan og var þá komin alveg upp að vinkonu sinni, en hún varð þá svo hrædd við Míu að hún fór að háskæla og leist sko ekkert á Míu eftir þetta ;) Mía reyndi líka að rífa dótið af honum Oliver, en það gekk nú ekki eins vel hjá henni því þó hann sé lítill er hann nú einum og hálfum mánuðum eldri en hún og meira að segja farinn að skríða, svo hann tók hressilega á móti og var ekkert hræddur við ágengnina í henni. Mía var nú samt ekkert hrædd við hann og hélt bara árfam að reyna. Fyndin þessi litlu kríli :) Verst ég gleymdi alveg að taka myndir af þeim.

mánudagur, febrúar 14, 2005

og snjóar!

Í gær var Mía eitthvað óvenju föl og fá og seinni partinn fattaði ég að hún var barasta komin með hita! Bara svona 38,5 en hita samt og smá hósta og nefrennsli. Í gær var hún svo eitthvað óróleg fram eftir kvöldi, en sofnaði loks milli eitt og tvö og svaf til morguns. Í dag er hún nú hressari, ekki búin að vera með neinn hita en er soldið kvefuð og frekar eitthvað dauf svona, óvenju róleg og föl (rjóðu eplakinnarar ekki á sínum stað).

Á morgun er svo dönsk mömmugrúbba hjá okkur, hélt á tímabili að ég yrði að aflýsa henni en fyrst Mía er ekki með hita í dag ætla ég bara að drífa í þessu. Það er reyndar ein búin að afboða sig, en Olivia litla er sko barasta komin með RS vísusinn :( ekki gott það!

sunnudagur, febrúar 13, 2005

Og enn snjóar og snjóar!

Þetta ætlar bara engan endi að taka!

En smá update hérna á fæðutegundalista Míu Malínar:

1. Janúar - Hrísgrautur
6. Janúar - Sætarkartöflur
10. Janúar - Avocado
14. Janúar - Banana
18. Janúar - Perur
20. Janúar - Sveskjur
25. Janúar - Gulrætur
28. Janúar - Hafragrautur
2. Febrúar - Eplamauk
4. Febrúar - Ferskjumauk
5. Febrúar - Ungbarnakartöflumús í pakka
8. Febrúar - Fuldkorsgrød (rís, hveiti, majs og hafra)
10. Febrúar - Koddar/HavreFras
11. Febrúar - Øllebrød (Rúgmjölsgrautur)

Var ekkert sérlega hrifin af Øllebrød grautnum en elskar Fuldkorns grautinn, en við þurfum nú eiginlega að fara að vera duglegri við að gera heimatilbúna grauta, fær eiginlega bara pakkagrauta enn þá. Spurning hvað hún eigi að fá næst? einhverjar hugmyndir?

Snjófjölskyldan

Í dag snjóar enn og snjóar. Í morgun fórum við Hekla út og bjuggum til heila snjókallafjölskyldu hérna í garðinum. Alveg ekta snjókallafæri!

Er að fara að setja myndirnar inn :)

Solkongen

Á föstudagskvöldið fór ég með nokkrum mömmum úr mömmuklúbbnum í bíó. Við sáum dönsku myndina Solkongen og skemmtum okkur mjög vel. Ég get alveg mælt með þessari mynd, hún var alger snilld og ég hló og hló og samt fóru nú greinilega sumir brandararnir fram hjá mér... en myndin var jú ótextuð og á dönsku!

En þá hef ég loksins afrekað það að fara í bíó hér í Danmörku á myndi sem er ekki barnamynd og alveg kominn tími til eftir eins og hálfs árs búsetu hér í landi!

Eftir bíóið fórum við á barinn og spjölluðum fram eftir nóttu meðan pabbarnir voru heima. Ég skemmti mér mjög vel, en dæturnar voru nú með einhver læti við Hörð og hann saknaði mín örugglega mikið ;)

Hrakningar gærdagsins

Í gær ákváðum við Hekla að skreppa aðeins í IKEA , Mía varð eftir hjá pabba sínum og við Hekla örkuðum af stað í all hressilegri snjókomu. Á leiðinni út á strætó stop var ég nú svona aðeins að spá í að snúa bara við vegna þess að það var nú ekkert voða þægilegt að labba með ískalda snjókomuna í andlið... en við héldum árfam, en vorum samt svo óheppnar að rétt missa af strætó svo við þurftum að bíða í 10 mínútur eftir næsta. Þegar við förum í IKEA er um tvennt að velja, annað hvort að taka bara þennan eina strætó og labba svo soldinn spöl eða taka strætó aðeins lengra og taka svo annan strætó sem fer alla leið. Ég var frekar blaut eftir gönguna að heiman og Hekla líka þreytt á þessu labbi í snjókomunni svo við ákváðum að taka bara annan strætó... við hefðum betur sleppt því... en þegar við komum á Lyngby station þurftum við að bíða soldið eftir strætó, en svo kom hann og við skelltum okkur um borð. Þegar hann er búinn að keyra í smá stund og við Hekla vorum bara eitthvað að tala saman, fatta ég að við erum bara alls ekki á réttri leið... þegar ég sé að strætó er að fara út úr zóninu sem við borguðum fyrir ákveð ég að hér förum við bara út... vorum þá komnar nánast upp í sveit... þessi vagn gengur svo bara á hálftíma fresti og við þurftum að bíða í 25 mínútur eftir næsta... og enn snjóaði og snjóaði! Við vorum sem betur fer með nammi með okkur ;) og Hekla söng fyrir mig snjólög svo þetta var nú ekki sem verst þrátt fyrir allt. Svo komumst við í IKEA með þessum strætó, en við höfðum nefnilega bara tekið rétta vagninn í vitlausa átt :/

Fórum þá í Toys´R´us sem er þarna hjá IKEA og Hekla sem var búin að safna 30 dkr í vasapeningum fór að versla (fær 15 dkr á hverjum laugardegi í staðinn fyrir sérstakt laugardagsnammi og keypti sér ekki nammi síðasta laugarag). Hekla keypti sér litla hafmeyju dúkku fyrir 20 dkr og keypti svo litla hringlu handa Míu á 10 dkr. Já það eru nú ekki allir svo heppnir að eiga stóra systur sem vill endilega kaupa dót handa þeim fyrir vasapeninganna sína!

Fórum svo í IKEA og keyptum borð og tvo stóla í herbergið hennar Heklu á aðeins 117 dkr, nokkuð góð kaup það! Keyptum líka kerti og batterí. Fórum svo á Mac Donalds og fengum okkur að borða. Þegar við vorum búnar að því var klukkan að verða sex. Á leiðinni uppeftir var ég nú eiginlega búin að ákveða að taka bara leigubíl heim þar sem veðrið var svo leiðinlegt og við með borð og tvo stóla! En þegar þarna var komið sögu var hætt að snjóa og ekkert svo kalt svo ég ákvað að við skelltum okkur bara í strætó. Var með strætó plan í vasanum frá því fyrr um daginn og sá að strætó átti að koma eftir nokkrar mínútur og við löbbuðum út. Það var fólk að bíða í strætóskílinu og við biðum og biðum alveg í 15 mínútur og aldrei kom strætó... þá fór fólk að tínast í burtu og ég ákvað að þetta gengi nú bara ekki og fór á nær liggjandi bensínstöð, með stólanna í poka á öxlinni og borðið í fanginu... Bað svo strákanna á bensínstöðinni a hringja í taxa fyrir okkur, sem var alveg sjálfsagt mál, en svo var bara alltaf á tali... á endanum ákvað ég að reyna við næsta strætó og við út í strætóskíli... nokkrum mínútum eftir að strætóinn hefði átt að koma kom strætó og við inn í stætó... en nokkrum sekúntum seinna þegar strætó tekur óvænta beygju átta ég mig á að ég hef tekið bandvitlausan strætó... hlýt að vera orðin þokkalega lesblind því ég var alveg viss um að ég væri að taka réttan vagn þegar ég fór inn í hann (kanski var það bara óskhyggja).

En já mig grunaði að þessi vagn stoppaði á lestarstöð skammt frá svo við sátum bara rólegar. Það reyndist rétt og við fórum út á Vangade station og tókum svo lestina efti smá bið til Buddinge station og svo strætó þaðan og heim eftir stutta bið. Hörður kom svo á móti okkur með Míu í vagninum að hjálpa mér heim með borð og stólanna. Mía var nú búin að vera heldur fúl og alls ekki glöð með þessa löngu fjarveru móðurinnar, en við fórum af stað um hálf tvö og komum ekki aftur fyrr en að verða átta! En við Hekla erum sko búnar að ákveða það að við förum sko ekki aftur í IKEA í snjóveðri!

fimmtudagur, febrúar 10, 2005

Koddar

Prufaði í kvöld að gefa Míu nokkra soldið bleytta kodda/Havrefras til að tína upp í sig og það líkaði henni sko vel. Gekk bara ótrúlega vel að tína þá upp með puttunum og kom þeim upp í sig, en þeir skiluðu sér soldið út aftur þar sem hún er nú ekki vön að borða svona mat í bitum. Hún kúgaðist líka aðeins á þeim og gretti sig ógurlega, en lét það ekkert á sig fá og hélt áfram að tína þá upp í sig og var fljótlega farin að smjatta bara á þeim.

Sundhedsplejersken og vaggandi Mía

Jæja þá komst ég loksins að í tölvunni... Hekla búin að vera að leika sér í tölvuleikjum. En já hún var annars í afmæli hjá Ísabellu í dag og fékk fullt af kökum og gúmmelaði og skemmti sér vel.

Í morgun kom sundhedsplejersken (heimahjúkkan/heilbrigðisfræðingurinn) og skoðaði Míu Malín. Henni leist nú bara heldur betur vel á hana og hún mun vera orðin 8.200 gr sem er bara vel ásættanlegt. Mía sýndi sínar bestu hliðar á meðan konan var í heimsókn og rembdist líka við að reyna að standa upp í grindinni sinni, eins og hún hefur verið að gera undanfarið, en komst nú samt ekki lengra en upp á hnén ;) En hún gat náttulelga sýnt henni hvað hún er orðin dugleg að sitja og gerði gott betur en það og sat og vaggaði sér fram og til baka, ja eða reyndar til hliðanna, en það er nýjasta trixið hjá henni. En það er líka kominn mánuður síðan hún byrjaði að sitja svo hún hefur þó nokkra æfingu í þeirri jafnvægislyst.

En já það gengur sem sagt allt bara eins og best er á kosið. Henni fannst nú alveg að Mía ætti að fá fleiri máltíðir með mat en tvær á dag, svo ætli við förum ekki bráðum að gefa henni morgunverð líka. Hún mælti nú reyndar líka með því að gefa henni að drekka úr venjulegu glasi frekar enn stútkönnu, þegar hún fær annað en brjóstamjólk sem sagt, en ég er nú ekki alveg að sjá neitt vit í því... prufaði að gefa henni að drekka úr glasi með kvöldmatnum, en hún bara beit í það og sullaði um allt :/ og innihaldið fór að mestu fyrir ofan garð og neðan (aðallega neðan).

miðvikudagur, febrúar 09, 2005

Í tilefni öskudagsins

Er loks búin að setja inn myndir af Míu í fastelavnsbúningnum sínum. Hekla lánaði henni sko búining því henni fannst nauðsynlegt að Mía fengi líka að fara í búning ;) En Mía var auðvitað prinsessa líka alveg eins og stóra systir ;)

Fyrsti plásturinn og áföll Míu

Ég var að klippa neglurnar á Míu um daginn enn klippti á einhvern klaufalegan hátt aðeins í puttan á henni (henni var nær að vera ekki kyrr! (vonda mamman... hehe ) ), hún veinaði náttulega upp en jafnaði sig strax, en það virtist ætla að blæða endalaust úr þessu pínu litla sári svo ég setti plástur... en þá fór plástraði puttinn náttulega beint í munninn... svo þá fékk hún vetling til að hún borðaði ekki plásturinn... enn hann fékk náttulega ekki að vera lengi í friði...

Hekla var nú hálf hneiksluð á mér að slasa barnið svona og sagði við mig "mamma þú verður að passa þig!!!" og svo "hún Mía er svo léleg að maður verður að fara varlega með hana!"

Hún er nú annars ekkert mikið betri sjálf, en um helgina var Hekla í heimsókn hjá vinkonu sinni og ég setti Míu á gólfið utan grindarinnar svona aðeins til að gefa henni færi á að hreyfa sig meira úr stað. Svo þega Hekla kom heim æddi hún inn og steig beint ofan á hausinn á þeirri stuttu :/ Aumingja Mía slasaðist nú samt ekki og var fljót að jafna sig.

En já Mía er farin að færast aðeins úr stað þegar hún fær tækifæri á að reyna sig á því, en það er nú sjaldan þar sem gólfpláss er nú mjög svo af skornum skammti hér á bæ. En þarna um helgina tókst henni nú að rannsaka aðeins einn borðfót... frekar fyndin stundum :)

þriðjudagur, febrúar 08, 2005

Hversdagstal og bollur

Djöfull er kalt!!! Ekki það að það er nú bara pínu lítið frost á hitamælinum. Var að setja Míu út að sofa kapp klædda og er nú að fara að halda áfram að skrifa. Hef ekki nennt upp í skóla undanfarið en hefur gegið þokkalega að vinna hérna heima síðan Hekla fór aftur á leikskólan. Hún er annars orðin þokkalega hress eftir veikindin en er samt ekki laus við hóstan enn þá. Það er greinilega einhver pest að ganga í leikskólanum því í gær voru 3 fóstrur veikar, en það kom nú frekar illa út þar sem 2 aðrar voru á námskeiði! En það voru víst í allt einhverjar 4 mættar skv. Heklu, en þetta eru held ég eitthvað um 40 börn... Hekla var þó ekkert að kvarta og fannst bara frekar gaman í leikskólanum í gær, en henni hefur nú eitthvað verið að leiðast þar stundum undanfarið.

Hörður bakaði glæsilegar bollur handa okkur í gær á hinum íslenska bolludegi, en þær tókust mun betur en "fastelavnsbollurnar" á sunnudaginn. Fínnt að hafa svona 2 löglega bolludaga í röð :)

sunnudagur, febrúar 06, 2005

Fastelavn

Jæja í dag er hinn eini og sanni Fastelavnsdagur hér í Danmörku. Þetta er svona eins og bæði Bolludagur og Öskudagur á Íslandi... allir fara í búninga borða bollur og ganga milli húsa og syngja og sníkja nammi. Í morgun komu Ísabella og Nanna Lísa fyrstar allra og sungu og Hekla fór svo með þeim og pabba þeirra í leiðangur um hverfið. Hér kom slatti af börnum og söng og við þorðum náttulega ekki annað en að gefa öllum nammi svo enginn mundi "lave ballade" ;) En svona er söngurinn sem er sunginn og við erum búin að heyra all oft í dag:


laugardagur, febrúar 05, 2005

Ungbarnakartöflumús

Braut 3 daga regluna og gaf Míu nýjung í dag líka, en það var kartöflumús í pakka ætluð ungbörnum og mæltist það miklu miklu betur fyrir en ferskjumaukið. Hún át alveg helling af músinni og var bara alveg æst í þetta gums!


Annars vorum við mæðgur bara heima í dag og gerðum mest lítið, Birta kom í heimsókn og þær vinkonurnar léku sér í tjaldinu. Hörður fór í morgun á íslenskt fótboltamót og var í því bróðurpart dagsins. Liðið sem hann var í vann 2 leiki af 4 og þótti það ásættanlegur árangur þó skemmtilegra hefði nú verið að vinna þar sem íslandsferð var í verðlaun.


Ferskjur

Í gær fékk Mía að smakka ferskjur úr krukku, en það fílaði hún sko ekki, rétt smakkaði og neitaði svo staðfastlega að borða þetta drasl! Ég er nú frekar hissa því Heklu þóttu ferskjur ákaflega góðar þegar hún var lítil... greinilega ekki sami smekkur á ferð.

föstudagur, febrúar 04, 2005

Fastelavnsfest

Í dag mætti Hekla loks í leikskólan eftir 4 daga veikindafrí þó hún sé nú ansi kvefuð enn þá, en hún gat nú ekki farið að missa af fastelavn á leikskólanum. Hún var að sjálfsögðu prinsessa, í raun kom ekkert annað til greina hjá henni, var aðeins að spá í að vera kanski norn en vildi svo fresta því til næsta árs!


Ég fór aðeins í skólan, en var svo komin rúmlega þrjú því okkur fjölskyldunni var boðið í fastelavnspartý á leikskólanum. Það var ágætt, sumir foreldranna höfðu bakað bollur og komið með svo allir fengu bollu og kaffi og höfðu það huggulegt. Krakkarnir voru í margvíslegum búningum, trúður, drakúla, Lína langsokkur, fín frú, sjóræningi, karate gaur og auðvitað prinsessa eða tvær og ekki nema tveir spiderman! Fóstrurnar voru líka í búningum og ansi flottar, ein var engill, ein api og leikskólastýran var sjóræningi og ein var líka arabi með yfrivaraskegg :)


fimmtudagur, febrúar 03, 2005

Nýklippt Hekla

Jæja þá er ég búin að klippa barnið! Þarna fuku einhverjir 12 cm af hárinu síða, allt of síða, en það gekk eins og í sögu og ég er ákaflega ánægð með verkið og sem betur fer Hekla líka!


Verð nú bara að segja að mér þykir ég bara ansi klár klippikona, kanski ég fari bara að læra hárgreiðslu þegar ég er búin með verkfræðina ;)


En verst þykir mér að ég gleymi alveg að taka fyrir og eftir myndir... og er reyndar bara ekki búin að taka neinar eftir myndir, en Hekla er farin að sofa í sínu tjaldi svo það er of seint að gera það í dag.

miðvikudagur, febrúar 02, 2005

Tjaldbúinn

Jæja Hekla er enn hitalaus og sefur nú í tjaldinu sínu inni í herberginu sínu :) Hún var í því að búa sér til hús úr teppum í dag, sem gekk nú eitthvað misjafnlega, þegar við mundum eftir tjaldinu... núna er hún flutt inn, en tjaldið tekur allt laust gólfpláss í herberginu svo rétt er hægt að komast inn í herbergið! Hún er búin að búa vel um sig i tjaldinu og búin að stilla upp myndum úr hillunum og allt, gat ekki annað en tekið af henni mynd ;)


Áður en þær systur fóru að sofa í kvöld fékk Mía aðeins að kíkja í heimsókn í tjaldið til stóru systur og var mjög hrifin. Hekla las fyrir hana eina bók og allt var voða kósý hjá þeim og við heyrðum Heklu svo segja eitthvað á þessa leið "Já Mía mín það er svo fínnt fyrir þig að vera hérna hjá mér, þá ertu alveg laus við lætin í mömmu" (hehe það er víst aldrei friður fyrir mér ;)

Eplamauk

Mía fékk eplamauk í fyrsta skipti í gær og var bara ekkert sérlega hrifin... hún er eiginlega bara ekkert voðalega hrifin af neinu sem kemur úr krukku... ég sem hélt hún væri svo mikið átvagl að hún borðaði allt. En hennar uppáhalds matur er avokadó, já og líka sætar kartöflur, en það er einmitt hvorugt til í krukkum hér og eingöngu borðið fram ferskt fyrir hana... ja nema kartaflan er náttulega elduð fyrst..

Hitalaus

Nú er Hekla aftur orðin hitalaus og virðist vera öll að hressast, vonandi bara að það haldi því að a föstudaginn er "Fastelavnsfest" í leikskólanum og hún yrði nú ekki glöð af að missa af því! Sem minnir mig á að ég þarf að fara að þvo prinsessubúninginn. Er annars að reyna að vinna eitthvað í verkefninu meðan Mía sefur úti í 7 stiga hita og fínasta veðri.

þriðjudagur, febrúar 01, 2005

Hiti

Jæja í gærkvöldi hélt ég nú að Hekla væri bara orðin hress og ætlaði að senda hana í leikskólan í dag en ó nei... rétt fyrir miðnætti vaknar stúlkan og er bara komin með 39 stiga hita voða slöpp og aum og er svo bara búin að vera með hita síðan. Hún hefur bara sofið og legið fyrir í allan dag og er það eins og flestir vita sko alls ekki líkt henni. En ég ákvað að vera heima í dag líka svo það væri nú hægt að sinna henni sem best, en hef nú bara fengið ótrúlega góðan vinnufrið! Mía er búin að sofa úti tvisvar í dag, enda ekkert óhóflega kalt neitt og þetta víst sögulega góður vetur hér í danaveldi.

mánudagur, janúar 31, 2005

Litla húsmóðirin

Jæja þá eru stúlkurnar sofnaðar og allt fallið í ljúfa löð... Við Hekla horfðum saman á þáttinn "Bedre Bolig" sem er að hennar sögn uppáhalds þátturinn hennar! En þetta er svona þáttur á borð við Innlit-útlit með Völu Matt. En hún horfir alveg dolfallin á þetta, sérstaklega þegar það koma svona atriði þar sem er sýnt hvernig megi gera eitt og annað á sniðugan hátt... festa upp myndir og búa til skápa og núna var til dæmis verið að sýna hvernig hægt væri að setja svona "ryksugukerfi" í hús... ein ryksuga einhversstaðar í húsinu og svo bara innstungur fyrir ryksugubarka á nokkrum stöðum í húsinu. Þetta fannst Heklu sko alger snilld (ekki það að mér fannst það nú líka), "þá þarf maður bara ekkert að vera að burðast með ryksugu um allt lengur" endurtók hún hrifin (á dönsku reyndar ;)


En áhugi barnsins liggur oft á öðrum sviðum en maður gæti haldið... hún hefur til dæmis rosalega gaman af að þurrka af þessa daganna og horfir líka alveg dolfallin á auglýsingar á blettaefnum í sjónvarpinu og reynir svo að hvetja mig til að kaupa svoleiðis í búðinni og er með slagorðin á hreinu "bla bla bla(eitthvað sem ég man ekki)... fjerner pletter!" ;)


En hún verður víst ábyggilega fyrirmyndar húsmóðir ef hún heldur svona áfram!

Mía Malín veltikelling

Jæja þá velti Mía sér loks á magan alveg að eigin frumkvæði! Hún hefur nú alveg velt sér á magan áður, en aldrei nema við höfum verið að lokka hana til þess, en núna var hún bara ein að væbblast og ákvað bara að skella sé á magan! Hún er loksins að fatta þetta ;)



Hér eru annars bara allir heima í dag, Hekla fékk að vera heima þar sem hún svaf svo illa í nótt og er enn ansi kvefuð, ekki er samt annað að sjá en að hún sé sæmilega hress. Svo er ég að reyna að vinna eitthvað í öllum látunum... gengur misjafnlega... veðrið er annars þokkalegt í dag svo Mía verður sett út í vagn fljótlega.


sunnudagur, janúar 30, 2005

Dúndur hress bara

Jæja Hekla er nú ekki enn ekki komin með hita aftur og hefur verið bara hress í dag. Mía er búin að vera duglega að sofa inni, erum ekkert að setja hana út að sofa þessa daganna því úti er skít kalt og hún er enn pínu kvefuð (nógu er nú kalt samt í svefnherberginu okkar...). Löbbuðum nú samt með hana niður í bæ í vagninum í gær og henni varð nú ekki meint af því... en kanski er það það sem fór svona illa í Heklu?!?

Hekla lasin

Hekla er orðin eitthvað lasin, vaknaði í nótt með soldinn hita og ljótan hósta. Var nú samt sæmilega hress í morgun og hitalaus held ég. Núna er hún að horfa á barnatímann í sjóvarpinu af mikili athyggli.

föstudagur, janúar 28, 2005

Mataræði Míu Malínar

Alltaf er Mía að fá nýjar og nýjar matartegundir hjá okkur og í dag fær hún ungbarnagraut úr höfrum. Þá er hún byrjuð að fá:

1. Janúar - Hrísgrautur


6. Janúar - Sætarkartöflur


10. Janúar - Avocado


14. Janúar - Banana


18. Janúar - Perur


20. Janúar - Sveskjur


25. Janúar - Gulrætur


28. Janúar - Hafrar


Það kom nú smá bakslag í átið hjá henni vegna lasleika hérna um daginn, en annars virðist þetta allt fara bara mjög vel í hana og hún hefur oftast mikinn áhuga á matum og lyftist alveg upp þegar hún sér að hún á að fá að borða :)

Þá er bara að fara að hafa til grautinn!

Í skólanum

Jæja, er mætt í skólan, er búin að vera soldið heima við annars þessa vikuna. Hittum kennaran í morgun, en við gerum það alltaf á föstudagsmorgnum. Svo erum við bara svona að vinna í þessu á fullu, Fríða er byrjuð að forrita SA algóriþmann í c++ og ég er enn að basla við að leysa gamsið rétt, auk þess sem ég er byrjuð að skrifa skýrsluna... og blaðsíðurnar fara að hrannast upp... best að halda áfram!

Ég er samt bæði kúl og normal ;)

og svo

What is your weird quotient? Click to find out!


98% are more weird,
1% are just as weird, and
0% are more normal than you!


Ætli ég sé nokkuð að láta Hörð taka þessi próf og skemma þetta fyrir mér :þ

miðvikudagur, janúar 26, 2005

Nördið sem ég er að verða...

Jæja þá er ég byrjuð að tekka skýrsluna, djöfull er gaman að tekka!!


... en ég verð samt að fara að vara mig á þessu... fór að hafa smá áhyggjur af að ég væri að verða hálf nördí og það var sko greinilega ekki að ástæðulausu! Tók nördaprófið og svona fór það...



I am nerdier than 74% of all people. Are you nerdier? Click here to find out!


What does this mean? Your nerdiness is:


Mid-Level Nerd. Wow, it takes a lot of hard nerdy practice to reach this level

Ætlaði nú aldeilis að sýna fram á að það væri ekkert að marka þetta próf og lét Hörð taka það, en æji... hans niðurstaða...

Definitely not nerdy, you are probably cool.


Tvær litlar tennur!

Það er ekki um að villast vinstri framtönnin í neðrigóm er líka komin upp... og nú er verið að reyna að nota þær báðar á snúrurnar úr tölvunni :S

Tönn nr. 2 !?!

Grunur leikur á um að tönn númer 2 sé komin upp! Það hefur þó ekki fengist staðfest enn þá þar sem barnið var þreytt og ósamvinnufúst...


Ég fór annars upp í skóla í dag og Hörður sá um dúlluna og gekk bara vel, gat látið hana sofa soldið inn (úti er heldur kalt...) og allt og fékk hana meira að segja til að drekka bannsettu þurrmjólkurblönduna :) En hún er annars orðin nokkuð hraust bara.


Svo fékk dúllan gulrótamauk í fysta skipti og líkaði það bara svona þokkalega vel.

Islandsk navneskik

Jæja, við ákváðum loks að hella okkur út í að sækja um leyfi fyrir að Mía Malín megi vera Harðardóttir (en ekki Harðarson eða Pétursdóttir), enda ekki seinna vænna að skrá nafn á barnið svo það verði ekki skírt einhverju konunglegu nafni af skráningaryfirvöldum! En það er víst gert ef foreldrar eru eitthvað að slugsast við að nefna börnin sín hér í landi. En enn sem komið er er hún bara skráð sem Pige Pétursdóttir...


Til að fá þessu framgengt er eina leiðin að sýna fram á að maður hafi einungis tímabundna dvöl hér í Danaveldi og hafi vottorð frá skóla eða vinnuveitanda í höndunum því til stuðnings. En það er nefnilega til lagaklausa sem leyfir Íslenskum ríkisborgurum að nota íslensk kenninöfn á börn sín fædd hér að þessum skilyrðum uppfylltum. Já og svo þarf maður víst helst að lofa því að hafa sig á brott um leið og námi lýkur... ég veit nú samt ekki hvað þeir gera ef maður svíkur það... skipta um nafn á barninu, eða senda mann til Íslands aftur með valdi???


En það verður spennandi að sjá hvernig þetta gengur! Í verstafalli verður hún bara Harðarson :þ

mánudagur, janúar 24, 2005

Jæja seinni partinn var nú augað hennar Míu orðið eitthvað vesældarlegt aftur, ég sem var að vona að þetta væri batnað... en hún er eitthvað hálf eymdarleg enn þá litla skinnið þó það sé nú ekkert annað sýnilegt að henni... Hún sofnaði samt eins og ekkert væri og sefur sem værast og það gerir Hekla líka ásamt börnunum sýnum tveimur Elsu og Nínu litlu :)


Ég er búin að vera rosa dugleg að setja upp módelið okkar Fríðu í GAMS en í kvöld þegar það var loks orðið villulaust þá gat ég náttulega ekki leyst það þar sem allt helv.. djöf.. draslið var out of memory!?! Kanski aðeins of stórt...?


En ég passaði mig nú samt á að missa ekki af Lost, nýja "yndlings" þættinum mínum :) og nú bíð ég spennt eftir næsta mánudegi!

Öll að hressast

Jæja þá er Mía farin að hressast, fékk ekki hita aftur í gær en var óvenju róleg og slappleg eitthvað. Hún var líka eitthvað hálf skrítin í öðru auganu, eins og það væri einhver gröftur í því... en það sér ekkert á því í dag svo það er vonandi bara batnað!


En hún sofnaði kl. 8 í gærkvöldi og svaf til 5, drakk þá aðeins og svaf til c.a. 8:30, en lagði sig svo bara í korter í morgun... en við vildum heldur ekki setja hana út að sofa því hér er drullu kalt í dag, um frostmark og smá snjóföl yfir öllu. Versta er að skv. spánni á hitinn varla að fara yfri frostmarkið alla vikuna "brrrrr"...

sunnudagur, janúar 23, 2005

Tannálfurinn lasinn :(

Í nótt vaknaði Mía um hálf eitt og grét og grét, við skildum ekki neitt í neinu, Hörður skipti á henni þar sem við héldum að hún hlyti að vera búin að kúka þar sem það er helsta ástæða þess að hún vakni á nóttunni um þessar mundir... en það var ekki málið og þegar ég ætlaði að fara að gefa henni að drekka vildi hún ekki drekka og vældi bara og var eitthvað ekki eins og hún á að sér að vera. Þá tók ég eftir að hún var öll farin að skjálfa og var bara öll að verða sjóðandi heit! Svo ég mældi hana og þá var hún bara komin með 40,3 stiga hita á eyrnahitamælinum :/


Við vorum náttulega bara drullu stressuð yfir þessu þar sem hún var bara ofsa slöpp og föl og titrandi, ekki samt með krampa beint, en ég pakkaði henni vel inn og reyndi að fá hana til að drekka á meðan Höður fór að leita að stílum. Við áttum náttulega bara stíla fyrir 10 - 20 kg börn, en minni stílar fást ekki hér í landi, svo við skárum bara aðeins af einum... hún mátti samkvæmt mínum útreikningum fá 100 mg stíl m.v. að hún sé c.a. 8 kíló (var 7,5 kg 5 mánaða) en þessir voru 125 mg...


En áður en okkur tókst að koma stílnum í Míu gubbaði hún hressilega. Eftir að hún fékk stílinn fór hún svo smá saman að hressast, þó hitinn lækkaði nú bara um 1 gráðu og var orðin bara nokkuð fín eftir hálftíma. Þá gat hún drukkið og virtist hafa það bara fínnt. Svo svaf hún þokkalega þegar hún loks fór að sofa upp úr þrjú og svaf meira og minna til hádegis með mömmu sinni, en var orðin hitalaus um morguninn.


Núna er hún að leggja sig, er búin að vera hitalaus í dag og drekka vel, en er samt óvenjulega róleg og slappleg eitthvað þó henni virðist nú líða ágætlega. Svo við vonum bara það besta (krossa fingur!).



laugardagur, janúar 22, 2005

Sex mánaða tannálfur!!!

Hún á afmæli í dag
hún á afmæli í dag
hún á afmæli hún Mía
hún á afmæl í dag!!!


Þá er litla prinsessan orðin hálfs árs gömul og ekki nóg með það heldur er hún líka komin með fyrstu tönnina sína :) Tennurnar tvær í neðrigóm eru nú búnar að vera alveg á leiðinni (að okkur hefur sýnst) núna í rúmlega mánuð, en í dag fann Hörður að sú hægri (frá Míu séð) var loksins komin í gegn og staðfesti það svo með teskeiðar trixinu.

föstudagur, janúar 21, 2005

Góður nætursvefn

Jæja þá er hún Mía farin að sofa aftur samfleytt alla nóttina, án þess að vakna og heimta sopan sinn! En upp úr 4 mánaða byjaði hún að vakna aftur á nóttunni, einu sinni til tvisvar eftir að hafa hætt því um 8 vikna. Núna er hún náttulega farin að borða tvær máltíðir á dag og ætli það sé ekki bara það sem hún þurfti til að geta sofið matarlaus alla nóttina, orðin þetta stór...


En já ætli það sé ekki svona vika síðan hún byrjaði á þessu, sefur alveg frá 9 - 10 á kvöldin til 7 - 8 á morgnanna :) og ekki nóg með það heldur er hún um leið líka farin að geta sofnað bara sjálf á kvöldin í sínu eigin rúmi. Það var nú meira að segja hennar hugmynd (og engum sértækum uppeldisaðferðum mínum fyrir að þakka ;) en áður var hún vön að vilja hanga á spenanum þangað til hún sofnaði svo ég er bara mjög ánægð með þessar breyttu venjur hjá henni :)


fimmtudagur, janúar 20, 2005

Kúkur!

Jæja það skipti engum togum að barnið kúkaði svona líka myndarlega aðeins einum og hálfum klukkutíma eftir inntöku sveskjumauksins!

Sveskjumauk

Jæja í stað þess að bíða í 4 daga með að gefa Míu næstu nýjung í mataræðið ákvað ég að gefa henni sveskjumauk strax í dag... eftir 2 daga frá síðustu nýjung... en mér finnst eins og hún hafi ekki kúkað mikið undanfarna daga og kúkaði einhverjum litlum þurrlegum kúk í dag... hún er nú ekkert að barma sér samt, en allur er varinn góður!

Íslenska mömmugrúbban klikkar ekki ;)

Jæja í dag vorum við Mía með íslensku mömmugrúbbuna og tókst bara vel til þó ég segi sjálf frá. Við vorum 14 mömmur mættar í dag og c.a. 10 börn svo það var nú soldið þröngt hér í litlu íbúðarholunni okkar. En þröngt mega sáttir sitja og sem betur fer voru allir sáttir og mikið skrafað að venju um eitt og annað bæði tengt börnum og öðrum málefnum, en það verður sko ekki gefið upp hér ;)

miðvikudagur, janúar 19, 2005

Barnið skráð í skólan við Tobaksvej

Í morgun fórum við og skráðum Heklu í grunnskóla! Hún byrjar nú samt ekki í skólanum fyrr en í byrjun ágúst. Til þess að skrá hana fórum við á skrifstofuna í skólanum og ég fyllti þar út þar til gert form. Hef tvisvar komið þarna áður, einu sinni með Heklu til tannlæknis og einu sinni með Míu í vigtun til sundhedsplejerskunnar sem hefur líka aðsetur þarna í skólaum. Okkur leist svo sem ágætlega á skólan, frekar bara svona venjulegur skóli eins og maður á að venjast úr æsku... en mér þykir nú samt soldið sérstakt að hann stendur við hliðina á Prins sígarettuverksmiðjunni, nánar til tekið stendur hann við Tobaksvej!!! Ekki þætti þetta nú boðlegt umhverfi fyrir skóla á Íslandi! Við sáum líka reykjandi ungling fyrir utan!!! Eins gott að Hekla verði komin í annan skóla áður en hún kemst á gelgjuskeiði ;)

þriðjudagur, janúar 18, 2005

Perumauk

Þá er Mía búin að fá að smakka perumauk og líkaði það bara vel, eins og reyndar allur annar matur sem hún hefur fengið hingað til (ef frá er talið ungbarnamjólkurduftið). Gretti sig nú soldið til að byrja með en svo rann þetta ljúft niður :)


Síðan hún fékk fyrst að borða er hún þá byrjuð að fá að borða eftirfarandi mat:



  • 1. Janúar - Hrísgrautur
  • 6. Janúar - Sætarkartöflur
  • 10. Janúar - Avocado
  • 14. Janúar - Banana
  • 18. Janúar - Perur

Svo alltaf eykst fjölbreytnin :)

Hvar er danska mömmugrúbban?

Jæja, í gær vorum við rosa dugleg að taka til því ég hélt ég ætlaði að hýsa dönsku mömmugrúbbuna í dag... en nei... þegar ég var tilbúin kl. 10 í morgun og klukkan var allt í einu orðin korter yfir og engin komin þá rifjaðist upp fyrir mér að sennilega væri ég 2 vikum á undan áætlun... :þ sko síðast þegar ég mætti fyrir 2 vikum síðan ákváðum við að Kristina héldi næst og svo ég og svo Sophie. Venjulega hefur grúbban hist í hverri viku, en svo var víst búið að breyta því í aðra hverja viku... "roðn" ég er nú meiri sauðurinn. En þetta er svo sem ekkert mál, veitingarnar í þessari mömmugrúbbu eru bara svona smá brauð, djús og kaffi svo það er ekki eins og ég sitji uppi með einhverja veilsu sem fer til spillis og hey hér er allt hreint og fínnt :)


Best ég fari þá bara að stúdera línulegu lausnina á módelinu okkar Fríðu.

sunnudagur, janúar 16, 2005

Babba!

Rólegur dagur í dag hjá fjölskyldunni. Birta vinkona Heklu gisti hjá okkur í nótt og þær skemmtu sér ágætlega vinkonurnar, voru nú ekkert að flýta sér að sofna í gærkvöldi og vöknuðu snemma svo þær voru nú orðnar hálf lúnar upp úr hádegi.



Litla krílið er á fullu í að þróa með sér ný hljóð og er búin að vera að segja "Babba" í allan dag... ohh hún sem átti að segja Mamma fyrst :Þ


Nammidagur á enda

Jæja þá kom loksins laugardagur og allir fengu nammi! Erum nú hálft í hvoru að spá í að leggja niður nammidaginn og reyna að finna betra skipulag eins og til dæmis að dúllan fái vasapeninga einu sinni í viku og ráði svo sjálf hvað hún geri við þá. Ef hún vill kaupa nammi að þá megi hún það alveg og bara hvenær sem er... en hún á náttulega fljótlega eftir að reka sig á hvað peningar geta verið fljótir að klárast...



Ekki það að hún fengi nú áfram nammi svona á tyllidögum og endrum og eins, en þetta gæti kanski lyft pressunni af laugardögunum. En væntingarnar til laugardaga eru eiginlega að verða heldur miklar...



Jæja nú er ég sennilega að ganga af vitinu (eða einhverjir aðrir), en ég heyri ekki betur en það sé hópur drukkinna íslendinga að syngja ættjarðarsöngva hér fyrir utan gluggann hjá mér... best að fara að sofa...



föstudagur, janúar 14, 2005

Skoleparat!

Í morgun fór ég með Heklu í leikskólan í svokallað "skolemodenheds test". Já svo ég útskýri málið að þá er Hekla nú að verða komin á skóla aldur og á ásamt sínum árgangi að byrja í skóla næsta haust. Þess vegna vorum við eins og aðrir foreldrar elstu krakkanna í leikskólanum, kölluð á foreldrafund í byrjun desember þar sem rætt var hvort okkur sem og kennurunum á leikskólanum þætti hún vera tilbúin til þess að byrja í skóla. (Alveg týpískt, danir elska fundi og geta rætt hlutina út í það óendanlega!) En við vorum náttulega ekki í nokkrum vafa um að hún væri nú rétt rúmlega tilbúin í það og höfðum alls engar áhyggjur af öðru, en sama var nú ekki að segja um leikskólakennaranna... Þær vildu jú viðurkenna að hún væri nú á flestan hátt mjög yndælt barn, vinsæl og skemmtileg og ætti gott með að fá alla með í leik ásamt því sem hún væri mjög góð við alla í kringum sig og jú hún ætti nú auðvelt með að leysa þau verkefni sem fyrir krakkana væru lögð. En þær höfðu hins vegar áhyggur af því að hún væri nú ekkert rosalega mikið fyrir að sitja kyrr lengi, hún væri líka óþolinmóð og fljót að klára þau verkefni sem fyrir hana væru lögð og gerði það mjög vel, en ætti hins vegar mjög erfitt með að bíða eftir að hinir kláruðu...




Hér í Danaveldi þykir víst ekkert sjálfsagðara en að börnum sé seinkað um eitt ár í skóla ef þau þykja ekki alveg nógu tilbúin til að byrja með sínum árgangi og er það víst sérlega vinsælt ef börn eru fædd í desember, því hér skal sko enginn fara í skóla nema hafa þroska til þess. Þó er þetta fyrsta ár í skóla hér ekki skyldunám og kallast meira að segja Børenhaveklasse :)



En þá allavega töldu leikskólakennararnir sig vera í vafa um hvort hún gæti nú talist "skoleparat" þar sem hún væri jú bæði óróleg og auk þess mikið "leikbarn" og þær væru nú ekki vissar um þroskan hjá henni. Við forleldrarnir vorum nú aldeilis ekki á sama máli, en samþykktum þó þá tillögu að hún yrði send í þetta svokallaða "Skolemodenheds test" til að taka nú af allan vafa, en það var einmitt það sem við gerðum í dag.



Það var kona, sálfræðingur held ég, sem mætti í leikskólan til að prófa stúlkuna og ég með auk eins leikskólakennarans. Hekla byrjaði á að skrifa nafnið sitt á prófblaðið og vandaði sig mikið, en hún vissi nú að sjálfsögðu ekki að þetta væri neitt próf, bara að við ætluðum aðeins að tala við þessa konu. Svo sýndi konan Heklu myndir í möppu og spurði hana hvað væri á þeim, afar einfallt allt saman og lét hana svo segja hver væri stæðstur og minnstur af einhverjum myndum, tengja saman fjölda af hlutum, telja, þylja upp tölur á eftir sér allt upp í 4 eða 5 í röð. Sýndi henni svo líka blaðsíðu með 6 mismunandi myndum, lokaði svo möppunni og spjallaði við hana og sagði henni sögu af köttunum sínum og svona í þó nokkra stund og spurði svo Heklu hvað var á myndunum (sem hún mundi nákvæmlega). Svo átti hún að finna eins form og stafi, einn stafur fremst og svo lík form og stafir eða þau snéru öðruvísi í dálki fyrir aftan, en bara einn alveg eins og þessi fremst... Teikna svo eins stafi og tákn eins og voru á einni blaðsíðunni og eitthvað fleira.



Þetta olli minni sko engum vandræðum og kláraði hún þetta allt með glæsibrag og flaskaði aðeins á einu atriði, en það var nú held ég bara smá fljótfærni, en þá valdi hún d í staðin fyrir b í táknunum þar sem átti að velja eins... held nú líka að þetta sé ansi algengt vandamál hjá þessum aldurshópi, þe. að spegla stafi, en sumir á leikskólanum hafa líka þann hæfileika að geta skrifað nafnið sitt gersamlega speglað :)



En niðurstaðan var sum sé að hún skoraði 59 stig af 60 mögulegum, ekki slæmt það! Til að teljast "skoleparat" þarf að skora minnst 47 stig svo hún ætti nú bara að vera í góðum málum. Það kom líka fram hjá sálfræðingnum að það teldist ekki vera neitt vandamál þó hún væri ekki róleg né þolinmóð því það yrði bara tekið á því í skólanum.

sunnudagur, janúar 09, 2005

Nýtt nýtt nýtt!!!

Jæja þá stendur til að fara að þróa "vefdagbók fjölskyldunnar" yfir í bloggsíðu og segja skilið við gamla Barnalandið!

Er búin að færa hérna yfir það sem skrifað hefur verið í vefdagbókina frá því Mía fæddist og stefni að að færa restina þegar ég nenni, gott að hafa þetta allt til staðar :)

laugardagur, desember 04, 2004


Í gær var Julefest á leikskólanum hennar Heklu og það var sko mikið fjör! Hekla var í hlutverki jólakattarins í skemmtiatriðunum og stóð sig bara mjög vel og söng hátt og snjallt (þegar hún mundi eftir að syngja með ;) og við vorum ákaflega stolt af henni :)




Þegar skemmtiatriðunum var lokið fengum við svo eplaskífur og glögg og föndruðum soldið í leikskólanum. Við Hekla gerðum svo í sameiningu þessa líka glæsilegu jólaskreytingu og skemmtum okkur bara vel!




Þegar því var lokið var farið út að dansa í kringum jólatréð og syngja og svo birtist danskur jólasveinki í tréklossum með stóran poka fullan af gjöfum. Í pökkunum var náttulega nammi og flestir voru mjög ánægðir með það :)



4. desember 2004 | 16:37:08

mánudagur, nóvember 22, 2004

Mía Malín 4 mánaða í dag :)



Á laugardaginn byrjað að snjóa hjá okkur!!! og snjóaði bara alveg helling ;) (sjá myndir). Í morgun var svo búið að snjóa enn meira og bara allt á kafi í snjó (ja á okkar mælikvarða ;) og ég vaknaði við að það var verið að skafa gangstéttina fyrir utan. Núna er nú megnið af snjónum bráðnað samt...




Á laugardagskvöldið bauð Steinunn okkur í mat, ramm íslenskan jólamat, hangikjöt, uppstúf og ora baunir ásamt malti og appelsíni, alveg æðislega fínnt, höfðum nú bara ekki borðað svona íslenskan mat lengi lengi lengi ;) Svo var horft á MGP eða Barnaeurovisionkeppnina sem Hekla var búin að vera að bíða eftir alla vikuna, en náði nú ekki að vaka alveg til enda samt. Okkar lag hafnaði í 5. sæti. Annars var nú ekki margt gert þessa helgina, nema jú Hekla fór í afmæli til Nönnu Lísu vinkonu sinnar í gær og skemmti sér mjög vel.



Nú eru víst bara 3 vikur í Íslandsför okkar, mikið rosalega er tíminn fljótur að líða!


22. nóvember 2004 | 22:23:56

fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Hekla er mikið að spá í nafninu sínu þessa daganna. Á leikskólanum hennar er, þó ótrúlegt megi virðast, önnur yngri stelpa sem heitir Hekla Sól alveg eins og hún :) En síðan hún byrjaði hefur Hekla verið að tala um að hún vilji nú bara láta kalla sig Heklu (en ekki Heklu Sól), ég veit nú ekki nákvæmlega af hverju en skilst einna helst að hún vilji forðast rugling við þá yngri.


Það nýjasta er hins vegar að eftir að ég var eitthvað að fíbblast í henni um daginn og kalla hana þá bara Sól (þegar hún var að banna mér að kalla sig Heklu Sól), að þá vill hún núna bara láta kalla sig Sól og er farin að segja vinkonunum á leikskólanum að kalla sig Sól :) Það gengur skiljanlega misjafnlega þar sem þær þekkja hana nú bara sem Heklu / Heklu Sól, en hún er enn að reyna hehe... man nú samt ekki alltaf eftir þessu sjálf ;)



18. nóvember 2004 | 22:08:49

miðvikudagur, nóvember 17, 2004

Síðasta laugardag skruppum við í smá túr til Svíþjóðar, fórum með lestinni til Malmö og skoðuðum okkur aðeins um og versluðum smá. Okkur gekk ekki sem best að komast af stað því það var einhver biluð lest á Hovedbanegarden sem þurfti að draga í burtu og á meðan þurftum við að bíða í lestinni á leiðinni þangað í dágóða stund og svo var töf á lestinni til Malmö. En við fórum bara á Mac Donalds á meðan og komumst svo loksins af stað. Já sænskan er nú skrítið mál... til dæmis komumst við að því að lyfta er HISS á sænsku og HISSAR í fleirtölu ;) Svo er sko ekkert sem heitir að komast ókeypis á klósett í Svíþjóð og kostar það einar 5 sænskar krónur, sem jafngildir uþb 50 íslenskum krónum! og sama fyrir börn. Eins gott að eiga pening ef manni er mál í Malmö! Annars voru verslanirnar svipaðar og hér, fórum í matvöruverslun á heimleiðinni og þar var úrvalið reyndar soldið öðruvísi en hér (og betra) og meðal annars hægt að fá Extra tyggjó!



En já ferðalagið gekk sem sagt bara vel og allir voru sáttir og glaðir og Mía var bara frekar góð. Hún er annars stundum pínu pyrruð þessa daganna, en framtennurnar tvær í neðrigóm eru líka alltaf að verða greinilegri í gómnum og hún reynir í sífellu að jappla á öllu sem fyrir er, svo sennilega er það bara það sem pirrar hana. Hún er samt oftast bara bísna sæt og góð og brosir og hlær að okkur og er dugleg að sofa úti í vagninum sínum.



Hekla fór heim með Emily vinkonu sinni í dag eftir leikskóla og var að leika við hana í svolítinn tíma og gekk það bara vel. Þær eru voða góðar vinkonur og leika sér mikið saman í leikskólanum.



17. nóvember 2004 | 16:41:06

þriðjudagur, nóvember 09, 2004

Þá er Heklu batnað og allt útlit fyrir að hún mæti í leikskólan í fyrramálið. Hún var bara mjög hress í dag og hitalaus. Hún er alltaf að syngja fyrir okkur þessa daganna lög og rímur sem hún lærir í leikskólanum, margt af því með viðeigandi handahreyfingum og hoppum og guð má vita hvað og það getur verið ansi fyndið að fylgjast með henni og ekki finnst Míu það minna fyndið þegar stóra systir skoppar um og syngur :) Þarf endilega að taka þetta upp og setja á netið...



Hekla hefur þessa daganna óbilandi áhuga á kúkableium! Kemur hlaupandi til að sjá kúkinn þegar svo "skemmtilega" vill til að Mía er búin að kúka ;) Um daginn hlotnaðist henni svo sá heiður að fá að skipta á einni slíkri bleiu (með gula ógeðinu ;) og gekk það bara alveg ágætlega hjá henni. Reyndar smá basl að koma Míu aftur í sokkabuxurnar, en hún reyndi lengi áður en hún gafst upp og fékk aðstoð ;) Mía nefnilega sprikklaði náttulega og sparkaði allan tíman, eins og henni er lagið og hlustaði sko ekkert á skipanir um að hún ætti nú að reyna að vera kyrr.



Hekla Sól er annars mjög áhugasöm um að hugsa um hana Míu sína og reynir stundum að laumast til að taka hana upp og hnoðast soldið með hana ef litið er af þeim þegar þær eru báðar í hjónarúminu... Ekki eru nú foreldrarnir alltaf jafn hrifnir af því og móðirin dauðhrædd um þá stuttu... en það er alveg merkilegt samt hvað hún er ekkert að kvarta þrátt fyrir mis nærgætna meðferð hjá þeirri stóru...



9. nóvember 2004 | 22:37:24



sunnudagur, nóvember 07, 2004

Hekla er orðin eitthvað lasin núna, var eitthvað slöpp seinni partinn og var svo bara komin með rúmlega 39 stiga hita og bara voða aum litla greyið. Þannig að hún fer ekki í leikskólan í fyrramálið, en vonandi batnar henni nú fljótt. Hún hafði miklar áhyggjur af því að hún mundi kanski missa af sproginu á miðvikudaginn... en já það er svona talþjálfunartími sem allir eru í sem hafa dönsku sem annað tungumál, en það finnst Heklu voða skemmtilegir tímar.



Mía neitar að fara að sofa núna... er vanalega sofnuð milli átta og níu og stein sefur alla nóttina til svona sjö, átta... algjör purka. En best að fara að reyna að plata hana til að sofna ;) Vona bara að hún fái ekki pestina.



7. nóvember 2004 | 21:12:55

Hér er ýmislegt að frétta núna. Á fimmtudaginn fór Hekla í fyrsta sinn í sund með leikskólanum, en það stendur til að þau í gula herberginu (det gule rum) fari núna annan hvern fimmtudag í sund. Í gula herberginu eru sem sagt elstu krakkarnir af báðum deildum, c.a. 11 - 12 stk eða þau sem eru að fara í skóla á næsta ári. Það var bara rosalega gaman í sundinu og hlakkar Heklu mikið til að fara aftur, þau fóru í strætó og tóku matpakkan með og borðuð eftir sundið.


Mía litla Malín bara stækkar og stækkar og er alltaf að verða líflegri og hressari :) Spjallar orðið ansi mikið og finnst rosa gaman að hlusta á sjálfa sig æpa og skrækja og hlær svo bara :) Hún er farin að geta setið mjög vel í fanginu á manni og finnst voða gaman að fá að sitja uppi og horfa í kringum sig.



7. nóvember 2004 | 20:56:11

föstudagur, október 29, 2004

Jæja þá er Mía Malín búin að fá 3 mánaða sprautuna. Það gekk bara vel skrækti aðeins þegar hún var sprautuð, en svo var það bara búið og allt í besta lagi, brosti bara til læknisins :) og hún hefur allavega ekki enn fengið hita, svo sennilega sleppur hún alveg við það, eins og stóra systir gerði reyndar alltaf...



Hún reyndist vera 6.800 gr ( í samfellu og næstum þurri bleiu) og kom bara mjög vel út á kúrfunni hjá lækninum, 2 staðalfrávikum fyrir ofan dönsku meðalkúrfuna. Svo ég fékk það formlega staðfest að hún vex jú bara alveg ágætlega, en hún er líka á fullu í því að stækka upp úr fötunum sínum um þessar mundir.



29. október 2004 | 20:17:11

fimmtudagur, október 28, 2004

Jæja, best að vera nú dugleg að skrifa ;) það er nú alltaf eitthvað að frétta.



Hekla og Mía Malín fengu pakka í fyrradag frá Kidda, Löllu, Huga og Kristínu Mundu, voða fína alveg eins náttgalla og Heklu leist sko mjög vel á það :) "alveg eins" :) Í gærkvöldi fóru þær svo báðar í gallana sína og ég tók nokkrar myndir af þeim sem ég var að segja inn í albúmið hérna.



Mía er farin að reyna að jappla á öllu mögulegu, hef hana grunaða um að vera að fara að fá tennur... vona nú samt að það sé ekki rétt... en hún er búin að vera soldið pirruð síðustu daga og er farin að reyna að býta...



Síðustu nótt var kveikt í kanínu og naggrísa búrum sem standa á lóðinni hjá frítíðsheimilinu við hliðina á leikskólanum hennar Heklu og brann hluti af hinum leikskólanum sem er hinu megin við. Þetta var nú frekar sjokkerandi þar sem aumingja dýrin brunnu inni :´( og var Hekla nú soldið uppveðruð yfir þessu þó hún tæki það nú ekki mjög nærri sér samt...



Ég man ekki hvort ég var búin að segja frá því hér, en hann Píri litli páfagaukurinn hennar Heklu dó í sumar, lá einn daginn bara dauður í búrinu sínu :( Það var nú bísna sorglegt og var hann svo jarðaður úti í skógi. Þá voru nú miklar pælingar í gangi hjá Heklu varðandi hvað yrði nú eiginlega um hann, en hún hélt að þar sem hann færi nú til himna hlytum við nú að þurfa að grafa hann upp eftir nokkra daga... svo hann kæmist nú! Ég sagði henni nú að það væri nú bara sálin sem færi til himna og það væri alveg stranglega bannað að grafa hann upp. Ég er nú ekki klár á að hún hafi nú alveg skilið þetta með sálina, en er sem betur fer alveg með það á hreinu að það megi ekki grafa hann upp.

þriðjudagur, október 19, 2004

Já ég átti alveg eftir að segja frá dönsku mæðragrúbbunni sem við Mía Malín erum byrjaðar í, þetta er svona grúbba sem er sett saman af heimahjúkkunum hérna á svæðinu og í henni erum við 6 mæður og 6 börn sem öll eru fædd í júní og júlí. Við hittumst yfrileitt einu sinni í viku heima hjá okkur til skiptis, og höfum smá köku eða bollur og ræðum málin. Ég hef nú svo sem mis mikið til málanna að leggja sökum minnar takmörkuðu dönskukunnáttu, en þetta hefur nú samt haft mjög jákvæð áhrif á dönskuna hjá mér og ég er bara öll að koma til, þó ég segi sjálf frá ;)



Talandi um dönsku, þá fór Hekla í svona dönsku tékk um daginn á leikskólanum og það gekk bara mjög vel. Það var verið að athuga orðaforða, málskilning og þess háttar og gat hún bara hreinlega svarað öllu sem fyrir hana var lagt alveg vandræðalaust, svo hún hlýtur nú bara að standa sig ágætlega í dönskunni. En eins og hún segir sjálf, þá er hún sko lang best í dönsku á þessu heimili :) Hún er líka búin að vera að læra heilan helling af kvæðum og rímum á dönsku sem hún ýmist syngur eða þylur upp fyrir okkur, rosa flott hjá hennni :)



Já hún Mía er líka algjör snilli, hún er núna búin að finna út úr því hvernig hún getur leikið sér með dótið sitt, teigt sig í það og slegið þannig að það hreyfist. En það er einmitt í miklu uppáhaldi hjá henni þessa daganna að horfa á hluti dingla til og frá og eru óróar því einstaklega skemmtilegir.

sunnudagur, október 17, 2004

Jæja, hmm... langt síðan hér hefur verið skrifað nokkuð....



En já Mía vex og dafnar mjög vel og heldur betur búin að stækka og þroskast. Hekla er líka alltaf að sækka og henni gengur bara ljómandi vel í leikskólanum sínum og er mjög ánægt þar.



Hekla fór í Koloni með leikskólanum um miðjan september, en það eru svona nokkurskonar sumarbúðir í kofa út í skógi, og gistu þau þar í heilar 2 nætur! Ekki leist móður hennar nú meira en svo á þetta ferðalagt til að byrja með en ákvað þó að leifa dótturinni að fara þar sem hún var mjög spennt fyrir þessu og lagði hún því af stað á miðvikudegi með fullar töskur af fötum og fleiru, svefnpoka og allar græur. Svo kom hún ekki heim fyrr en á föstudegi aftur og gekk víst bara rosalega vel. Þau fengu nammi og fór í skógarferðir, allir bjuggu sér til indjánabúning sem þau svo dönsuðu í í kringum varðeld. Auk þess fóru þau í ratleik (skattejagt) og héldu náttfatapartý síðasta kvöldið og þetta var bara því líkt fjör og engin heimþrá nema bara smá daginn sem þau komu heim þegar hún fékk afhent póstkort sem við höfðum skrifað til hennar (allir fengu svoleiðis), en þá hefur henni sjálfsagt fyrst verið hugsað til okkar eitthvað að ráði, annað en við sem hugsuðum ekki um annað á meðan en hvernig gengi nú hjá henni ;)



Já í lok ágúst komu svo amma Steina og afi Pétur í heimsókn til okkar og voru í viku. Þau fengu leigða íbúð hérna á kollegíinu svo þau þurftu ekki að hírast hér í litlu íbúðinni okkar allan tíman. Þá fékk Hekla nú að gista hjá þeim nokkrar nætu og fannst það nú heldur betur gaman. Við fórum með þeim í Bakken og Hekla fékk að fara í hin ýmsu tæki sem hún óskaði sér, en það voru helst þau svakalegustu... ég lét hana plata mig með sér í drekann ógurlega og jéminn... það geri ég ekki aftur á næstunni :þ En hún var svo heppinn að geta platað pabba sinn með sér í fjöldan allan af tækjum og skemmti sér mjög vel!



Svo komu þau aftur núna síðustu helgi og voru á hóteli níðri í bæ með vinnufélögum afans og þá hittum við þau að sjálfsögðu líka, fórum með þeim á Strikið á menningarnótt, Hekla fór með þeim á H.C Andersen safnið og svo fórum við líka með þeim á kaffihús og út að borða síðasta kvöldið.



Já hún Mía er öll að braggast, var nú samt aldrei mjög lítil eins og kunnugt er og var farin að lifta hausnum liggjandi á maganum strax á öðrum degi þannig að hún er sko ekki í vandræðum með það í dag. Um þriggja vikna velti hún sér svo í fyrsta skipti af maganum á bakið og hefur marg oft gert það síðan. Við erum nú samt ekki alveg viss um hvenær hún fór að gera það af ásettu ráði, en til að byrja gerðist það nú held ég bara af því hún rétti hausinn svo hátt upp í loftið að hún valt ;)



Mía er líka farin að brosa og hlægja og gerir það nú orðið nánast eftir pöntunum ef þokkalega liggur á henni. Hún er líka orðin mjög ræðin og spjallar heilmikið á sínu einstaka tungu máli :) Hún er annars mjög dugleg að sofa litla krílið og sefur alla nóttina auk þess sem hún tekur minnst tvo góða lúra á daginn, þar með 4 tíma lúr eftir hádegið sem hún er einmitt upptekin við að taka ákurat núna.



Mía hefur nú samt ekki verið að þyngjast mjög mikið síðan hún fæddist, en hún svona rétt sleppur... hún er nú samt alls ekkert horuð, en hún var náttulega svo stór fædd að það er svo sem ekkert að því þó hún stækki ekkert brjálæðislega. Fyrir viku síðan var hún vigtuð og mæld og reyndist þá vera 6.400 gr og 64 cm, hafði þá þyngst um 1,6 kg frá fæðingu og lengst um 11 cm.



Já svo er ég byrjuð að vinna í mastersverkefninu mínu með henni Fríðu, við erum búnar að fá okkar eigin skrifstofu svo ég er ekki í neinum vandræðum með að taka Míu með mér þangað. Hún er svo þæg og góð og sefur svo mikið að ég held að hún verði nú ekki til mikilla vandræða ;)



En já hér er komið haust, það kom eiginlega ekki af fullri alvöru fyrr en síðustu helgi, en það hefur verið þokkalega kalt síðan.



Jæja, best að ég fari að hætta í bili og reyni að muna að vera nú dugleg að skrifa og segja frá hvað á daga okkar drífur.

mánudagur, ágúst 09, 2004

Fréttir

Jæja, af okkur er ýmislegt að frétta síðan ég skrifaði síðast. Mía dafnar vel, er duglega að drekka og sofa og er bara mjög hress :)



Þegar hún var 4 daga gömul fórum við með hana í skoðun á spítalan og var hún þá skoðuð af barnalækni, vigtuð og tekin blóðprufa fyrir PKU test. Mía var þá 4.618 gr og barnalæknirinn var bara mjög ánægður með hana. Síðan kom "sundhedsplejersken" á miðvikudaginn í síðustu viku þegar Mía var tæplega 2 vikna, en það er svona hjúkurunarfræðingur sem kemur heim, og hún vigtaði hana og mældi og skoðaði í bak og fyrir. Þá var dúllan orðin 4.900 gr og 54 cm, eða 100 gr yfir fæðingarþyngd sinni og 1 cm lengri sem þykir bara fínnt.



Heilsufar móðurinnar er orðið alveg ágætt bara, fór að geta labbað um án vandræða eftir svona 5-6 daga og var svo bara farin að geta þrammað um allan bæ ;) Erum farin að labba um allt með Míu í fína vagninum sínum og hefur það bara gengið mjög vel. Það er reyndar búið að vera ansi heitt hérna síðan Mía fæddist, 25 - 30 stig og oftast bara sól og blíða!



Hekla byrjaði á leikskólanum fyrir viku síðan, en var bara búin að vera 2 daga þegar hún fékk einhverja pest og var lasin með allt að 40 stiga hita í 3 daga... ekki gaman! en sem betur fer bara hiti og slappleiki og við hin virðumst hafa sloppið - 7,9,13 - Í dag fór hún svo aftur í leikskólan og hefur bara gengið ágætlega þar fram til þessa.



En já það gengur annars bara vel hjá okkur, þeim systrum semur ágætlega og sú eldri stendur sig bara vel sem stóra systir. Hún minnkaði nú að vísu aðeins við að vera lasin og þótti afskaplega fúllt að mega ekki vera alveg eins góð við litlu systur og hún helst vildi meðan á pestinni stóð... :/ en það vantar sko ekki gæðin!